Morgunblaðið - 25.09.2015, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015
Nú er komið að fjórða bílnum sem við gefum
á þessu ári í áskriftarleik Morgunblaðsins.
Þann 22. október drögum við út stálheppinn áskrifanda
sem eignast sjálfskiptan Suzuki Vitara GLX
sportjeppa að verðmæti 5.440.000 kr.
Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur
mbl.is/askriftarleikur
Á meðal þess sem
Jón Steinar Gunn-
laugsson hrl. (JSG)
gagnrýnir við Hæsta-
rétt (HR) er að fjölda
dómsmála sé þar
„mokað út“ á kostnað
gæða. Þessi fyrrver-
andi hæstaréttardóm-
ari segir málaflóðið og
óvönduð vinnubrögð
sumra dómara ógna
réttaröryggi þeirra
sem leggja mál sín í dóm réttarins.
Tölur á vef HR benda til þess að
hver dómari kveði upp einn til tvo
dóma á hverjum vinnudegi ársins.
Þetta magn á mann vekur óneitanlega
efasemdir um að dæmt sé með vönd-
uðum hætti.
Hæstaréttardómarar stýra með-
ferð mála sem mörg hver eru viða-
mikil, flókin og erfið. Þeim er treyst til
að leiða þau til réttlátra lykta með
rökstuddum dómum. Við þessi störf
hafa þeir að mörgu að hyggja. Þeir
lesa t.d. gögn hvers máls, sem spanna
yfirleitt hundruð til þúsunda blað-
síðna. Þeir hlusta á hljóðupptökur af
aðilaskýrslum og vitnisburðum úr
undirrétti. Þeir hlýða einnig á mál-
flutning lögmanna. Dómurum er
treyst fyrir því mikilvæga hlutverki
að skera úr málum sem varða ágrein-
ing eða sakir. Við það er þeim ætlað
að dæma heiðarlega og af réttvísi, í
þeim tilgangi að enda deilur á milli
manna. Allt slíkt krefst ígrundunar og
vandvirkni. En gefst þeim tími í allt
þetta?
Fyrir málsaðila sem fela hæstarétt-
ardómurum mál sín til úrlausnar
skiptir miklu máli að dómar séu vand-
aðir og orðalag þeirra endurspegli
góðan skilning dómara á málsatvikum
og sýni að mál hafi verið krufin til
mergjar. Sannindi hafi verið greind
frá lygi, svikamyllur afhjúpaðar og á
þeim tekið lögum samkvæmt. Þannig
vönduð lögfræðivinna í dómstörfum
tekur sinn tíma en hefur líka góð
áhrif. Slæmir dómar skapa hvorki frið
í samfélaginu né traust til réttarins.
Því að dæma í HR fylgir mikil
ábyrgð. Dómar þaðan hafa mikil áhrif
á líf margra og á allt samfélagið.
Slæmir dómar geta orðið brotaþolum,
sem leitað hafa réttar síns, mikið áfall
og jafnvel svo að skerði heilsu þeirra.
Þannig dómar senda út vond skilaboð
og standa sem góðkenning á rang-
indum og glæpum. Þeir virka sem
hvatning á brotamenn til fleiri óhæfu-
verka, en aftur á móti sem refsing á
brotaþola. Við slæma dóma blasir
óréttlætið við þeim sem vel þekkja til
mála.
Sérhver aðili sem áfrýjar máli til
HR á rétt til vandaðrar úrvinnslu síns
máls. JSG sýnir fram á ýmsa mis-
bresti á því.1) Skort hefur málefnaleg
svör við rökstuddri gagnrýni hans
bæði á málsmeðferð og efnistök í sum-
um af dómum réttarins. Gagnrýni mín
á óvönduð vinnubrögð réttarins
stendur líka óhrakin.2)
Störf Hæstaréttar ættu að endur-
spegla það að allir séu jafnir fyrir lög-
um. Með því myndi skapast traust til
réttarins og við gætum
búist við því að fá þaðan
vandaða dóma í sér-
hverju máli. Hafið væri
yfir allan vafa að dóm-
arar dæmdu heiðarlega
og út frá bestu vitund og
samvisku. Fullvissa ríkti
um hlutleysi dóma, enda
væru þeir kveðnir upp
óháð kollegatengslum,
stjórnmálaskoðunum og
annarri sérgæslu.
