Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 36

Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 SVEFNSÓFAR - SEM BREYTAST Í RÚM Á AUGABRAGĐI - CUBED SVEFNSÓFI GÓĐ SPRINGDÝNA 140x200 Kr. 159.900 RECAST SVEFNSÓFI GÓĐ SPRINGDÝNA 140x200 Kr. 129.900 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú veist hvað þú vilt fá en þú kannt ekki hagnýtu aðferðirnar til að eignast það. Nálgun þín við þetta framandi ævintýri er hálfgerð klikkun. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú er rétti tíminn til þess að dusta ryk- ið af gamalli áætlun, sem til þessa hefur ekki verið barn síns tíma. Flókin skapgerð þín gerir þig bara enn meira spennandi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu það eftir þér að sletta svolítið úr klaufunum en gættu allrar háttvísi. Farðu vel að heimilisfólkinu og reyndu að skapa góðan anda innan fjölskyldunnar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Stundum geta óhefðbundnar lækn- ingar komið að gagni. Hertu upp hugann og ræddu það af hreinskilni. Eða þá að þú kynn- ist nýrri manneskju gegnum sameiginlegan kunningsskap. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ævintýrin bíða þín á næstu grösum og þú skalt búa þig undir óvænta atburðarás. Einhver (þú veist ekki endilega hver) stenst ekki mátið og daðrar svolítið við þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Deilur við náinn vin og gagnrýni gætu gert lífið erfitt í dag. Daður hefur aldrei reynst þér jafn auðvelt. Ferðalög koma líka til álita. 23. sept. - 22. okt.  Vog Farðu þér hægt þegar við ókunnan er að eiga, sérstaklega ef ekki er á hreinu hvað fyrir honum vakir. Leitaðu hjálpar áður en það verður of seint. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt mann langi mikið í einhvern hlut er ekki ástæða til þess að setja allt úr skorðum hans vegna. Þú dregst að þeim sem eru skilningsríkir og umhyggjusamir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vísaðu fólki kurteislega frá þér þegar þér finnst það vera orðið yfirþyrmandi. Trén hreyfast í vindinum alveg eins og hugs- anir þínar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér finnst þú slappur á versta tíma – og það er merki um að þú þurfir að taka málin í þínar hendur. Farðu út í náttúruna eða á listasafn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú verður að geta staðið við þau loforð sem þú gefur. Leggðu drög að því að komast í gott ferðalag. 19. feb. - 20. mars Fiskar Dagurinn í dag ber með sér hlýju og innileika sem vert er að deila með öðrum. Ekki gleyma að gefa þér tíma til einveru þótt aðrir þurfi á þér að halda. Kristján frá Gilhaga orti á mið-vikudag, en þá voru haust- jafndægur: „Kuldalegt út að líta þegar birti í morgun og þrjár gráð- ur á mælinn enda grátt í Súlur og Hlíðarfjall að sjá. Fjallabrúnir falda gráu, förlast sumri, þróttur fer; sumarblómin sölna smáu, svala haustsins golan ber. En það er nú annars þvílíkt sól- skin hér alla daga núna að maður á varla orð yfir það, getur samt ekki orða bundist: Allir hljóta þetta að þrá því skal njóta stundarinnar, hér er kvóti enginn á ástarhótum sólarinnar.“ Og þann hinn sama dag skrifaði Davíð Hjálmar Haraldsson: ... Hreindýrin í Hlíðarfjalli hrista snjó úr klaufunum. „Nú er haustlegt,“ sagði hann, „og snjór í Súlum og Hlíðarfjalli eftir nóttina. Ætlaði ég að yrkja vísu um haustkomu í Hlíðarfjalli en mér fannst flest rímorðin við klauf- unum svo vafasöm að það vantar fyrripart. Tillögur?