Skólavarðan - 01.02.2005, Side 26
NÁMSFERÐ
26
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005
Uppbyggingarstefnan er hugmynda-
kerfi sem felst bæði í aðferð og stefnu-
mörkun skóla til að bæta samskipti.
Níu manna hópur frá Íslandi fór í náms-
ferð til Minneapolis þar sem skoðaðir
voru skólar sem vinna eftir þessari hug-
myndafræði. Hópurinn sótti einnig nám-
skeið hjá Diane Gossen frá Kanada og
Judy Anderson frá Minnesota sem eru
hugmyndafræðingar stefnunnar.
Skólarnir sem hópurinn heimsótti eru
ólíkir og fengu Íslendingarnir innsýn í
vinnubrögð með nemendur á ólíkum aldri
og í ólíkum skólahverfum.Þeim fannst
áberandi hversu skipulagðir kennararnir
voru í allri vinnu og hvað agi og agaferli
virtust vera skilvirk. Í skólunum var unnið
með fjölbreytilegra mannlíf og mun stærri
vandamál en þekkjast hér á landi. Þrátt
fyrir það virtist kennurunum ganga vel að
halda uppi góðum vinnuaga og áhuga hjá
nemendum.
Hópnum fannst þau vandamál sem
við erum að glíma við hérna heima smá-
vægileg miðað við þann veruleika sem
blasti við þarna. Sem dæmi má nefna að
nemandi á framhaldsskólastigi hafði kom-
ið með hlaðna byssu í skólann daginn
fyrir heimsóknina. Í öðrum skóla töluðu
40% nemenda ekki ensku, meirihluti fjöl-
skyldna lifði undir fátæktarmörkum og
fjöldinn allur af nemendum hafði alist
upp í flóttamannabúðum í Víetnam. Hér
er sagt frá ferðinni og uppbyggingarstefn-
unni í stuttu máli.
Uppbygging - sjálfsagi
Megin atriði er að kenna börnum og ung-
lingum sjálfsaga og sjálfsstjórn og ýta
undir sjálfstraust. Uppbyggingarstefnan
leggur áherslu á samskipti fremur en regl-
ur, á ábyrgð fremur en blinda hlýðni og
á virðingu fremur en stjörnugjöf. Stefn-
an treystir á hæfileikann til sjálfsstjórnar
og að hver og einn geti hugsað áður en
hann framkvæmir og brugðist rétt við
aðstæðum.
Uppbyggingarstefnan kennir sjálfsaga
og hvetur sérhvern til að taka ábyrgð á
eigin orðum og gerðum. Þetta er aðferð
til að stjórna bekkjum, aðferð í samskipt-
um og aðferð við að ná jafnvægi og innri
styrk eftir að hafa beitt samferðarmenn
sína rangindum eða lent upp á kant við
þá. Aðferðin byggist á að ná samstöðu um
lífsgildi til að hafa að leiðarljósi og fylgja
þeim síðan eftir með fáum skýrum reglum.
Spurt er hvernig við viljum vera og hvað
við þurfum að gera.
Þrjár meginhugmyndir
Sjálfsstjórnarkenningin (Control Theory)
segir að stjórnun sé viðleitni manns til að
uppfylla þarfir sínar og ná markmiðum
sínum í síbreytilegum eigin heimi. Varan-
leg gildi, um það hver við viljum vera í
mannfélaginu, stýra gjörðum okkar ekki
síður en fyrirhyggjulaus eigingirni. Þess
vegna er lögð áhersla á að vinna með gildi
og sagt að uppbyggingaraðferðin sé gild-
ismiðuð fremur en reglumiðuð. Af þessu
leiðir einnig sú hugmynd að hver og einn
geti í raun og veru ekki stjórnað öðrum -
aðeins sjálfum sér.
Raunsæismeðferð (Reality Therapy)
hjálpar manni að gera sér grein fyrir eigin
vilja, óskum og þrám, og finna bestu leið-
ina til að fá fram vilja sinn eða óskir sem
hvorki hefur neikvæðar hliðar fyrir hann
sjálfan eða aðra.
Sjálf uppbyggingin (Restitution) tekur
til þess þegar maður uppgötvar eftir á
að aðferðin, sem notuð var til að fá vilja
sínum framgengt, braut á rétti annars.
Þá skapast kannski besta tækifærið til að
finna nýja og betri leið, bæta fyrir og leið-
rétta misgjörðina og verða fyrir vikið meiri
maður - vaxa við hverja raun.
Þetta nám starfsfólks um grundvallar-
hugmyndirnar er nauðsynlegt til að fá
nýtt sjónarhorn á það hvað hegðun er og
hverfa frá hugmyndinni um að treysta á
ytri stjórnun (áreiti-viðbragð) yfir í skiln-
ing á hugmyndinni um innri stjórn og sjálf-
saga.
Þegar starfsmenn skóla hafa farið á
námskeið og skilgreint grunnatriði í bekkj-
arstjórnun og samskiptum í skólastofunni
geta þeir stuðst við þessar vinnuaðferðir og
Að kenna nemendum sjálfsaga og sjálfsstjórn og ýta undir sjálfstraust
Hverjum getur maður stjórnað?
Í ferðina fóru þrír kennarar, tveir skólastjórnendur, forstöðumaður íþróttamiðstöðvar og
félagsmálastjóri frá Álftanesi ásamt kennara og félagsráðgjafa frá Hafnarfirði. Efri frá
vinstri: Hildur karlsdóttir, Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Guð-
finna Dröfn Aradóttir.
Neðri frá vinstri: Sveinbjörn Markús Njálsson, Stefán Arinbjarnarson, Magni Hjálmarsson.
Frá kennslustund, unnið með þarfirnar.