Skólavarðan - 01.02.2005, Page 4
Skólakerfið á að vera í sífelldri endurskoðun 5
Í gestaherberginu er viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra um styttingu námstíma til stúdentsprófs.
Hljómandi góð ferð 8
Sigursveinn Magnússon skólastjóri Tónskóla Sigursveins segir frá athyglisverðri
ferð tónlistarskólakennara til Ungverjalands sl. haust.
Leikskólinn fyrsta skólastigið 13
Skólavarðan leitaði til Hildar Skarphéðinsdóttur, deildarstjóra leikskóladeildar
hjá Leikskólum Reykjavíkur, og spurði hana m.a. hvort fimm ára börn ættu nú
að fara að læra lestur og reikning.
Menntun kennaraefna í Finnlandi 14
Finnar komu afar vel út úr PISA-könnuninni á nýliðnu ári. Við skoðum hvernig
kennaramenntun í Finnlandi er skipulögð og hvaða kröfur eru gerðar til
kennaraefna.
Íslenskt stúdentspróf – Virðisauki eða tímaskekkja? 16
Athyglisverðar hringborðsumræður um stöðu og framtíð
framhaldsskólamenntunar á Íslandi.
Hverjum getur maður stjórnað? 26
Níu manna hópur frá Íslandi fór í námsferð til Minneapolis þar sem skoðaðir
voru skólar sem vinna eftir hugmyndafræði sem kallast Uppbyggingarstefnan.
Magni Hjálmarsson, Guðlaug Erla Gunnarsdóttir og Sveinbjörn Markús
Njálsson segja frá ferðinni og lýsa aðferðinni.
NLS fundur um málefni grunnskólans 28
Björk Helle Lassen er í stjórn Félags grunnskólakennara. Hún segir frá fundi
fulltrúa kennarafélaga á grunnskólastigi innan NLS sem haldinn var í Helsinki
rétt fyrir jólin. Megin málefni fundarins voru samstarfsverkefni um rétt barna
til tómstunda og niðurstöður PISA-könnunarinnar.
Leikskólinn Kjarrið hlaut Múrbrjótinn 2004 30
Landssamtökin Þroskahjálp veita árlega viðurkenningu sem kallast
Múrbrjóturinn. Þeir sem hafa skarað fram úr í að ryðja fötluðum nýjar
brautir í jafnréttisátt hljóta hann. Við litum inn hjá verðlaunahöfunum á
Leikskólanum Kjarrinu.
Allir geta eitthvað – enginn getur allt 31
Guðrún Pétursdóttir verkefnastjóri hjá InterCultural Iceland skrifar um um
markmið fjölmenningarlegrar kennslu.
Formannspistill 3
Hermann Jón Tómasson, formaður Félag stjórnenda í framhaldsskólum skrifar.
Smiðshöggið. Að horfa fram á við 34
Valgerður Eiríksdóttir kennari í Fellaskóla skrifar stöðu kennara eftir erfitt
verfall og nauðsyn þess að horfa björtum augum fram á veginn.
Skóladagar 15
Myndasaga Skólavörðunnar.
Að auki
Fréttir af kjaramálum, fundahöldum og fleiru fróðlegu fyrir kennara.
Forsíðan
Forsíðu þessa tölublaðs vísar til megin þema blaðsins sem er íslenska
stúdentsprófið. Ljósmyndari er Jón Svavarsson.
Ritstjóri: Guðlaug Guðmundsdóttir gudlaug@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndun: Jón Svavarsson / motiv-mynd, nema annað sé tekið fram.
Teikningar: Ingi Jensson
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Svansprent
Forsíðumynd: Jón Svavarsson
Skólavarðan, s. 595 1118 (Guðlaug) og 595 1119 (Helgi).
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík
„Sonur mín spurdi meg ein dagin, hvat mær dámdi best í skúl-
anum, tá eg var lítil. Eg hevði ilt við at finna nakað. Men til end-
ans fann eg fram til, at eg elskaði tímar, har eg fekk nakað nýtt
at vita. Tá lærarin í evnafrøði bleiv uppslúktur av atomteori og
sveimaði av stað í frásøgn síni, uttan at hugsa um torleikastig
ella lærubók. Ella tá sanglærarin fór at fortelja um søguna, sum
lá í kvæðinum, og kappar stríddust, og vegin var ormurin, mitt í
skúlastovuni. Tímar, tá vit fóru út um tað, ið loyvt var.“
Þessi orð skrifar Katrin Petersen blaðamaður og gestapenni í
nýjasta tölublaði Skúlablaðsins frá Færeyjum sem er „málgagn
fyri heim og skúla“.
Það er gaman að glíma við að lesa á færeysku og þar að auki
mælir Karin hér orð að sönnu. Hver kannast ekki við að eiga
minningu um kennara sem fór á flug og sagði frá einhverju sem
ekki stóð í bókinni. Kannski sjá einhverjir lesendur Skólavörðunn-
ar sig sjálfa í þessum sporum og minnast þess hve indælt það er
að eiga fulla athygli nemenda sem hlusta hugfangnir þegar sagt
er frá einhverju sem ekki stendur í bókinni. Þetta leiðir hugann
að því hvað það er mikilvægt að hafa góða og vel menntaða
kennara sem eru margfróðir og varpa ljósi á heiminn sem við
búum í.
Lengsta grein sem birt hefur verið í Skólavörðunni hingað til
er í þessu blaði og fjallar um styttingu námstíma til stúdentsprófs.
Þetta stóra mál er þema í blaðinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra veitti viðtal um málið og fimm mætir
skólamenn mættu til hringborðsumræðna um styttinguna. Það
er von mín að þessi skrif og annað efni blaðsins verði fóður fyrir
kennara til skoðanaskipta.
Skólavarðan er núna stærri en venjulega eða 36 síður. Ástæðan
er sú að sala auglýsinga hefur enn tekið heljarstökk undir styrkri
stjórn Stellu Kristinsdóttur. Því er einnig meira svigrúm fyrir ann-
að efni og útgáfan er öll hagkvæmari. Húrra fyrir Stellu!
Framundan er svo þriðja þing KÍ og öll aðildarfélögin halda aðal-
fundi sína áður en að því kemur.
Um leið og ég óska öllum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra
gleðilegs nýs árs vil ég hvetja þá til að hafa samband, skrifa og
benda mér á gott efni í blaðið.
Guðlaug
4
LEIÐARIEFNISYFIRLIT
FASTIR LIÐIR
GREINAR
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005