Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 ✝ SveinsínaAndrea Árna- dóttir (Bíbí) fædd- ist á Fiskinesi við Steingrímsfjörð 22. september 1931, hún lést 11. sept- ember 2015 á Dval- arheimilinu Höfða Akranesi. Foreldrar henn- ar voru Anna Guð- monsdóttir og Árni Sigurjón Ingvarsson, börn þeirra eru Guðmundur Lúðvík, f. 4. apríl 1930, d. 15. júlí 2001, Sigurlaug Inga, f. 19. september 1937, og Auður Minný, f. 19. september 1937. Eiginmaður Sveinsínu And- reu var Sigurður Níels Elíasson, f. 31. ágúst 1924, d. 27. desem- ber 2014. Börn þeirra eru: 1) Árni, f. 22.3. 1951, giftur Hrefnu Grétarsdóttur, þau eiga tvö börn og fimm barnabörn. 2) Klara Sigurbjörg, f. 26.8. 1954, hún á tvö börn og sjö barnabörn. 3) Drengur, f. 1956, d. 1956. 4) Gunnar, f. 1.7. 1958, giftur Margréti Jóhönnu Birkisdóttur, þau eiga tvær dætur. Fyrir átti Gunnar tvær dætur og barnabörnin eru fjögur. 5) Gylfi, f. 6.10. 1966, giftur Arndísi Baldursdóttur, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Sveinsína Andrea (Bíbí) starf- aði lengst af við Sjúkrahús Akraness. Útför Sveinsínu Andreu fer fram frá Akraneskirkju í dag, 25. september 2015, kl. 14. Fallin er hjartans fögur rós og föl er kalda bráin. Hún sem var mitt lífsins ljós ljúfust allra er dáin. Drjúpa hjóðlát tregatárin og tómið fyllir allt. Ekkert sefar hjartasáin í sálu andar kalt. Þögul sorg í sál mér næðir, sár og vonar myrk en Drottinn ætíð af gæsku græðir og gefur trúarstyrk. Þú ert laus frá lífsins þrautum og liðin jarðarganga. En áfram lifir á andans brautum ævidaga langa. Heimur bjartur bíður þar og bráðum kem ég líka. Þá verður allt sem áður var er veröld finnum slíka. Drottinn verndar dag og nótt á dularvegi nýjum. Aftur færðu aukinn þrótt í eilífð ofar skýjum. Þú alltaf verður einstök rós, elsku vinan góða. Í krafti trúar kveiki ljós og kveðju sendi hljóða. (Jóna Rúna Kvaran.) Elsku mamma mín. Það er erfitt að kveðja þig, en þú sagðir alltaf, og síðast við mig í vor þegar ég var í heimsókn á Íslandi, „við sjáumst bráðum aft- ur“. Orð að sönnu, en kannski ekki undir þessum kringumstæð- um. Þú hefur fengið frið fyrir þjáningum þínum og fundið pabba aftur. Þið voruð gift í næstum 65 ár þegar hann kvaddi þennan heim í desember 2014, og voru tæpir níu mánuðir á milli ykkar. Nú eruð þið sameinuð á ný og veit ég að þið munuð upplifa mikið á æðri stöðum. Það er erfitt til þess að hugsa að engin mamma og pabbi eru til þess að taka á móti mér og mínum þegar við komum í heimsókn til Íslands og heimsækjum föðurlandið. Það eru margar minningar sem ég geymi í hjarta mínu og huga, um þessa duglegu móður mína, þessa miklu handavinnu- konu. Það liggur eftir þig mikið af fallegu verkum. Minning um öll fallegu fötin og kjólana sem þú saumaðir á mig, ég er jú eina stelpan i hópnum og held að þú hafir notið þess að sauma eða prjóna á stelpuna. Börnin mín og barnabörnin nutu góðs af handa- vinnu þinni, þú varst dugleg að senda okkur hingað til Danmerk- ur vettlinga, sokka og peysur sem þú hafðir gert. Það reyndi mikið á þolinmæði þína þegar þú varst að kenna mér að sauma eða prjóna, og varst stolt þegar þetta heppnaðist hjá mér. Er ég afar þakklát fyrir það. Síðustu mánuðir hafa verið þér erfiðir. Þú þjáðist mikið en þú fékkst mikla og góða umönnun hjá starfsfólki Höfða