Skólavarðan - 01.02.2005, Síða 28

Skólavarðan - 01.02.2005, Síða 28
28 ERLENT SAMSTARF SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005 Björk Helle Lassen er í stjórn Félags grunnskólakennara. Hún sótti fund fulltrúa kennarafélaga á grunnskóla- stigi innan NLS (Nordiska Lärarorgan- isationers samråd) sem var haldinn rétt fyrir jól í Helsinki. NLS er samstarfsvett- vangur norrænna kennarafélaga leik- skóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Megin málefni fundarins voru samstarfs- verkefni um rétt barna til tómstunda og niðurstöður PISA-könnunarinnar. Björk Helle gerir hér grein fyrir fundinum. Um rétt barna til að njóta tómstunda Félög kennara á leikskóla- og grunnskóla- stigi NLS tóku þátt í að semja ályktun um rétt barna til að njóta tómstunda sem birt er í bæklingi fyrir þing alþjóðlegu mennta- samtakanna (EI) í Porto Alegre. Bæklingn- um Children's learning and their right to meaningful leisure time var dreift á fund- inum og mælt fyrir um frekari dreifingu hans innan landanna. Talið mikilvægt að koma þessum boðskap áleiðis og inn í um- ræðu um líf barna almennt. Mælt var með því að dreifa honum til stjórnmálamanna og atvinnurekenda, einkum til fulltrúa sveitarstjórna sem bera ábyrgð á tóm- stundastarfi í grunn- og leikskólum. Samantekt, samanburður og umræða um niðurstöður nemenda á Norðurlönd- um í PISA - 2003 Tveir fyrirlesarar, Viking Brunell og Joukka Törnros frá uppeldis- og rannsóknarstofn- un Jyväskylä háskóla, fjölluðu um niður- stöður PISA II rannsóknarinnar. Viking Brunell gerði grein fyrir tilkomu PISA og markmiði OECD með rannsókninni sem veitir nýja sýn á frammistöðu nemenda til grundvallar þegar mæla á þekkingu sem nemendur geta nýtt sér í lífinu án til- lits til námskráa. Úrtakið í rannsókninni 2003 tók til 41 lands og 275.000 fimmtán ára nemendur tóku þátt í skriflegu prófi í stærðfræði, lesskilningi, náttúrufræði og þrautalausnum. Árið 2000 var lögð áhersla á lestur, 2003 á stærðfræði og 2006 verður hún á nátt- úrufræði. Einnig inniheldur rannsóknin upplýsingar um viðhorf nemenda til m.a. menntunar og hlutverks hennar. Viking Brunell sýndi síðan dæmi um uppbyggingu í prófinu og fór yfir niður- stöður Norðurlanda hvers fyrir sig og innbyrðis tengsl þeirra. Í stærðfræðihlut- anum 2003 voru könnuð vitneskja nem- andans um hlutverk stærðfræði í daglegu lífi, hæfileikar hans til að skilja rökstuddar stærðfræðilegar ákvarðanir og hagnýt yf- irfærsla stærðfræði miðað við þjóðfélagið nú og í framtíð. Dæmi um spurningar má finna á vefnum http://ktl.jyu.fi/pisa. Margar skýringar á velgengni Finna Fjallað var sérstaklega um niðurstöður sænsk-finnsku skólanna sem komu mjög vel út úr PISA-könnuninni. Helstu einkenni þessara skóla voru lítill munur á milli ein- staklinga og skóla en stór kynjamunur í lesskilningi. Spurt var um fjöltyngi og í ljós kom að nemendum sem segjast vera tvítyngdir hefur fjölgað frá 1991. Í því sam- hengi er foreldrum, af ólíku þjóðerni, bent á mikilvægi þess að nota það tungumál sem þeir tala best í samskiptum við börnin sín því tvítyngi er talið æskilegt. NLS fundur um málefni grunnskólans Björk Helle Lassen Ljósmynd: GG

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.