Morgunblaðið - 25.09.2015, Síða 44
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 268. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Lýsa eftir milljónamæringi
2. Ræddi við kærastann á meðan …
3. Guðlaug gekk með barn fyrir …
4. Grófu upp lík keisarahjónanna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
21. október næstkomandi er dag-
urinn sem Marty McFly flaug á silf-
urlituðum Delorean til framtíðar-
innar, í kvikmyndinni Back to the
Future frá árinu 1985. Aðdáendur
myndarinnar og framhaldsmyndanna
tveggja sem gerðar voru munu fagna
þessum tímamótum á þessum degi
víða um heim og þá m.a. í Bíó Paradís
þar sem myndirnar þrjár verða sýnd-
ar í réttri röð. Sýningar hefjast kl. 18.
Á myndinni sést tímastillir tímavél-
arinnar í Back to the Future, hinnar
silfurlituðu Delorean-bifreiðar.
Haldið aftur til fram-
tíðar 21. október 2015
Á laugardag Gengur í suðaustan 15-23 m/s með rigningu, tals-
verð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hiti 8 til 14 stig. Mun hægari
og úrkomuminna um kvöldið. Á sunnudag Sunnan 5-10 m/s.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-10 m/s og súld eða rigning
norðvestantil, annars hægari vindur og bjart veður, en stöku skúrir
um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 12 stig að deginum.
VEÐUR
„Upphaflega átti ég að
koma inn á sem miðvörður í
hálfleik en ekki varð af því.
Næst stóð til að ég kæmi
inn á sem miðjumaður en úr
varð að ég kom inn á og fór í
sóknina. Ég held að það geti
ekki verið margir leikmenn í
heiminum í þessari stöðu.
Norðmennirnir eru mjög
ánægðir að geta notað
mig í allt,“ segir Matthías
Vilhjálmsson, leikmaður
Rosenborg í Noregi. »4
Ánægðir að geta
notað mig í allt
ÍR-ingar eru áfram einir á toppi Olís-
deildar karla í handknattleik eftir
fjórða sigurinn í jafnmörgum leikjum
en þeir þurftu að hafa mikið fyrir því
að sigra nýliða Víkings. Í Safamýri
knúði Valur fram sigur á Fram í jöfn-
um leik en Haukar fóru létt með Ak-
ureyri fyrir norðan og í Mosfellsbæ
voru FH-ingar lítil fyrirstaða fyrir
Aftureldingu. »2-3
ÍR-ingar með fullt hús
stiga á toppnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Elísa Margrét Hafsteinsdóttir, sem
verður þriggja ára í desember, fædd-
ist með heilasjúkdóminn Lissen-
cephaly, sem er bæði alvarlegur og
sjaldgæfur. Hún er fjölfötluð, þjáist
af flogaveiki og lungnasjúkdómum,
getur hvorki stjórnað hreyfingum né
talað og þarf stöðuga umönnun.
Foreldrar hennar, Gyða Krist-
insdóttir og Hafsteinn Vilhelmsson,
þurfa sérútbúinn bíl til þess að geta
farið með dótturina út af heimilinu án
teljandi vandræða. Vinir þeirra ætla
að halda styrktartónleika vegna
þessa í Austurbæ. „Þetta er frábært
framtak,“ segir Hafsteinn. „Þegar
Jóhann Fjalar sagði okkur frá þessu
varð ég orðlaus.“
Eftirlit allan sólarhringinn
Þegar Elísa Margrét var tveggja
mánaða greindist hún með sjúkdóm-
inn. Fyrsta eina og hálfa árið var hún
lengst af inni á Barnaspítala Hrings-
ins, en síðan hefur hún að mestu ver-
ið heima og í leikskóla á daginn. Auk-
inn sjúkrastuðningur, dagleg
heimahjúkrun og öll nauðsynleg
hjálpartæki og neyðarlyf á heimilinu
gera það mögulegt. Hún er keyrð í
leikskólann og til baka með fylgdar-
manneskju. Hún þarf reglulega súr-
efnisgjöf, jafnt á degi sem nóttu, og
Gyða og Hafsteinn skiptast á að
fylgjast með henni á nóttunni. Frá
því í byrjun þessa mánaðar hafa þau
fengið opinbera aðstoð tvær nætur í
viku, en Elísa Margrét þarf að fá
svefnlyf tvisvar til þrisvar á hverri
nóttu. „Kópavogsbær hefur komið
okkur æ meira til aðstoðar og fyrir
það erum við þakklát,“ segir Haf-
steinn. „Við höfum oft sagt að á með-
an við getum sofið erum við tilbúin að
takast á við allt,“ bætir Gyða við.