“ Og það stóð ekki á þeim. Sig- urlín Hermannsdóttir sendi fyrri- part: ... Tré sem kúra á köldum hjalli klæða sig úr laufunum. Sama gerði SkÁ úr Samsung- tækinu sínu: Gulnar engi, gránar hjalli, gerðið týnir laufunum. Björn Ingólfsson brást við með sínum hætti. „Það er alveg eins hægt að yrkja um elgi í Hlíð- arfjalli,“ sagði hann. „Þeir eru þar álíka algengir og hreindýr. Eða þá bjarndýr. Ég vil að þessi vísa fjalli um viðbrögðin hjá klaufunum er hreindýrin í Hlíðarfjalli hrista snjó úr klaufunum. Mikið er þetta vond vísa. Bæði botn og fyrripartur. Og ekki var hún mikið skárri sú sem mér datt í hug uppi á Höfðan- um í morgun. Sólin var ekki komin upp fyrir Hnjúkana og það var frekar napurt þarna uppi. Handan fjarðar sáust merki um úrkomu í föstu formi. Stemmu dagsins Kári kall kveður rámri bassaraust. Sest er ryk á Sólarfjall, sennilega er komið haust. En svona er þetta. Enginn gerir betur en hann getur.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hausthljóð í hagyrðingum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG MUN EKKI BAKA FLEIRI KÖKUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að halda bestu jól sem möguleiki er á. SKRIFA SKRIFA SKRIFA SKRIFA SKRIFA KRAKKAR, ALDREI SENDA SMS Á MEÐAN ÞIÐ ERUÐ AÐ KLIFRA Í TRJÁM AMLÓÐI, STUNDUM HELD ÉG AÐ VIÐ SÉUM EKKI Á ÞEIM STAÐ SEM VIÐ VILJUM VERA Á! HVAR VILJUM VIÐ VERA, HERDÍS? GIFT! UPPTEKIÐ UPPTEKIÐ Víkverji ætti auðvitað að fjalla umendalaust klúður borgarstjóra, kröfur um afsögn hans og fleira í þeim dúr, en aðrir sjá um þau leið- indi nánast hvar sem litið er. Auk þess er að koma helgi og þá gefst tími til þess að velta skemmtilegri hlutum fyrir sér, eins og til dæmis ferðalögum. x x x Fyrir 30 árum bauð Víkverji makasínum í síðbúna brúðkaupsferð um Norður-Ameríku. Víkverji skipulagði ferðina sjálfur og var meðal annars farið til New York, Winnipeg, Minneapolis, Honolulu á Havaí, San Francisco, Las Vegas, Los Angeles, San Diego og Chi- cago. x x x Víkverji átti ekki kreditkort áþessum tíma og því var greitt fyrir allt flug í reiðufé fyrir brott- för. Hótelgisting var pöntuð sím- leiðis á hverjum stað og greitt fyrir hana á staðnum. Áætlað var hver kostnaðurinn yrði á hverjum áfangastað og ákveðin upphæð sett í umslag merkt hverri borg. Það sem var afgangs hverju sinni var sett í sérumslag og peningurinn notaður til þess að gera sér glaðan dag fyrir heimför. x x x Unga parið stóð í stórræðum,hafði keypt íbúð fyrr á árinu og þurfti að gæta þess að eyða ekki um efni fram. Launin voru ósköp venjuleg, eins og laun almennings voru á þeim tíma. Samt var ekkert mál að fara í nokkurra vikna ferð til Norður-Ameríku og enginn var skuldahalinn vegna þess. x x x Víkverji rifjar þetta upp vegnanýrrar auglýsingar um nær tveggja vikna ferð til Havaí. Ferðin kostar tæpar 900 þúsund krónur á mann í tvíbýli með morgunmat og tekið fram að mjög mikið sé innifal- ið! Víkverji hefur stundum hugsað um að bjóða makanum aftur til Havaí en hann hefur ekki efni á slíkri ferð með íslenskri ferðaskrif- stofu. Ferðin kostar jafn mikið og íbúðin forðum! Það gengur ekki upp í bókhaldinu. víkverji@mbl.is Víkverji Gleymið ekki gestrisninni því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita. (Heb. 13.2)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.