Skólavarðan - 01.02.2005, Side 17

Skólavarðan - 01.02.2005, Side 17
17 SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005 stóra spurningin er: Hvernig er hægt að auka veg verknáms? Egill: Það er mikil gróska í samfélaginu og hún endurspeglar góða grunnmennt- un í landinu. Þeir sem ljúka stúdentsprófi hafa breiðan og margvíslegan grunn til að standa á. Þess vegna held ég að stúd- entsprófið standi nokkuð vel. En það er pottur brotinn hvað varðar framhalds- menntun iðnnema. Ég tek undir það að stúdentspróf af starfsmenntabrautum er ákaflega veikt og það er mjög óljóst skil- greint. Í reglugerð frá ráðuneytinu er sagt að bæta skuli rúmlega tólf einingum við iðnnám. Við erum hins vegar með tækni- stúdentspróf í Iðnskólanum í Reykjavík og þar hafa menn fengið mjög gott nám og notið velgengni í háskólum. En nú er ráðu- neytið búið að taka af þessa leið. Við erum bara að klára hana og stöndum eftir með aðeins eina leið og hún veitir réttindi til að fara í listnám. Atli: Mig langar að bæta við þetta. Þegar stúdentspróf eftir verknám var skil- greint fannst mér sem virðing fyrir verk- námsbrautum ykist í því umhverfi sem ég þekki. Þá varð auðveldara að fá foreldra til að fallast á að börnin þeirra færu á þær. Möguleikinn að bæta við einu ári upp í stúdent var þó fyrir hendi. Mér fannst svo aftur heyrast sá tónn að verknám væri ekki eins fínt þegar fréttist að háskólinn tæki ekki við þessum nem- endum. Þegar hingað var komið í samræðunum varð fólki tíðrætt um vinnu nemenda með námi. Þar komu fram margvísleg sjónar- mið sem endurspegluðu enn frekar hversu ólíkir skólar eru hér á landi og hve fram- haldsskólanemarnir eru ólíkir. Það má draga þessar umræður saman með orðum Atla sem sagði að nemendur gætu lært og þroskast af að stunda vinnu og hún gæti stutt við námið, til dæmis ef nem- andi í húsasmíði væri í byggingarvinnu með skóla, en auðvitað væri ekki gott ef nemendur ynnu svo mikið að námið sæti á hakanum. Aldís benti á m.a. að nemendur á Íslandi þyrftu sjálfir að kosta nám sitt en nemend- ur á Norðurlöndum fengju til dæmis náms- gögnin frítt. Námstími til stúdentsprófs er mislangur Þá var rætt um það hversu lengi stúdentar væru núna að ljúka stúdentsprófi úr hin- um ýmsu skólum og spurt hvort tímabært væri að stytta námstíma til stúdentsprófs? Sagði Atli að hugtakanotkunin þriggja eða fjögurra ára stúdentspróf ætti aðeins við um þá sem væru í bekkjakerfinu. -Stúd- entar hjá okkur klára ekki eftir þrjú eða fjögur ár heldur eftir sex, sjö, átta eða níu annir. Hjördís: Það ljúka því heldur ekkert all- ir á fjórum árum hjá okkur í MS en flestir gera það. Sumir ljúka á þrem árum og aðr- ir á fimm eða sex árum. Sumir fara milli skóla, aðrir taka hlé frá námi eins og þið þekkið. Guðmundur sagði að almenna reglan í MR væri fjögur ár en það kæmi jafnvel fyrir að einstaka nemendur tækju eitt, jafnvel tvö ár utan skóla. Of hröð breyting -Er tímabært að stytta námstíma til stúd- entsprófs? Atli: Verði það raunin að nemendur byrji fyrr í háskóla og fleiri fari í framhaldsnám á háskólastigi lít ég svo á að þetta sé fram- faraskref. Ég held ekki að erfiðleikarnir við þessa breytingu liggi á framhaldsskóla- stiginu, þeir liggja á unglingastigi grunn- skólans. Þess vegna ættu grunnskólamenn að vera hér að ræða þetta mál en ekki framhaldsskólamenn. Hjördís: Mér finnst alveg tímabært að stefna að því að stytta framhaldsskólann en ég held að við þurfum að gera ýmis- legt áður en við gerum breytingar á að- alnámskrá eins og lagt er til í skýrslunni. Við þurfum að byrja á því að breyta kenn- aramenntuninni, sérstaklega menntun kennara í 8. til 10. bekk. Rektor KHÍ hef- ur sett fram þá skoðun að kennaranemar ættu að ljúka meistaranámi áður en þeir hæfu kennslu. Ég tek undir þetta og tel að leggja þurfi miklu meiri áherslu á fag- menntun kennara í 8. til 10. bekk. Mats- Ég myndi helst vilja að breytingin fengi að ganga yf ir á tuttugu árum, þ.e. eins löngum tíma og það tekur nemandann að fara gegnum skólakerf ið. -Hjördís. VIÐ HRINGBORÐIÐ Frá vinstri sitjandi: Hjördís Þorgeirsdóttir, Atli Harðarson og Aldís Guðmundsdóttir. Frá vinstri standandi: Egill Guðmundsson og Guðmundur J. Guðmundsson.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.