og er ég af- ar þakklát fyrir það. Söknuðurinn er mikill hjá systrum þínum, Laugu og Auði. Þær hugsuðu mjög vel og fallega um þig og er ég þeim afar þakklát fyrir umönnun. Megi góður Guð styrkja þær á þessum erfiðu tím- um. Elsku bræðrum mínum, Árna og fjölskyldu, Gunnari og fjöl- skyldu, Gylfa og fjölskyldu, þakka ég af öllu mínu hjarta fyrir umhyggju þeirra og hjálpsemi við mömmu og pabba. Megi góð- ur Guð styrkja þá og halda verndarhendi sinni yfir þeim á þessum erfiðu tímum. Minning þín er mér ei gleymd mína sálu þú gladdir innst í hjarta hún er geymd þú heilsaðir mér og kvaddi. (Káinn) Takk fyrir allt og allt, elsku mamma mín. Minning um þig lifir í hjörtum okkar. Þín dóttir, Klara. Nú er mamma farin til pabba og við systkinin orðin munaðar- laus, eða þannig. Er ég hugsa til baka og rifja upp liðna tíma finnst mér mamma alltaf hafa verið til staðar. Hún var heima þegar ég kom úr skólanum, hún hafði tíma til að elda hádegismat þrátt fyrir að vera í vinnu og í dag held ég að hún hefði verið kölluð ofurmamma. Þrátt fyrir að stundum hafi maður ekki verið besti sonurinn, ekki viljað passa litla bróður, ekki nennt að taka til í herberginu eða fara út í búð, lét hún mann ekki finna það. En það var líka margt að hlakka til, saumaklúbbarnir voru t.d. eitt af tilhlökkunarefnunum en þá fékk maður að borða afgangana af tertunum. Það var alltaf gott að koma til mömmu, alltaf til kaffi og með því. Við ræddum oft um pólitík og verkalýðsmál og ekki síður um ættartölur. Ekki fannst henni leiðinlegt að ég skyldi setj- ast að fyrir vestan þar sem ræt- urnar okkar eru. Alltaf spurði hún eftir dætrum mínum og hvernig gengi hjá þeim. Síðustu árin þegar maður spurði hana hvernig hún hefði það og sá á henni að hún gekk nú ekki alveg heil til skógar og að hún gat varla prjónað lengur fékk maður yfir- leitt alltaf sama svarið: Það er ekkert að mér en pabbi þinn er hálfslappur. En nú ertu laus við alla verki, elsku mamma, og get- ur prjónað og sinnt handavinnu að vild og ég veit það að stelp- urnar af Vesturgötunni bíða með sætið þitt í saumaklúbbnum. Elsku Árni, Hrefna, Gylfi og Addý, takk fyrir að hugsa svona vel um mömmu og leyfa okkur hinum sem erum í burtu að fylgj- ast svona vel með öllu. Elsku mamma mín, takk fyrir allt og ég veit að pabbi hefur tekið vel á móti þér. Nú ert þú farinn á feðranna fund við hugsum til þín með sorg í hjarta, þín verður saknað um ókomna stund, guð geymi þig um veröld bjarta. (Höf. ók.) Þinn sonur, Gunnar. Jæja Bíbí mín, nú hefur þú kvatt okkur og ert komin til Sigga þíns. Ekki var nú aðskiln- aður ykkar langur eða tæpir 9 mánuðir. Samfylgd okkar spann- ar orðið um 35 ár og það er ótal- margt sem þú hefur kennt mér. Alltaf varst þú að gera einhverja handavinnu og margt hef ég lært af þér og bý að enn í dag. Á heim- ili okkar eru margir hlutir sem minna á þig og eru notaðir dag- lega. Marga dúka og teppi tók ég með mér í heimsóknir til þín og það verður passað vel. Að fá að sitja hjá þér nóttina áður en við flugum út er mér mik- ils virði. Ég er þess fullviss að þú hafir vitað af okkur hjá þér þó að þú hafir ekki getað látið það í ljós. Þeir segja mig látinn, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá hjarta mínu berst falleg rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem