Skólavarðan - 01.04.2005, Qupperneq 8
8
KYNNING FORYSTUMANNA
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 5. ÁRG. 2005
„Þær eru merkilegar tilviljanirnar,“
sagði Eiríkur Jónsson formaður KÍ. „Ég
var harðákveðinn í að verða rafvirki
þegar ég lauk landsprófi 1968 en þá var
útilokað að komast nokkurs staðar að.
Í ágúst vissi ég ekkert hvað ég ætti að
gera, hafði ekki sótt um neinn skóla og
atvinnuleysi landlægt. Þá ákvað pabbi
að hringja í Brodda Jóhannesson, kunn-
ingja sinn og skólastjóra í Kennaraskól-
anum, og spurði hvort hann gæti tekið
mig „í geymslu“ í eitt ár. Pabbi mat það
svo að það sem ég lærði þar gæti ég nýtt
mér við hvað eina sem ég tæki mér fyrir
hendur síðar meir. En ég lauk náminu
og kannski er þetta lýsandi dæmi um
sjálfan mig. Ef ég byrja á einhverju þá
vil ég klára það. Þarna kynntist ég fólki
sem ég stofnaði til kunningsskapar við
og ekki varð aftur snúið. Ég sé ekki eftir
því en þetta var alger tilviljun. Ég fór
ekki út í kennaranámið af hugsjón.“
Eiríkur sýndi svo um munaði í haust sem
leið að hann er harður samningamaður
og tekur hlutina föstum tökum. Hann
hefur stundað íþróttir frá barnæsku og er
til dæmis mikill sundmaður. Hann syndir
gjarnan 1,5 km í senn og eftir að hafa
stundað golf í tvö ár er forgjöfin 20,9!
Eiríkur er fæddur og uppalinn í Reyk-
holti í Borgarfirði og er af kennaraættum.
Faðir hans, Jón Þórisson, var kennari í Reyk-
holtsskóla í áratugi og afi hans Þórir Stein-
þórsson var skólastjóri þar í aldarfjórðung.
Móðir Eiríks er Halldóra Þorvaldsdóttir
fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma.
Eiríkur lauk kennaraskólaprófi 1972
og kenndi síðan víðs vegar um landið; í
Grindavík, Stykkishólmi og á Kleppjárns-
reykjum í Borgarfirði. Hann varð skóla-
stjóri í Grunnskólanum á Blönduósi 1984
og það sama ár var hann kosinn í stjórn
gamla Kennarasambandsins. Þegar hann
var kjörinn varaformaður þess 1989 fluttist
hann suður og kenndi í Hafnarfirði í eitt
ár. „Ég byrjaði að vinna fyrir sambandið í
40% starfi sem starfsmaður kjararáðs sem
var í raun samninganefndin. Mér fannst ég
oft vera að svíkjast um á báðum stöðum
og hætti því í kennslunni. Ég var kjörinn
formaður KÍ árið1994 og gegndi því starfi
þar til kennarafélögin voru sameinuð árið
1999 og hef verið formaður hins nýja KÍ
frá upphafi.“
Æskilegt að öll verkalýðshreyfingin
á Íslandi hefði sameiginlega sýn
Fimm ár eru liðin frá því Kennarasamband
Íslands var stofnað. Hvernig metur þú
stöðu sambandsins eftir 3. þing þess?
„Ég met stöðu KÍ sterka. Ég held að
flest hafi gengið eftir sem stefnt var að við
stofnun þess. Í upphafi voru tvö félög sam-
einuð, þ.e. HÍK og gamla KÍ. Þá strax var
stefnt að því að leikskólakennarar gerðust
aðilar að sambandinu. Það gekk eftir og
gekk vel. Við höfum náð að marka okkur
tryggan og góðan sess meðal opinberra
samtaka launþega ásamt BHM og BSRB og
einnig átt gott samstarf við bankamenn,
SÍB og Félag íslenskra hljómlistarmanna,
FÍH. Þessi samtök hafa með sér mjög gott
og árangursríkt samstarf. Það væri þó æski-
legt að öll verkalýðshreyfingin á Íslandi
gæti staðið saman og hefði sameiginlega
Viðtal við Eirík Jónsson
formann Kennarasambands Íslands
Sendur í Kennaraskólann í geymslu
Eiríkur Jónsson formaður
Kennarasambands Íslands.