Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.09.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Aron Axel Cortes var móður eftir fjallgöngu í Suður-Týról þegarblaðamaður náði tali af honum. Hann hafði skellt sér í svif-vængjaflug síðastliðinn mánudag. „Ég ætlaði að fá mér pítsu með kærustu minni og vinafólki þegar þessi leiðbeinandi kemur og hrifsar í mig, við förum upp í 2.000 m hæð, hann setur á mig svifvængina og við hlaupum fram af. Það var ekki ský á himni og þetta var algjör upplifun. Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri að fara að gerast. Núna erum við í Lüsen á Norðaustur-Ítalíu að ganga á fjöll.“ Aron er að klára sitt annað mastersnám í ljóða- og óratóríusöng við Mozarteum í Salzburg í Austurríki, en fyrra mastersnámið var í óp- erusöng. „Ég á eftir tvenna lokatónleika í náminu og svo tekur alvar- an við eins og maður segir. Þessi vetur fer í að ferðast um Evrópu, finna umboðsskrifstofu eða umboðsmann sem vill taka mig að sér, taka þátt í keppnum og syngja fyrir óperuhús um allar trissur. Ég keypti mér nýverið Harley-Davidson mótorhjól og ætla að keyra um Evrópu á því í leit að vinnu.“ Aron er baritónsöngvari ólíkt föður sínum og bróður, Garðari Thór, sem eru tenórar, en hvað hefur hann verið að dunda sér úti meðfram náminu? „Ég stunda ræktina stíft með félaga mínum og svo spilum við söngfélagarnir reglulega knattspyrnu. Það hefur reyndar verið svo stíf dagskrá í skólanum að ég hef ekki haft tíma til að gera mikið annað en reyni þó einnig að ferðast.“ Kærasta Arons er Justine Unkel, en hún er bæði í söngnámi og há- skólanemi í listasögu. Foreldrar hans eru Garðar Cortes óperusöngvari og Krystyna Cortes píanóleikari. Barítóninn Aron nýlentur eftir svifvængjaflug í Suður-Týról. Í leit að vinnu á Harley-Davidson Aron Axel Cortes er þrítugur í dag Þ orvaldur fæddist á Siglu- firði 25.9. 1940 og ólst þar upp. Hann lauk landsprófi frá Héraðs- skólanum á Laugum 1955, kennaraprófi frá handavinnu- deild KÍ 1959, íþróttakennaraprófi frá Laugarvatni 1960 og var í ársor- lofi við nám og kennslu í Kaup- mannahöfn 1971-72. Þorvaldur var íþrótta- og handa- vinnukennari Seyðisfjarðarskóla 1960-75, skólastjóri sama skóla 1975- 84, bæjarfulltrúi á Seyðisfirði 1974- 84, bæjarstjóri Seyðisfjarðar 1984-98 og var síðan framkvæmdastjóri Sam- bands sveitarfélaga á Austurlandi 1998-2010. Þorvaldur var einn af stofnendum Lionsklúbbs Seyðisfjarðar 1965. Hann var formaður stjórnar Sam- bands sveitarfélaga á Austurlandi 1984-86, var fulltrúi fyrir Austurland í stjórn Sambands íslenskra sveitar- félaga frá 1986, var formaður fyrstu skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands 1986-87, sat í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga, í jarð- ganganefnd samgönguráðuneytisins fyrir Austurland, í stjórnsýslunefnd, í orku- og stóriðjunefnd Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og for- maður hennar um skeið, gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir íþrótta- félagið Hugin og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands á árum áður, m.a. formaður Hugins um skeið og formaður skíðaráðs í fjölda ára. Sem formaður Orku- og stóriðju- nefndar SSA og framkvæmdastjóri SSA, vann Þorvaldur, ásamt fleirum fyrir hönd sveitarfélaganna á Austur- landi, að undirbúningi þeirrar stór- iðju á Austurlandi er síðar sá dagsins ljós, sem álver Alcoa Fjarðaál. Þorvaldur var í verkefnastjórn fyrsta áfanga rammaáætlunar iðn- aðarráðuneytisins um virkjun vatns og jarðvarma 2001-2005, var lengst af formaður Vinnumarkaðsráðs Austur- lands 1998-2010, sat í Hreindýraráði Þorvaldur Jóhannsson, fyrrv. bæjarstjóri á Seyðisfirði – 75 ára Skíðagarpar Seyðfirski alpaklúbburinn fer árlega til Selva á Ítalíu og heldur þar upp á 30 ára afmæli sitt að ári. Yngist með hverju ári Heimsfrægir golfarar Jón Magnússon, Miguel Ángel Jiménez og Þorvaldur. Jón Sigurvin Pét- ursson, fv. bóndi og lögregluþjónn í Snæfells- og Hnappadalssýslu, er 85 ára í dag. Árnað heilla 85 ára Berglind Huld Victorsdóttir, Fannar Atli Victorsson og Victoria Þórey Þórð- ardóttir héldu tombólu við Bónus á Akranesi og söfnuðu 6.841 krónu. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barns- fæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.