Sérhver brotalöm á
þessu rýrir traust til
réttarins. En hvernig mælist það
traust? Samkvæmt könnun Markaðs-
og miðlarannsókna frá nóvember
2014 kváðust 34,4% landsmanna
treysta réttinum.3) Getur það talist
ásættanleg útkoma?
Þrátt fyrir að traust mælist lágt
haga margir sér eins og HR sé
óskeikull og það hefur sín áhrif. Rétt-
urinn kemst upp með að svara engri
gagnrýni og kemst hjá því að viður-
kenna yfirsjónir og leiðrétta mistök
sín. Hann biðst ekki afsökunar á
neinu og bætir engum tjón. Endur-
upptökur hæstaréttarmála hafa lengi
verið nánast útilokaðar. Viljum við
svona réttarfar? Tími virðist til þess
kominn að skoða hvort gera megi
betur.
Þar kemur til kasta þingmanna
sem hafa löggjafarvald Alþingis,
einnar af þremur undirstöðum lýð-
ræðis í landinu ásamt dómsvaldi og
framkvæmdavaldi. Þar er vettvangur
fyrir málefnalega umræðu um dóms-
kerfið og hvernig gera megi úrbætur
á því. JSG brýnir þetta svona: „Þjóð-
in, og þá ekki síst þeir sem sitja á Al-
þingi Íslendinga, verður að skilja að
þetta er eitt brýnasta, ég segi brýn-
asta, verkefnið í þjóðmálunum; að
koma Hæstarétti landsins í lag.
Þannig að menn þurfi ekki að eiga
þaðan von á óvönduðum úrlausnum
eins og verið hefur. Ég hef þá bjarg-
föstu trú að ef allt er í lagi á þessari
endastöð í réttarkerfinu verði svo
margt annað í lagi í samfélaginu
líka.“4)
Hér er verk að vinna við að koma á
traustu æðsta dómsvaldi. Það varðar
ekki bara löglærða, heldur kemur
það fleirum við. Á meðan málefnaleg
gagnrýni á HR er þögguð niður
lagast ástandið ekki.
1) Jón Steinar Gunnlaugsson (2014). Í krafti
sannfæringar: Saga lögmanns og dómara.
Reykjavík: Almenna bókafélagið.
2) Gunnar Hrafn Birgisson (2015). Hæsta-
réttarmál 603/2013: Svikamylla í gegnum
réttarkerfið. http://www.gunnarbirg-
isson.com/5035047.en.html.
3) Sjá http://mmr.is/frettir/birtar-
nieurstoeeur/431-mmr-konnun-traust-til-
stofnana-a-svidhi-rettarfars-og-domsmala.
Sótt 20. júni 2015.
4) Sjá http://www.visir.is/jon-steinar-telur-
ad-politikusar-eigi-ad-skipa-domara-vid-
haestarett/article/2015150609009. Sótt 20.
júní 2015.
Réttlátir dómar og
traust til Hæstaréttar
Eftir Gunnar
Hrafn Birgisson
Gunnar Hrafn
Birgisson
»Hér er verk að vinna
við að koma á
traustu æðsta
dómsvaldi.
Höfundur er sálfræðingur og
áhugamaður um réttarfar.
Samfylkingin undrast fylgistap í
skoðanakönnunum að undanförnu
en skýringin er augljós; fólkið sér
hvernig verkalýðshreyfingunni er
beitt en í forystu flestra stærstu fé-
laga er samfylkingarfólk og notar
verkfallsvopnið til að klekkja á
stjórnvöldum. Það væri hægt að tí-
unda nöfn þessa fólks og hvar það
hefur gefið sig upp í stjórnmálum.
En þegar fv. ráðherra er orðinn for-
maður í félagi sem getur nánast lam-
að þjóðfélagið þá sagði fólk: Nú er
nóg komið, þennan flokk kjósum við
ekki. Það vantar mann eins og Ás-
mund Stefánsson, slíkur maður
finnst ekki í verkalýðshreyfingunni í
dag. Hann hafði skynsemi og þor til
að hugsa um þjóðarhag frekar en
pólitíska flokkshagsmuni.
Kjósandi.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Misnotkun á verkfallsvopni
Samfylkingin Flokksstjórnarfundur fór
fram á Hótel Natura um daginn.