Skólavarðan - 01.04.2005, Síða 13
13
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 5. ÁRG. 2005
„KENNSLA - AÐLAÐANDI ÆVISTARF" - TILLÖGUR ÞEMANEFNDAR Á 3. ÞINGI KÍ
Skýrsla þemanefndar „Kennsla - aðlaðandi ævistarf" kom út skömmu fyrir
þingið og er aðgengileg á heimasíðu KÍ. Hún fjallar um störf nefndarinnar
frá því annað þing KÍ var haldið árið 2002. Skýrslan sem er um 200 blaðsíður
tekur á/tæpir á mörgum málum sem brenna á kennurum. Þar má nefna kenn-
aramenntun, rannsóknarþörf og þróunarstörf í skólum, stöðu námsefnisgerðar
og vinnuumhverfismál. Tillögur þemanefndar, sem samþykktar voru á 3. þingi
KÍ, byggjast á störfum nefndarinnar síðasta kjörtímabil. Hér er stiklað á stóru í
tillögum þemanefndar.
STEFNA OG ÁÆTLUN Í VINNUUMHVERFISMÁLUM
Þemanefnd lagði til að stjórn KÍ setti sér stefnu í vinnuumhverfismálum og að
gerð yrði áætlun um framkvæmd hennar. Hún lagði einnig til að sett yrði á
stofn fastanefnd um vinnuumhverfismál sem hefði það hlutverk að skipuleggja
ráðgjöf og fræðslu fyrir félagsmenn um sálfélagslega áhættuþætti í vinnuum-
hverfi þeirra og samskipti á vinnustað. Einnig lagði hún til að KÍ verði einni
milljón króna árlega, á næsta kjörtímabili, til fræðslu fyrir trúnaðarmenn um
vinnuumhverfismál og að gert yrði ráð fyrir stöðugildi ráðgjafa í vinnuumhverf-
ismálum við fjárhagsáætlun fyrir fjórða þing KÍ.
KENNARAMENNTUN VERÐI LENGD OG STYRKT
Þemanefnd mælti fyrir því að áhersla yrði lögð á að lengja og styrkja menntun
kennara til að gera kennslu að aðlaðandi starfi fyrir ungt og vel menntað fólk
sem og fyrir starfandi kennara. Skipulegt samstarf yrði tekið upp við Kennarahá-
skóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík
og Háskóla Íslands um (að Bologna-yfirlýsingin uppfylli) má ekki sleppa þessu?/
skilst ekki að uppfylla þarfir íslenskra kennara fyrir lengri og betri menntun.
RANNSÓKNIR OG NÁMSEFNI
Þemanefnd lagði til að áhersla yrði lögð á mikilvægi rannsókna- og þróunar-
starfs fyrir menntun og skólamál. Stjórnir aðildarfélaga KÍ og skólamálaráðs
ynnu að því í samstarfi við háskólana að miðla niðurstöðum rannsókna- og
þróunarstarfs til að hagnýta niðurstöður í skólastarfi. Nefndin vill að áhersla
verði lögð á að þarfir allra skólastiga fyrir gott og fjölbreytt náms- og kennslu-
efni verði uppfylltar.
FRUMKVÆÐI Í SKÓLAMÁLAUMRÆÐU
Í tillögum þemanefndar var gert ráð fyrir frumkvæði KÍ í mótun stefnu í skóla-
og menntamálum og þátttöku þess í framkvæmd hennar. Þingið skyldi leggja
áherslu á að stjórn skólamálaráðs ynni að því að gera Kennarasambandið
sýnilegra í opinberri umræðu og umfjöllun um skóla- og menntamál. Þetta
yrði gert með skipulegum greinaskrifum í dagblöð um skóla- og menntamál,
þátttöku í umfjöllun fjölmiðla um skóla- og menntamál, með ráðstefnum, mál-
þingum og fundum.
Einnig skyldi stefnt að því að stjórn skólamálaráðs markaði stefnu um hlutverk
kennarans á 21. öld, framtíðarsýn um sjálfsmynd hans og hlutverk, aðgerðaá-
ætlun um miðlun og framkvæmd þessarar framtíðarsýnar.
fylgdi skýrslu stjórnar úr hlaði og Ingibergur
Elíasson gerði grein fyrir reikningum
sambandsins. Þá hófust nefndastörf en
þessar nefndir störfuðu: Allsherjarnefnd,
fjármálanefnd, launa- og kjaramálanefnd,
skólamálanefnd, útgáfunefnd, fræðslu-
og félagsmálanefnd, orlofs- og ferðamála-
nefnd, jafnréttisnefnd og þemanefnd.
Hver ber ábyrgð á skólanum og hver
eru forgangsmálin í menntakerfinu?
Á seinni degi þingsins skiluðu nefndir
störfum, flutt voru framsöguerindi og
umræður fóru fram um nefndaálit. Þá
voru mál afgreidd með kosningu. Eftir
hádegishlé mættu gestir til málstofu
sem bar yfirskriftina Hver ber ábyrgð á
skólanum og hver eru forgangsmálin í
menntakerfinu? Gestirnir héldu stutt fram-
söguerindi um afmörkuð efni. Ásdís Halla
Bragadóttir bæjarstjóri í Garðabæ talaði
um efnið Skóli fyrir alla - alla ævi? Ingvar
Sigurgeirsson prófessor í KHÍ fjallaði um
efnið Barnið í brennidepli - einstaklings-
miðað skólastarf og jafnrétti til náms -
klisjur eða raunveruleiki? Jónína Bjartmarz
alþingismaður talaði um kennarasamn-
inga og að lokum velti Ólafur Stephensen
ritstjóri fyrir sér þeirri spurningu hvort
menntamálaráðherra boðaði lélegra nám
til stúdentsprófs með fyrirhugaðri stytt-
ingu á námstíma stúdenta. Eftir erindin
var opnuð mælendaskrá og svöruðu gestir
spurningum þingfulltrúa.
Forystumenn Kennarasambands Íslands. Frá vinstri: Hermann Tómasson FS, Ólafur Loftsson
FG, Hanna Hjartardóttir SÍ, Eiríkur Jónsson formaður KÍ, Sigrún Grendal FT, Björg Bjarnadóttir
FL Aðalheiður Steingrímsdóttir FF og Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður KÍ.