Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Eitthvað á stærð við alheiminn nefn- ist ný skáldsaga eftir Jón Kalman Stefánsson sem væntanleg er frá bókaútgáfunum Bjarti, Veröld og Vöku-Helgafelli á næstu vikum. „Tíminn líður ekki í eilífðinni, þar verður tillitslaust afl hans að engu. Hér lýkur ættarsögunni sem hefst í bókinni Fiskarnir hafa enga fætur og teygir sig frá Norðfirði forðum til Keflavíkur dagsins í dag, með við- komu á Miðnesheiðinni. Hér er sagt frá ástinni, sem er í senn fórn og jafnvægislist, frá lífi og dauða, krepptum hnefa, Elvis Presley sem kann að opna hjörtun og stjörnum himinsins sem hverfa í eldi sólar- innar,“ segir m.a. í tilkynningu. Þar kemur fram að Eitthvað á stærð við alheiminn sé ellefta skáldsaga Jóns Kalman, sem hefur fjórum sinnum verið tilnefndur til Bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs, nú síðast fyrir Fiskarnir hafa enga fætur sem út kom árið 2013. Bergsveinn Birgisson sendir frá sér nýja bók sem ber titilinn Geir- mundar saga Heljarskinns. „Berg- sveinn skrifar hér söguna sem hefði átt að skrifa, um Geirmund heljar- skinn. Fræðirit Bergsveins, Svarti víkingurinn, kemur út í íslenskri þýðingu vorið 2016. Bergsveinn skrifaði Svarta víkinginn á norsku, og hafa Norðmenn tekið honum fagnandi, og bókin selst í 30 þúsund eintökum. Fyrst kemur hér Íslend- ingasagan, sem aldrei var skrifuð,“ segir í tilkynningu. Ný skáldsaga er væntanleg frá Ólafi Jóhanni Ólafssyni. Hún fjallar um hálfíslenskan lækni í New York sem rannsakar sjúklinga í dauðadái. „Er hægt að ná sambandi við þá? Móðir hans, píanóleikari sem ekki hefur hlotið þá viðurkenningu sem foreldrum hans finnst hún eiga skil- ið, snýr aftur í upptökum sem vekja heimsathygli. En er endurkoman alltaf eftirsóknarverð?“ Randalín og Mundi snúa aftur Von er á nýjum spennusögum úr smiðju Yrsu Sigurðardóttur, Ragn- ars Jónassonar og Jóns Óttars Ólafs- sonar. Í bók Yrsu mæta persónurnar úr síðustu bók hennar, DNA, aftur til leiks. Bók Ragnars nefnist Dimma og þar rannsakar lögreglu- fulltrúinn Hulda síðasta sakamálið sitt áður en henni er gert að hætta störfum fyrir aldurs sakir, 64 ára gömul. „Ung kona, hælisleitandi frá Rússlandi, finnst látin á Vatnsleysu- strönd og bendir ýmislegt til þess að hún hafi verið myrt. Engum er hægt að treysta og enginn segir allan sannleikann. Hörmulegir atburðir úr fortíð Huldu sækja á hana og hún gerir afdrifarík mistök við rannsókn- ina sem hafa ófyrirsjáanlegar afleið- ingar,“ segir í tilkynningu. Þar kem- ur fram að bók Jóns Óttars sé síðasti hlutinn í spennusagna-þríleik um peningafjallið, þ.e. peningana sem hurfu í hruninu. Fyrri bækurnar í þríleiknum eru Hlustað og Ókyrrð. Ný barnabók um Randalín og Munda lítur dagsins ljós og nefnist hún Randalín, Mundi og afturgöng- urnar. Þetta er þriðja bók Þórdísar Gísladóttur sem Þórarinn M. Bald- ursson myndskreytir um tvíeykið. Hendingskast nefnist fyrsta skáldsaga Sigurjóns Daðasonar sem er ungur klarinettuleikari. „Ungur maður