Skólavarðan - 01.02.2005, Page 10

Skólavarðan - 01.02.2005, Page 10
10 FRÉTTIR SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005 Félag kennara á eftirlaunum var stofnað árið 1980 og er hlutverk þess að fara með málefni félagsmanna Kennarasambands Íslands sem komnir eru á eftirlaun. Í því felst að fylgjast með og vinna að gerð kjarasamninga, halda fundi og námskeið, tilnefna fulltrúa á þing KÍ, halda úti félags- starfi meðal félagsmanna og gæta marg- víslegra hagsmuna þeirra. Kraftmikið hópstarf fer fram innan fé- lagsins og má þar nefna bókmenntahóp sem hittist reglulega og ræðir bókmenn- ir auk þess að fá rithöfunda í heimsókn, skákhópur er starfræktur og sönghópur- inn Ekkó æfir hálfsmánaðarlega, Sigrún Þórsteinsdóttir stjórnar hópnum. Tölvu- hópur kemur saman vikulega í tölvuveri Fjölbrautaskólans við Ármúla. Félagið heldur árshátíð og skipuleggur ferðalög auk þess að gefa út fréttabréf, FKE-fréttir og halda úti heimasíðu. http:// www.simnet.is/gop/open/fke/ . Í þessum Í Menntaskólanum við Hamrahlíð hef- ur staðið yfir vinna við gerð orðalista í táknmáli og hafa þeir verið gefnir út á margmiðlunardiskum undir nafninu Táknasafn MH. Safnið er hluti af þeim fagorðum sem notuð eru í kennslu í skólanum.Átta margmiðlunardiskar eru komnir út sem hafa að geyma orðalista yfir tákn í ýmsum fögum og myndskeið þar sem túlkur sýnir viðkomandi tákn. Þau fög sem þegar eru til eru: Eðlis- og efnafræði, íslenska, líffræði, saga, sálfræði, stærðfræði og listi yfir landa- heiti. Klórað í nögl og strokið um vanga Táknasafn MH er samvinnuverkefni tákn- málstúlka og heyrnarlausra nemenda Menntaskólans við Hamrahlíð. Mikil hug- myndaauðgi birtist í þessum táknum þótt þau sem verða fyrir valinu virðist oft liggja beint við. Táknið fyrir Bergþóru í Njáls sögu er til dæmis þannig að klórað er í nögl á þumalfingri en þannig er vísað í kartneglur Bergþóru en í tákni Njáls er vísað í skeggleysið með því að strjúka nið- ur vanga með tveimur fingrum. Túlkarnir hafa safnað saman táknunum sem hafa orðið til í kennslunni. Nemendur skólans eru hugmyndasmiðir táknanna og voru þeir með í ráðum í endanlegu vali. Lína Hrönn Þorkelsdóttir og Þórey Torfadóttir táknmálstúlkar sögðu að oft væri erfitt að velja eitt tákn og tóku sem dæmi að hugtakið friðþæging ætti tvö tákn þar sem erfitt reyndist að skera úr um hvort hugtakið væri betra. Íslenskt táknmál er í stöðugri þróun og jafnt og þétt þarf að bæta við nýjum táknum og samræma tákn yfir ýmis hugtök. Fastráðning túlka veitti svigrúm Að sögn Línu Hrannar og Þóreyjar voru táknmálstúlkar ráðnir að Menntaskólan- um við Hamrahlíð í föst störf árið 2000. Þá opnaðist svigrúm fyrir þetta framtak. Skólinn tók vel í að túlkarnir færu í þetta verkefni þær vikur sem falla utan kennslu- tíma og studdi verkefnið dyggilega með tækjakaupum og aðstöðu. Með tækjakost á staðnum var unnt að vinna táknalistana jafnt og þétt og túlkarnir gátu sjálfir séð um allar upptökur, klippingu og vinnslu. Við spilun táknasafnsins þarf að nota for- ritið Spilara. Það er fáanlegt á Samskipta- miðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Foritið er afrakstur samvinnu Samskipta- miðstöðvar heyrnarlausra og heyrnar- skertra og Trausta Þórs Kristjánssonar for- ritara. Í Spilara birtast listarnir samtímis á íslensku og táknmáli. Táknasafnið er góð leið til að varðveita öll þau fjölmörgu tákn sem verða til á skólagöngu heyrnarlausra nemenda skólans. Það hefur þegar fengið góðar móttökur og mun nýtast á öllum skólastigum. miðlum má fá allar upplýsingar um starf- semina. Út er komin skýrsla um starf fé- lagsins árið 2004 og er hún aðgengileg á netinu. Formaður félagsins er Gísli Ólafur Pét- ursson. Öf lugt starf Félags kennara á eftirlaunum Aðal markmiðið að auka gleði manna Táknasafn MH Orðalistar í táknmáli á margmiðlunardiskum Hópur félaga í FKE á ferð og flugi. Ljósmynd Gísli Ólafur Pétursson.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.