Skólavarðan - 01.12.2006, Page 30
30
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 6. ÁRG. 2006
Stundum finnst mér ótrúlega gaman að
vera grunnskólakennari. Ég trúi því ekki
að það skemmi fyrir kjarabaráttu kennara
að til séu grunnskólakennarar sem eru
ánægðir og stoltir af starfi sínu. Mig langar
að hrósa Félagi grunnskólakennara fyrir
ímyndarherferðina en jafnframt að benda
hinum almenna kennara á að virðing fyrir
starfinu hlýtur alltaf að koma að innan.
Við getum ekki ætlast til að aðrir hafi trú
á starfinu okkar ef við höfum hana ekki
sjálf.
Ný grunnskólalög
Eins og lesendum Skólavörðunnar er
kunnugt undirrituðu menntamálaráðherra
og Kennarasamband Íslands í febrúar
sl. samkomulag um skólastarf og skóla-
umbætur, tíu skref til sóknar, með það
að markmiði að vinna samhent að betra
skólakerfi með heildarendurskoðun á námi
og breyttri námsskipan skólastiganna.
Fjölmargar nefndir eru að störfum og
er ég formaður þeirrar sem falið var
að endurskoða grunnskólalögin. Mikil
undirbúningsvinna liggur nú að baki og
m.a. hefur verið rætt við á annað hundrað
hagsmunaaðila. Það var ánægjulegt að
upplifa að allir hagsmunaaðilar höfðu
mikinn áhuga á málinu og mikill sam-
hljómur var um fjöldamörg atriði eins
og sjá má í áfangaskýrslu nefndarinnar.
Þá langar mig einnig að geta þess að
hluti nefndarinnar fór til að kynna sér
löggjöfina í Danmörku og Noregi þar sem
miklar hræringar eru í skólamálum um
þessar mundir. Einnig fórum við til Írlands
til að kynnast lagaumgjörð nágrannalands
sem er með ólíkt skólakerfi og lítil tengsl
við Ísland. Skýrslugerð um ferðina er í
vinnslu þegar þetta er ritað.
Í nefndinni kom þegar í upphafi
fram mikill áhugi á því að ráðast í
heildarendurskoðun á grunnskólalög-
unum með það fyrir augum að breyta
ýmsum ákvæðum í ljósi reynslunnar og
einnig í tengslum við aukna samfellu í námi
og kröfu um meiri sveigjanleika, valfrelsi
og sjálfstæði skóla með velferð barna
að leiðarljósi. Við erum einnig sammála
um að miklir möguleikar eru hér á landi
til að þróa enn betri grunnskóla með
það að markmiði að vera í fremstu röð í
heiminum. Nefndin á að ljúka störfum nú
í árslok og ég bind miklar vonir við að full
samstaða náist um heildarendurskoðun á
lögunum.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Höfundur er grunnskólakennari.
���� ���������������
���������������������������
������������������������
������������������������������
� ����������� �����������������
� ����������� �����������������
� ����������� ������������������
��������������������������������������
������� ����������������
�������� ��������������
���������� ������������������������������������
��������������������������������
����� ����������������������
������������������
Heimilisiðnaðarfélag Íslands (HFÍ) leitar
að samstarfsaðilum til að taka þátt í
ráðstefnu sem félagið stendur fyrir á
komandi hausti.
HFÍ er rótgróið félag, stofnað 1913, sem
vinnur að því að varðveita og styrkja
lifandi heimilisiðnað og efla þjóðlegt
handverk. Félagið gengir nú formennsku í
samtökum Norræna heimilisiðnaðarfélaga
en í þeim eru auk Íslands, Danmörk,
Svíþjóð, Noregur, Finnland, Færeyjar og
Eistland. Af þessu tilefni mun HFÍ halda
ráðstefnu í Reykjavík 26.-30. september
2007. Boðið verður upp á fyrirlestra,
skoðunarferðir og sýningar sem tengjast
þema ráðstefnunnar: Handverkshefðin
sem innblástur að hönnun framtíðar.
Með þemanu vill félagið leggja áherslu
á að koma handverkshefðinni áfram til
komandi kynslóða, m.a. með samstarfi við
öll skólastig. Þegar hafa nokkrir grunn- og
framhaldsskólar auk Listaháskóla Íslands
mótað verkefni en við viljum mjög gjarnan
bæta fleirum í hópinn.
Hugsunin er að leik- og grunnskóla-
nemendur vinni á vorönn 2007 verkefni
í anda þema ráðstefnunnar, þar sem
handverkshefðin er á einn eða annan
hátt notuð sem innblástur. Hluti
afrakstursins yrði síðan sýndur almenningi
og ráðstefnugestum á samsýningu allra
skólastiga í september 2007.
Við hvetjum alla áhugasama til að
hafa samband við skrifstofu Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands í síma 5515500
(opið alla virka daga kl. 12-16) eða með
tölvupósti hfi@heimilisidnadur.is
Ásdís Birgisdóttir framkvæmdastjóri HFÍ
Handverkshefð í
hönnun
ÓSKAÐ EFTIR SAMSTARFI VIÐ SKÓLA:
SMIÐSHÖGGIÐ