Skólavarðan - 01.02.2005, Blaðsíða 22
22
KJARAMÁL FL
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005
Á 25. samningafundi Félags leikskóla-
kennara og Launanefndar sveitarfélaga
þann 22. desember sl. var undirritaður
kjarasamningur sem gildir frá 1. desem-
ber 2004 - 30. september 2006.
Með þessum samningi er tekið skref
í þá átt að jafna laun og starfskjör leik-
skólakennara við aðra kennarahópa með
sambærilega menntun. Þar má, auk launa-
hækkana, nefna framlag í Vísindasjóð,
mótframlag vegna séreignasparnaðar og
aldursviðmið vegna fjölgunar orlofsdaga.
Samninganefnd FL lýtur svo á að þetta
sé fyrra skrefið í samræmingarátt og það
síðara verði stigið í næsta samningi. Önn-
ur mikilvæg atriði sem fram náðust voru
fastlaunasamningar fyrir leikskólastjóra
og bókun um endurskoðun á þörf og fyrir-
komulagi á undirbúningstíma/kennslu-
skyldu leikskólakennara, sem fram skal
fara á samningstímanum.
Eftir er að gera kjarasamninga við þá
18 einkaaðila sem reka leikskóla og hafa
félagsmenn FL í störfum. Einnig á FL eft-
ir að gera kjarasamning fyrir hönd félags-
manna sinna sem starfa hjá ríkinu.
Björg Bjarnadóttir
Skref í átt að jöfnun
1. Um það bil 18 - 19% meðaltalslaunahækkanir, þar á meðal breytingar á röðun í
launaflokka, breytingar á viðmiðum vegna símenntunarflokka (eftir 1 ár, 6 ár og 12
ár) og niðurfelling á fyrsta þrepi.
2. 40 þúsund króna eingreiðsla (í samræmi við starfshlutfall) til þeirra sem eru í starfi
í desember.
3. Mat á sambærilegri starfsreynslu eftir háskólanám v/ákvæða um símenntunar-
flokka.
4. Fastlaunasamningar fyrir leikskólastjóra og heimild sveitarfélaga um að gera fast-
launasamning, með sama hætti við þá sem taka mið af röðun leikskólastjóra (ráðgjaf-
ar og leikskólafulltrúar).
5. Leikskólasérkennarar fá einn klukkutíma á viku til viðbótar í undirbúning.
6. Undirbúningstími kennara og stjórnunartími aðstoðarleikskólastjóra er skilgreind-
ur sem lágmarkstími - bókun um skoðun á samningstímanum á undirbúningstíma/
kennsluskyldu.
7. Starfsheitið leikskólastjóri 6 í leikskólum með yfir 1000 dvalarstundir.
8. Starfsheitið aðstoðarleikskólastjóri 5 í leikskólum með yfir 1000 dvalarstundir, 16
klst í stjórnun á viku fyrir hann.
9. Viðkomandi leikskólastjóri heldur röðun í launaflokka ef dvalarstundum fækkar.
10. Viðmið vegna fjölgunar orlofsdaga lækkar úr 40 ára í 38 ára.
11. Framlag í Vísindasjóð hækkar úr 1,5% í 1,72%.
12. 2% mótframlag vegna séreignasparnaðar.
13. Aukið framlag í Fjölskyldu- og styrktarsjóð.
14. Laun í námsleyfi miðist við meðaltal starfshlutfalls síðustu 3 ár.
15. Staðgengill leikskólastjóra í leikskóla 1.
16. Álagsgreiðslur hækka úr 45% í 55%.
17. Breytt starfsheiti og starfslýsingar vegna sérkennslu.
Megin innihald samningsins:
Samninganefndir Félags tónlistarskóla-
kennara og Félags íslenskra hljómlistar-
manna undirrituðu kjarasamning ásamt
samninganefnd Launanefndar sveitarfé-
laga þann 30. desember sl. með fyrirvara
um samþykki félagsmanna. Fyrri kjara-
samningur gilti til 30. september 2004 en
hann framlengist til 30. september 2006
með þeim breytingum sem nýr kjarasamn-
ingur felur í sér.
Nýi samningurinn er tvískiptur. Hann
felur annars vegar í sér launabreyting-
ar, launahækkanir og vissar breytingar á
launakerfi, t.d. niðurfellingu á tveim fyrstu
þrepum í launatöflu, símenntunarflokkar
koma inn í sex áföngum, við 25, 27, 30, 35,
40 og 45 ára aldur og viðmið í launapott
hækkar. Hins vegar samanstendur kjara-
samningurinn af sex bókunum sem taka til
nokkurra meginatriða sem samningsaðilar
eru sammála um að vinna að á samnings-
tímanum. Það er von samninganefndar FT
að með þessu fyrirkomulagi sé raunveru-
lega stefnt að því að nýr kjarasamningur
taki við þegar gildistími eldri samnings er
liðinn.
Kjarasamningar allra kennara skipta
miklu þegar litið er til þróunar mennta-
kerfisins og menntunar almennt sem undir-
stöðu framtíðar. Með kjarasamningum eru
laun stéttarinnar ákvörðuð og um leið sá
lykilþáttur hve aðlaðandi kennarastarfið
þykir og ekki nóg með það því kjarasamn-
ingar eru einnig vettvangur skólamálaum-
ræðu. Til að þeir nái að endurspegla störf
kennara og starfsumhverfi hverrar skóla-
gerðar verður að eiga sér stað ítarleg fag-
og skólaumræða.
Nú hafa tvö félög í Kennarasambandi
Íslands skrifað undir kjarasamning sem
gildir í tæp tvö ár. Hér tel ég kominn vísi
að nýrri leið í kjarasamningum fyrir aðild-
arfélög KÍ, styttri samningstími og stöðug
umfjöllun um afmarkaða þætti samnings.
Slík aðferðarfræði rímar við þá stöðu sem
menntun á að hafa í samfélaginu, hún á
sífellt að vera til umræðu. Ef horft er til
nágrannaþjóða okkar í þessu samhengi er
ekki fráleitt að álykta að slík leið myndi
einnig skapa meiri sátt um kennarasamn-
inga.
FT ákvað að nota rafræna atkvæða-
greiðslu um nýja kjarasamninginn. Hún
tekur styttri tíma og býður upp á nútíma-
lega þjónustu við félagsmenn. Atkvæða-
greiðslan var frá 17. til 21. janúar. Sam-
kvæmt bréfi frá kjörstjórn KÍ voru 494 á
kjörskrá. Atkvæði greiddu 294 eða 59,5%
af þeim sögðu 93,5 % já, 3,8% sögðu nei.
Auðir seðlar voru 8 eða 2,7%.
Sigrún Grendal
Vísir að nýrri leið í kjarasamningum
KJARAMÁL FT