Skólavarðan - 01.12.2006, Qupperneq 28
28
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 6. ÁRG. 2006
Á fulltrúafundi Félags framhaldsskóla-
kennara sem haldinn var 10. nóvember
sl. var farið yfir mál sem unnið er að í
nefndum vegna svonefnds 10 punkta
samkomulags Kennarasambands Ís-
lands og menntamálaráðherra frá 2.
febrúar síðastliðnum. Í ályktun sem
samþykkt var í fundarlok segir að
fundurinn beri fullt traust til nefndar-
fólks sem leggi sig fram í störfum
sínum. Hins vegar lýsi fundurinn
áhyggjum af stöðu þessa stóra sam-
starfsverkefnis samtaka kennara og
menntamálaráðherra.
Lítið hafi enn komið út úr vinnunni í formi
stefnumörkunar og ákvarðana mennta-
málayfirvalda um það í hvaða breytingar
og umbótaverkefni verði ráðist, hvernig
verði unnið að þeim í skólum og hvernig
umbótastarfið verði fjármagnað.
Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður
FF leggur áherslu á að það sé brýnt að
ráðherra skýri afstöðu sína til vinnunnar
hið fyrsta og þá ekki síst til skýrslu
starfsnámsnefndar sem Þorgerður Katrín
hafi tekið jákvætt í. „Ráðherra hefur ekki
tjáð sig um á hvaða grunni umbæturnar
verði, það er hvort þær séu og verði unnar
á grunni bláu skýrslunnar svokölluðu eða
skýrslu starfsnámsnefndar. Þorgerður
Katrín þarf að segja hug sinn.“ Aðalheiður
segir jafnframt að það sé alveg ljóst
að kennarar muni aldrei samþykkja
skerðingu eða styttingu náms sem
menntastefnu, en hins vegar sé fólginn
í 10 punkta samkomulaginu grunnur að
góðri menntastefnu sem menn eigi að
sameinast um og vinda sér í að vinna hana.
„Nú þarf að vinna hratt og vel,“ segir
Aðalheiður, „ og fá svör strax frá ráðherra
við þessum spurningum: Hvenær verður
ráðist í umbætur, hvernig verður það gert
og hvað með fjármögnun?
Ályktun fulltrúafundar Félags
framhaldsskólakennara
10. nóvember 2006
Fulltrúafundurinn hefur farið yfir málin
sem unnið er að í nefndum vegna sam-
komulags
Kennarasambands Íslands og mennta-
málaráðherra 2. febrúar sl. Þar er unnið
að stefnumörkun um flest meginmál í
menntakerfinu; námskipan í grunn- og
framhaldsskóla, inntak náms og fjölbreytni
í námi, námsmat, náms- og starfsaðstæður
nemenda og kennara, náms- og
starfsráðgjöf, námstíma nemenda og
sveigjanleika í námslengd á grunn- og
framhaldsskólastigi. Fulltrúafundurinn
ber fullt traust til nefndarfólks og efast
ekki um að það leggi sig fram við að setja
fram hugmyndir um skóla til framtíðar.
Fulltrúafundurinn lýsir hins vegar áhyggjum
af stöðu þessa stóra samstarfsverkefnis
samtaka kennara og menntamálaráðherra.
Lítið hefur enn komið út úr vinnunni
í formi stefnumörkunar og ákvarðana
menntamálayfirvalda um það í hvaða
breytingar og umbótaverkefni verður
ráðist, hvernig unnið verður að þeim
í skólum og hvernig umbótastarfið
verður fjármagnað. Dæmi um mál sem
kosta fé vegna aukinnar starfsemi og
þjónustu eru: Aukin fjölbreytni í námi og
námsframboði, sveigjanlegur námshraði
og námstími og ráðstafanir til að bæta
námsárangur, til dæmis með aukinni ein-
staklingsmiðaðri námsaðstoð og aukin
náms- og starfsráðgjöf.
Fulltrúafundurinn bendir á að nei-
kvæð teikn eru á lofti um hug og vilja
stjórnvalda um málefni framhaldsskólans í
frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár. Þar er
boðaður 300 milljón króna niðurskurður
á framlögum til framhaldsskóla í landinu.
Fundurinn telur brýnt að tekin verði af
öll tvímæli um vilja menntamálaráðherra
til nauðsynlegrar eflingar og framsóknar
í menntakerfinu. Niðurstaða þarf að nást
um breytingar og umbætur á grundvelli
stefnumála 10 punkta samkomulagsins frá
2. febrúar 2006 og á nánari stefnumörkun
um málið sem aðilar samkomulagsins unnu
síðastliðið vor. Fulltrúafundurinn ítrekar
þá skoðun Félags framhaldsskólakennara
að aldrei verður sátt um fyrri áform
menntamálaráðherra um að stytta náms-
tíma til stúdentprófs með því að skerða
nám í framhaldsskóla.
Ráðherra þarf að segja hug sinn
Á fulltrúafundinum var margt fleira til umræðu en hér er sagt frá. Þar á meðal
hélt Oddur S. Jakobsson erindi þar sem hann skýrði frá samanburðarrannsókn
sinni á stofnanasamningunum í öllum framhaldsskóla og óskaði eftir
athugasemdum frá samstarfsnefndunum. Enn eru gögn að berast og grein um
stofnanasamningana er væntanleg í fyrsta tbl. Skólavörðunnar eftir áramót.
Þá sagði Bragi Halldórsson frá fyrirhuguðum breytingum í námsgagnamálum
sem boða ekki gott í þessum málaflokki, hvorki hvað varðar grunnskóla eða
framhaldsskóla. Fylgist með umfjöllun um þetta á www.ki.is
ATHUGIÐ!
Stjórn FF vill koma því á framfæri
við formenn félagsdeilda að hafa
sem fyrst samband við sína erind-
reka í stjórn félagsins til að fastsetja
fundi.
Fjölmargir innihaldsríkir viðburðir á sviði skólamála hafa átt sér stað á þessu
hausti. Fylgist vel með á www.ki.is því þar eru og verða mörgum þeirra gerð
margvísleg skil í vetur með styttri umfjöllunum, greinum og viðtölum. Þar má
telja meðal annars málþing Félags framhaldsskólakennara sem haldið var 11.
nóvember í kjölfar fulltrúafundarins, námstefnu um listsköpun í leikskólum,
ráðstefnuna Menntun í mótun, 10. málþing RKHÍ: Hvernig skóli – Skilvirkur
þjónn eða skapandi afl, ráðstefnu Samtaka áhugafólks um skólaþróun um
lýðræði í skólastarfi og málþing um heilsueflingu í leikskólum. Þá verður
sagt frá ráðstefnu Flatar í sumar um stærðfræði, umræðu um fagmennsku
tónlistarskólakennara á svæðisþingum, nánar frá fjölmenningarnámstefnu
Skólastjórafélags Íslands og ráðstefnu á Akureyri um samræðu allra skólastiga.
Einnig verða til umfjöllunar málefni námsgagnagerðar, málstofa Kennarafélags
Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Eru til aðstoðarkennarar“ og loks málþing um
endurskoðun grunnskólalaga. Þetta og fleira á www.ki.is
Skólamálaviðburðir á haustönn
– fylgist með á www.ki.is!
FRAMHALDSSKÓLAKENNARAR FUNDA OG ÞINGA