Skólavarðan - 01.04.2005, Page 11

Skólavarðan - 01.04.2005, Page 11
11 SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 5. ÁRG. 2005 Ég er hlynntur því að KÍ haf i á stefnuskrá sinni að aðstoða stéttarsystkini annars staðar í heiminum við að byggja upp samtök ef þetta verkefni tekst vel. kennarar ættu að styrkja palestínska kennara. „Það er erfitt að vera sífellt í þeirri stöðu að þiggja styrki frá öðrum en leggja ekkert af mörkum sjálfur. Allt frá 1995 höfum við fengið tugi milljóna í styrki frá systursamtökum okkar, einkum á Norður- löndum. Við höfum reyndar stutt færeyska kennara í verkföllum en við höfum aldrei tekið þátt í uppbyggingarstarfi í öðrum löndum. Fulltrúar KÍ sem hafa verið þátt- takendur í erlendu samstarfi heyra félaga sína, til dæmis í Skandinavíu, segja frá stuðningsverkefnum í öðrum löndum. Norska kennarasambandið studdi kennara í Kósóvó, það danska kennara í Suður- Afríku og Finnar hafa stutt kollega í Eystra- saltsríkjunum. Það er nánast tilviljun að við veljum Palestínu. Það er brýn þörf víða annars staðar en það gerðist óvænt að mér var boðið til Palestínu í vetur. Þar hitti ég m.a. kennara og komst að því að þeir vilja nú stofna á ný samtök sín. Þá datt mér í hug að þarna væri vettvangur þar sem við gætum látið gott af okkur leiða. Ég bar tillögu þessa efnis upp í stjórn KÍ og hún fékk brautargengi þar, þá var ákveðið að leggja hana fyrir þingið í mars og var hún samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Í rökstuðningi mínum með tillögunni hét ég því að við myndum ekki fara út í þetta nema við kæmumst í samband við trausta aðila og tryggðum að féð yrði notað eins og við ætlumst til. Ég hef enga ástæðu til að óttast annað, en ég vil tryggja að við styðjum samtök sem verði opin landssamtök fyrir alla kennara. Ég fór til Palestínu sem fulltrúi KÍ og sá með eigin augum ástand sem er ólýsanlegt. Ég er sannfærður um að við getum látið gott af okkur leiða fyrir litla fjárupphæð. Þessi upphæð slagar upp í þrenn mánaðarlaun kennara þegar hún er komin til Palestínu. Ég er hlynntur því að KÍ hafi á stefnuskrá sinni að aðstoða stéttarsystkini annars staðar í heiminum við að byggja upp samtök ef þetta verkefni tekst vel.“ Guðlaug Guðmundsdóttir

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.