fær óvænt upp í hendurnar 30 milljónir króna. Miðaldra hjón verða fyrir því að húsið þeirra er málað appelsínugult í skjóli nætur. Þessir óvæntu atburðir koma miklu róti á líf persónanna, ekki síst aðalpersón- unnar þar sem allt fer á hvolf,“ segir í kynningu. Kvenréttindakonur áður fyrr Sunnudagsbíltúr er yfirskrift ljóðasafns eftir Ásdísi Óladóttur. „Tuttugu ár eru síðan fyrsta ljóða- bók Ásdísar kom út en þær eru alls orðnar sjö. Hér er að finna úrval úr þessum bókum í tilefni höfund- arafmælisins.“ Hugmyndir: Andvirði hundrað milljónir nefnist ljóðabók eftir Hall- dór Halldórsson, sem betur er þekktur sem Dóri DNA. Hér er um að ræða aukna endurútgáfu á ljóða- bók sem Dóri DNA gaf upphaflega út á vegum Tunglsins forlags fyrr á þessu ári. Þá kom bókin út í 69 tölu- settum eintökum sem aðeins voru til sölu eina kvöldstund, en óseldum eintökum var fargað eftir miðnætti. Munaðarleysinginn – örlagasaga er titill ævisögu sem Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur ritað um Matthías Bergsson. „Lífssaga Matt- híasar spannar allt frá munaðarleys- ingjaheimili í Reykjavík á sjötta ára- tugnum til hörkulegrar herþjálfunar fyrir stríðið í Víetnam og glæpa- hverfa í miðríkjum Bandaríkjanna. Við sögu koma Marlene Dietrich, Alice Cooper, Axl Rose, Marlboro- maðurinn, morðingi Johns Lennon – og þrír Bandaríkjaforsetar, svo nokkur séu nefnd. Í veraldarvolkinu sökk Matthías til botns í óreglu, nið- urlægingu og eymd en tók loks stefnuna heim til Íslands – þar sem hann vissi af æskuástinni sinni.“ Kvenréttindakonur fyrri alda nefnist bók eftir Kolbrúnu Ingólfs- dóttur. Bókin fjallar um brautryðj- andi kvenréttindakonur um allan heim frá upphafi baráttunnar fram undir miðja 20. öld. Auk þess er væntanleg ný og endurskoðuð útgáfa af bókinni Tilvitnanir a-ö sem Kol- brún Bergþórsdóttir tók saman. Von á nýrri skáldsögu frá Jóni Kalman  Spennusögur væntanlegar úr smiðju Yrsu, Ragnars og Jóns Óttars Jón Kalman Stefánsson Bergsveinn Birgisson Ólafur Jóhann Ólafsson Yrsa Sigurðardóttir Halldór Halldórsson – Dóri DNA Þórdís Gísladóttir Ragnar Jónasson Jón Óttar Ólafsson Sigmundur Ernir Rúnarsson Se n d u m íp ó st kr ö fu s: 52 8 82 00 Villidýr á verði tiger.is · facebook.com/tigericeland Regnsamkvæmi 1800,- » Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF,hófst í gær með sýningu á opnunarmynd hátíð- arinnar, Il racconto dei racconti, eða Sagnasveig, í Gamla bíói. Fyrir sýningu myndarinnar var boðið upp á 30 mínútna dagskrá þar sem Hrönn Mar- inósdóttir, stofnandi og stjórnandi RIFF, sagði nokkur orð og Margrét Örnólfsdóttir handritshöf- undur flutti hina árlegu RIFF-gusu. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, setti svo hátíðina formlega. Kynnir á opnunarhátíð- inni var Snjólaug Lúðvíksdóttir grínisti. RIFF sett í 12. sinn í Gamla bíói í gærkvöldi Flott Hrönn Marinósdóttir, stofnandi og stjórnandi RIFF, Gunnar Her- sveinn, Friðbjörg Ingimarsdóttir og Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.