Gyða og Hafsteinn kvarta ekki
þrátt fyrir mikla erfiðleika heldur
njóta þess að eiga barn og gera allt
sem þau geta fyrir það. „Það væri
ótrúlega auðvelt fyrir okkur að
leggja árar í bát en við keppumst við
að halda okkar vinnu og gera það
sem við þurfum að gera með góðu
skipulagi og vilja,“ segir Hafsteinn.
Þau kynntust í vinnunni og Gyða seg-
ir að þau hafi strax náð mjög vel sam-
an. „Þetta er eins og enn eitt verk-
efnið okkar og það gengur vel,“ segir
hún. Áréttar að mikilvægt sé að
hugsa ekki um dökku hliðarnar.
Þau segja að litli bíllinn þeirra
henti ekki fyrir Elísu Margréti. „Við
verðum samt að sníða okkur stakk
eftir vexti og þessir styrktar-
tónleikar eru sem himnasending,“
segir Gyða. „Við förum ekki mikið
út með Elísu Margréti en það væri
gaman á meðan hún hefur heilsu til
þess. Til þess þurfum við stærri
bíl.“
Orðlaus vegna hugulsemi
Safna fyrir sér-
útbúnum bíl fyrir
fjölfatlaða dóttur
Morgunblaðið/Golli
Unga fjölskyldan Elísa Margrét með foreldrunum Gyðu Kristinsdóttur og Hafsteini Vilhelmssyni.
Styrktartónleikarnir verða í Aust-
urbæ þriðjudaginn 6. október og
hefjast klukkan 20. Fram koma
Skítamórall, Hreimur og Vignir, MC
Gauti, Áttan, Gunnar Birgisson,
Friðrik Dór og leynigestur. Að-
gangseyrir rennur óskiptur til fjöl-
skyldunnar.
Bræðurnir Jóhann og Nökkvi
Fjalar standa að hljómleikunum.
„Ég er orðlaus yfir þessu framtaki
og hálfskælandi yfir viðbrögð-
unum sem það hefur fengið á
Facebook,“ segir Gyða. „Eftir því
sem tíminn líður hefði maður hald-
ið að það myndi gleymast hvað líf
Elísu Margrétar er erfitt og kunn-
um við því sérstaklega vel að meta
þennan stuðning því vissulega
verður þetta ekki auðveldara.“
Þau hafa skoðað möguleika á
því að fá sérútbúinn, stærri bíl.
„Það myndi auðvelda okkur að
gera meira með henni,“ segir Haf-
steinn og leggur áherslu á að ör-
yggið sé fyrir öllu. Miðasala er á
midi.is en auk þess getur fólk lagt
inn frjáls framlög til styrktar Elísu
Margréti á reikning nr. 326-22-
953, kt. 510714-0670.
Auðvelda erfitt líf
MIKIL OG JÁKVÆÐ VIÐBRÖGÐ Á FACEBOOK
Syndrome nefnist kvikmynda-
viðburður sem er hluti af finnsku
menningarhátíðinni Northern marg-
inal sem stendur nú yfir í Reykjavík.
Úrval kvikmynda og heimildarmynda
verður á Syndrome, sjaldgæfar og
klassískar myndir sem þykja líklegar
til að koma áhorfendum í opna
skjöldu. Á laugardaginn verða sýndar
kvikmyndir í hálfan sólarhing í Tjarn-
arbíói, frá kl. 11 til 23, m.a. eftir leik-
stjórana Jani Volanen og Jimi Tenor.
Margar þeirra fjalla um pönk, m.a.
Punk Syndrome sem fjallar um pönk-
sveitina Pertti Kurikan Nimipaivat
sem keppti fyrir hönd Finnlands í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva. Í kvöld verður
heimildamyndin
Eternal Flame of
Gehenna sýnd á
Gauknum á undan
tónleikum
svartmálms-
sveitarinnar Black
Crucifixion. Myndin
fjallar um finnsku
málmsenuna nú til
dags og þykir afar
opinská.
Finnskt pönk og
málmur í myndum
Thea Imani Sturludóttir er 18 ára ný-
liði í íslenska landsliðinu í hand-
knattleik sem mætir Frökkum og
Þjóðverjum í undankeppni EM eft-
ir tvær vikur. Hún bjó í
London til sjö ára ald-
urs og móðir hennar
er frá Jamaíku.
„Það er ekki
mikið að gerast
í handbolta í
Englandi. Þegar
ég var lítil talaði
pabbi við mig um
einhverja íþrótt
sem ég skildi ekk-
ert í,“ segir
Thea um fyrstu
kynni sín af
handbolta. » 1
Einhver íþrótt sem
ég skildi ekkert í