ykkur er ætlað að gleðja. (Höf. ók.) Elsku Árni, Klara, Gunnar og Gylfi, guð gefi ykkur styrk í sorg- inni. Takk fyrir allt, elsku Bíbí. Þín tengdadóttir, Margrét Jóhanna (Gréta). Amma Bíbí var ein af þessum ótrúlegu konum sem virðast aldr- ei sofa, fara síðastar í háttinn og fyrstar á fætur. Þegar amma hélt matarboð áttu allir að fara saddir frá borðinu og yfirleitt settist hún ekki til borðs, heldur snerist í kringum gestina og gætti þess að allir fengju sér aftur á diskinn. Amma var ekta húsmóðir og átti alltaf til heimabakað góðgæti í frystinum, ef gestir skyldu reka inn nefið. Hún var ein sú allra duglegasta handavinnukona sem ég hef kynnst og eftir hana eru mörg gullfalleg handverk sem við afkomendur hennar getum notið um ókomna tíð. Ég tel mig hafa erft marga góða kosti frá ömmu og þar á meðal handavinnu- áhugann sem hún var alltaf hæst- ánægð með, hún hjálpaði mér við prjónaskap og kenndi mér að hekla. Svo má ekki gleyma fal- lega nafninu sem ég fékk í höf- uðið á ömmu, sem ég hef alltaf kunnað vel við og ber stolt. Það sem fyllir hugann er þakklæti fyrir alla væntumþykjuna og góð- mennskuna sem þið afi áttuð nóg af og engan í kringum ykkur skorti. Takk fyrir allt, elsku amma, ég veit að afi tekur bros- andi á móti þér. Þín vinatryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér var oft heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Þín Andrea. Í dag kveðjum við ömmu Bíbí. Það er því vel við hæfi að minnast hennar með nokkrum orðum. Við systkinin vorum heppin að fá að alast upp í návist við ömmu og afa og erum þakklát fyrir að hafa haft þau í lífi okkar öll þessi ár. Þegar litið er til baka minnumst við ömmu Bíbíar sem mikillar dugnaðarkonu. Amma var alltaf að prjóna, sauma eða baka og nutum við afkomendurnir svo sannarlega góðs af því. Amma og afi voru dugleg að halda fjöl- skyldunni saman og standa mat- arboðin upp úr þar sem yfirleitt var eldað lambalæri eða -hryggur með öllu tilheyrandi og heima- tilbúinn ís í eftirrétt. Amma sett- ist nú yfirleitt aldrei til borðs með okkur heldur stóð hún við enda borðsins og passaði upp á að allir tækju hressilega til matar síns, það mátti enginn fara svangur heim. Á uppvaxtarárunum gátum við alltaf stólað á nýbakaðar pönnsur eða kleinur og ískalda mjólk þeg- ar við komum í heimsókn til ömmu Bíbíar og afa Sigga. Amma var mikil prjónakona og átti alltaf nóg til af vettlingum, sokkum og húfum í öllum regn- bogans litum sem hún geymdi í poka uppi í skáp. Í heimsóknum okkar vorum við iðulega spurð hvort okkur vantaði ekki eitthvað hlýtt og notalegt fyrir veturinn. Oftar en ekki enduðu heimsóknirnar á því að við vorum leyst út með vett- lingum eða sokkum á okkur eða börnin. Ömmu þótti ákaflega gaman að syngja og spila á gítar og það gerði hún á góðum stund- um með systrum sínum Auði og Laugu. Núna er elsku amma búin að finna afa Sigga eftir aðeins níu mánaða aðskilnað og trúum við því að þau séu á fullu að sinna haustverkunum, taka upp kart- öflur og slátur eins og þeim ein- um var lagið. Að lokum viljum við þakka þér, elsku amma, fyrir að vera ynd- isleg, hjartahlý og góð amma. Blessuð sé minning ömmu Bíbíar. Halldóra Andrea Árnadóttir og Grétar Árnason. