Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 21
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 717 manns fórust og
hundruð til viðbótar slösuðust í troðn-
ingi sem varð þegar hundruð þúsunda
manna tóku þátt í síðustu trúarat-
höfninni í pílagrímsferð múslíma til
Mekka. Þetta er mannskæðasta slys
sem orðið hefur á pílagrímahátíð
múslíma í Sádi-Arabíu, hajj, í aldar-
fjórðung, eða frá árinu 1990 þegar
1.426 manns fórust í troðningi.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu sögðu að 863
hefðu slasast í troðningnum í gær og
tala látinna kynni að hækka. Klerka-
stjórnin í Íran sagði að minnst 90 Ír-
anar hefðu látið lífið í slysinu. Hún
sakaði yfirvöld í Sádi-Arabíu um að
bera ábyrgð á troðningnum vegna
„óstjórnar“ en heilbrigðisráðherra
Sádi-Arabíu kenndi pílagrímunum
um slysið, sagði þá ekki hafa fylgt
reglum sem yfirvöld hefðu sett í ör-
yggisskyni. Stjórnvöld í Íran og Sádi-
Arabíu hafa lengi eldað grátt silfur.
Rannsókn fyrirskipuð
„Margir pílagrímanna fóru um
svæðið án þess að virða tímaáætlanir
sem settar voru vegna hajj,“ sagði sá-
diarabíski heilbrigðisráðherrann,
Khaled al-Falih, í sjónvarpsviðtali.
„Hefðu pílagrímarnir fylgt fyrirmæl-
unum hefði verið hægt að afstýra
þessu slysi.“
Yfirmaður stofnunar, sem skipu-
leggur pílagrímsferðir Írana til Sádi-
Arabíu, sagði að skipuleggjendur há-
tíðarinnar hefðu lokað tveimur stíg-
um nálægt slysstaðnum. „Það olli
þessum hörmulega atburði,“ sagði
embættismaðurinn, Said Ohadi, í við-
tali við ríkissjónvarpið í Íran. „Þessi
atburður ber vott um óstjórn og
skeytingarleysi um öryggi pílagríma.
Það er engin önnur skýring á slysinu.
Draga þarf embættismenn í Sádi-Ar-
abíu til ábyrgðar.“
Krónprins Sádi-Arabíu, Moham-
med bin Nayef, fyrirskipaði rannsókn
á orsökum slyssins. Skýrsla um niður-
stöður rannsóknarinnar verður lögð
fyrir Salman konung „sem gerir síðan
viðeigandi ráðstafanir“, að sögn
fréttastofu stjórnvalda í Sádi-Arabíu.
Þetta er annað mannskæða slysið í
tengslum við pílagrímahátíðina í ár.
109 manns létu lífið 11. september
þegar stór byggingarkrani féll á
Moskuna miklu í Mekka. Mannskæð
slys voru mjög algeng í tengslum við
pílagrímahátíðina þar til fyrir tæpum
tíu árum þegar yfirvöld í Sádi-Arabíu
gerðu ráðstafanir til að auka öryggi
pílagríma. Í síðasta mannskæða slys-
inu þar til í gær, í janúar 2006, fórust
364 pílagrímar í Mína við trúarathöfn
sem felst í því að steinvölum er kastað
á þrjár steinsúlur sem eiga að tákna
djöfulinn. Mannskæðasta slysið varð
árið 1990 þegar 1.426 manns fórust í
troðningi í göngum í Mína eftir að
loftræstingarbúnaður bilaði.
Troðningurinn í gær hófst klukkan
níu fyrir hádegi að staðartíma nálægt
fimm hæða mannvirki, Jamarat-
brúnni, sem reist var til að auka ör-
yggi pílagríma þegar þeir kasta stein-
völum á steinsúlurnar, en það er síð-
asta athöfn hátíðarinnar. Mannvirkið
er tæpur kílómetri að lengd og gerði
það mögulegt að á hverri klukku-
stund hafa um 300.000 manns tekið
þátt í grýtingarathöfninni.
„Djöfullinn“ grýttur
Athöfnin á rætur að rekja til sög-
unnar af Abraham sem dreymdi að
Guð segði honum að fórna því dýr-
mætasta sem hann ætti, syni sínum
Ísmael, en þegar feðgarnir ætluðu að
hlýða þessu mættu þeir djöflinum í
mannsmynd sem reyndi að fá þá til að
óhlýðnast orðum Guðs. Abraham og
Ísmael köstuðu steinum í djöfulinn og
það varð til þess að hann hvarf. Þegar
Abraham ætlaði að fórna syni sínum
sló Guð hnífinn úr höndum hans og
sagði honum að fórna hrúti í staðinn.
Múslímar minnast þessa atburðar ár
hvert með fórnarhátíðinni Eid al-
Adha sem var í gær og steinsúlurnar,
sem eru grýttar í Mína á trúarhátíð-
inni, eru sagðar vera á staðnum þar
sem Abraham og Ísmael grýttu djöf-
ulinn.
AFP
Hundruð slösuðust Pílagrímur sem slasaðist í troðningnum fluttur á
sjúkrahús eftir mannskæðasta slys í tengslum við pílagrímahátíð múslíma í
Hundruð manna
fórust í troðningi
Eitt mannskæðasta slys í sögu pílagrímahátíðar múslíma
Tvær milljónir pílagríma
» Tæpar tvær milljónir manna
höfðu í gær tekið þátt í píla-
grímahátíðinni hajj í Sádi-
Arabíu, þeirra á meðal 1,4
milljónir múslíma frá öðrum
löndum.
» Um 100.000 manns annast
öryggisgæslu í tengslum við
pílagrímahátíðina. Um 25.000
manns sjá um heilsugæslu,
auk starfsmanna sjúkrahúsa.
Einnig voru sett upp 100.000
tjöld með loftkælingu.
Leið pílagríma
Mannskæður troðningur í grennd við Mekka
Moskan mikla í
Mekka
Arafat-fjall
MuzdalifahGöng
Fyrsti viðkomustaður
Mína
5 3
4
1
2
6
Helgasti staður íslams.
Pílagrímar fara sjö sinnum í kringum
helgu steinbygginguna Kaaba
Pílagrímar biðja frá hádegi
til sólseturs á staðnum þar
semMúhameð spámaður
flutti síðustu
ræðu sína
Snúa aftur til Mekka
og fara aftur sjö sinnum
í kringum Kaaba
Pílagrímar safna steinvölum
sem þeir nota daginn
eftir í Mína
Steinvölum er kastað
á þrjár steinsúlur sem eiga að
tákna djöfulinn, en það er
síðasta helgiathöfn
pílagrímahátíðarinnar
Um tvær milljónir pílagríma
voru í Mekka
1,5 milljarðar múslíma héldu
fórnarhátíðina Eid al-Adha í gær
Mekka
SÁDI -
ARAB ÍA
RIYADH
500 km
Hundruð manna fórust og
margir slösuðust í troðningi í Mína
Medína
Arafat
MekkaJeddah
Pílagríma-
svæði
50 km
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 16.09.15 - 22.09.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Í nótt skaltu deyja
Viveca Sten
Framúrskarandi vinkona
Elena Ferrante
Kamp Knox
Arnaldur Indriðason
Þúsund og einn hnífur
Hassan Blasim
DNA
Yrsa Sigurðardóttir
Stúlkan í trénu
Jussi Adler Olsen
Hendingskast
Sigurjón Bergþór Daðason
Konan í lestinni
Paula Hawkins
Ljósmóðir af Guðs náð
Katja Kettu
Fjársjóður herra Isakowitz
Danny Wattin