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma Bíbí. Úr fjarlægð ómar hinsta kveðja okkar til þín, en margar og góðar minningar lifa í huga okkar. Okkur er hugsað til er við oft sátum í eldhúsinu á Vesturgöt- unni og drukkið var kaffibland og borðað mjólkurkex. Mikið var alltaf um að vera á Vesturgöt- unni, og þá sérstaklega þegar tekið var slátur og þú varst að sauma keppina. Við höfum átt margar góðar og yndislegar stundir með þér og afa, og minnumst margra frá Skarðsbrautinni. Hér var mikið leikið, og þá sérstaklega í kjall- aranum. Oft var farið heim til ömmu eftir skóla, þar þú tókst á móti okkur með nýbakaða klatta með sykri. Þegar þú varst mikið í kven- félaginu fannst okkur svo gaman að fá að koma með þér inn á Höfða og vinna í sjoppunni. Okk- ur fannst það svo rosalega spenn- andi. Ferðalögin með ykkur voru ávallt skemmtileg, hvort sem það var upp í Borgarfjörð, um Strandirnar eða til dæmis á Drangsnes. Þá minnumst við einnig ferðalagsins um Norður- löndin. Hér fórum við saman að ná í Sigga í Danmörku, og svo var keyrt um Noreg, Svíþjóð og Dan- mörku. Eitt það eftirminnileg- asta þegar við dvöldum á „Fúkkastöðum“ með ískaldri sundlaug. Einnig minnumst við þess, þegar þú komst til okkar á Jör- undarholtið með kók og súkku- laði þegar við lágum heima með flensu. Alltaf var glatt á hjalla þegar jólin nálguðust. Hér hittumst við oft öll barnabörnin og þú hjálp- aðir okkur með jólakökurnar. Einnig er okkur minnisstæð jóla- hefðin á jóladag með hangikjötið. Okkur þótti alltaf svo vænt um þessa hefð. Þú hefur alla okkar tíð unnið mikla handavinnu, og höfum við haft mikla gleði af því, eftir að við fluttum til Danmerkur. Við vor- um svo stolt yfir að sýna allan bútasauminn þinn, og alla prjóna- vinnuna handa krökkunum okk- ar. Okkur þótti mjög vænt um alla þína handavinnu sem þú gerðir fyrir okkur og krakkana okkar. Elsku amma bíbí. Þú last oft fyrir okkur ljóð og þá sérstaklega barnaversin, og langar okkur því að ljúka með einu slíku, sem við minnumst þín sérstaklega með. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Sigurður og Ragnhildur. Sveinsína Andrea Árnadóttir ✝ Helgi Páll Sig-urbergsson fæddist í Höfnum 13. september 1947. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 19. sept- ember 2015. Foreldrar hans voru Sigurberg Eggert Guðjónsson, f. 28.6. 1925, d. 19.5. 1987, og Hulda Karlsdóttir Newman, f. 10.3. 1927, d. 4.7. 1962. Bróðir sam- feðra er Lárus Berg, f. 9.3. 1945. Systkini sammæðra eru Geir, f. 15.9. 1951, Jón, f. 5.2. 1954, María, f. 23.3. 1960, og Ray- mond, f. 8.4. 1956, d. 5.10. 1990. Helgi Páll kvæntist Árnýju Kristinsdóttur, f. 20.12. 1940 frá Norðurgarði í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Guðbjörg dóttir hennar Birna Ýr. c) Stef- án, kvæntur Gunnlaugu Ernu, synir þeirra eru Björn Þór, Hilmir og Helgi. 2) Ásdís, f. 15.12. 1962 gift Núma Jónssyni, börn þeirra eru a) Mekkín, í sam- búð með Trond, dætur Rebekka, Rakel og Ylfa, b) Þráinn og c) Ýr. 3) Þóranna, f. 1.8. 1964, í sambúð með Guðjóni Baldvini Baldvins- syni, börn hennar eru a) Gunn- laugur, í sambúð með Sigrúnu, börn þeirra eru Embla Nótt og Gabríel Dagur, b) Atli Þór, kær- asta Birta Björk, og c) Sæþór Árni. Helgi Páll ólst upp í Höfnum hjá ömmu sinni, Helgu Maríu Sigurðardóttur, f. 23.9. 1901, d. 7.6. 1972, og flutti síðar til Kefla- víkur. Hann starfaði lengst af við stjórnun á þungavinnuvélum fyrir Keflavíkurbæ, Ístak og síð- ustu 22 árin hjá Furu í Hafn- arfriði ásamt leigubílaakstri. Helgi og Árný hófu búskap í Smáratúni og bjuggu síðustu ár á Sóltúni 7 í Keflavík. Helgi Páll verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í dag, 25. september 2015, kl. 13. Einarsdóttir, f. 21.12. 1905, d. 12.8. 1972, og Kristinn Aðalsteinsson, f. 31.12. 1903, d. 13.6. 1963. Sonur þeirra er Rúnar, f. 20.2. 1973, í sambúð með Ósk Benedikts- dóttur, dóttir þeirra er Lovísa Rut. Dæt- ur Óskar af fyrra sambandi eru Jó- hanna, Guðbjörg og Bryndís. Helgi Páll gekk börnum Ár- nýjar af fyrra hjónabandi í föð- urstað en þau eru: 1) Guðbjörg Birna, f. 31.10. 1960, sambýlis- maður Dagnýr Vigfússon. Börn hennar eru a) Gunnlaug María, gift Grétari Miller, dóttir þeirra er Kamilla. b) Thelma Sif, í sam- búð með Birgi Júlíusi Olsen, barn þeirra er Jóhanna Júlía og Jæja, pabbi minn, það eina sem huggar mig í þessu sorg- arferli er að loksins ertu verkjalaus og byrjaður að hlaupa og labba um allt þarna hinum megin, einmitt það sem þú hefur þráð svo lengi. Það er svo ótal margt sem ég hefði viljað segja þér áður en þú fórst, en hafði ekki tækifæri til þess. Ég veit innst inni að þú viss- ir þetta allt sem ég hefði viljað segja við þig, hvað mér þótti vænt um þig og hvað ég elskaði þig mikið og hvað ég leit alltaf upp til þín. Það eru svo ótal margar minningar sem koma upp í kollinn á mér þegar ég hugsa um þig og mun ég passa upp á að varðveita þær sem best um ókomna tíð. Mér þykir það verst að þú hafir ekki getað fylgt Lovísu Rut lengur, því hún var nú eina alvöru barna- barnið sem þú áttir og hélst þú mikið upp á hana, ég veit að þú verður alltaf við hlið hennar og passar hana því hún var þín. Eins og það er nú ótrúlegt þá held ég að ég eigi mest eftir að sakna rökræðna okkar í gegnum tíðina því þegar við vorum að rökræða var eins og ég væri að horfa í spegil því við vorum alveg eins í skapi. Elsku pabbi, hvíldu í friði, ég mun alltaf elska þig, þinn son- ur, Rúnar Helgason. Helgi kom inn í líf okkar systra þegar ég var fimm ára, yngst dætra hennar mömmu, ekkjunnar ungu sem hafði misst pabba í sjóslysi. Það var okkur öllum mikil gæfa að Helgi skyldi hafa fundið hana mömmu því það þurfti stórt hjarta, ást, kærleik og um- hyggju til þess að taka að sér ekkju með þrjár barnungar dætur. Helgi gekk okkur öllum í föðurstað og ól okkur upp sem sínar eigin. Efst í huga mér er þakklæti fyrir þær stundir sem við átt- um saman. Við þrættum og deildum um allt milli himins og jarðar og enduðu þræturnar yf- irleitt með því að Google leit- arvélin skar úr um hvort okkar hefði haft rétt fyrir sér. Alltaf stóðum við samt sátt frá borði. Helgi bjó yfir einstakri þrjósku sem sýndi sig einna helst í öll- um þeim veikindum sem á hon- um dundu og hann sigraðist á. Alltaf hélt hann í vonina og var staðráðinn í að koma sér á fæt- ur á nýjan leik. Við eigum svo margar góðar minningar sem rifjast upp fyrir mér í sorginni. Sorginni sem er svo sár. Missirinn er mikill en mestur er missir mömmu. Góða ferð í Sumarlandið. Kveðja, Þóranna. Helgi Páll Sigurbergsson HINSTA KVEÐJA Elsku Helgi minn. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín Árný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.