Skólavarðan - 01.09.2001, Blaðsíða 4
5
Ísland er eitt 45 landa sem taka þátt í evrópsku tungumála-
ári 2001. Þann 26. september er evrópskur tungumáladagur
og verður dagskrá hans skipulögð í hverju landi fyrir sig en
auk þess er um einn sameiginlegan viðburð að ræða. Hann
felst í að sleppt verður nokkrum þúsundum af blöðrum í
höfuðborgum þátttökulandanna og fer athöfnin hérlendis
fram á skólalóð Austurbæjarskóla með þátttöku nemenda
og starfsfólks skólans sem sér einnig um stutta skemmti-
dagskrá. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands
og velvildarsendiherra UNESCO vegna tungumála, flytur á-
varp og sleppir blöðrum ásamt nemendum. Rás 2 mun
helga tungumáladeginum dagskrá sína frá morgni til kvölds
og m.a. útvarpa beint frá atburðinum við Austurbæjarskól-
ann. Aðrir viðburðir á tungumáladeginum verða m.a. þeir
að sett verður upp svokallað tungumálatorg í Kringlunni
þar sem fjölmargir skólar og stofnanir kynna tungumála-
kennslu sína og námsefni. Einnig gengst Háskóli Íslands
fyrir dagskrá sem nefnist Tungumál og menning. Íslands-
póstur gefur út sérstakan póststimpil með merki tungu-
málaársins. Síðast en ekki síst er gert ráð fyrir aðgerðum
í fjölmörgum skólum, en ráðuneytið hefur hvatt skóla til
þátttöku.
Evrópskur tungumáladagur
Á fræðsluhátíð í Kringlunni þann
8. september sl. í tilefni Viku sí-
menntunar var mikið um að vera
og ljósmyndari Skólavörðunnar
var á staðnum. Annað megin-
þema vikunnar, sem haldin var
dagana 3.-10. september, var
tungumál og létu samtök tungu-
málakennara (STÍL) ekki sitt eftir
liggja. Þau hafa látið útbúa póst-
kort sem henta vel til tungu-
málakennslu og hægt er að
nálgast með því að hafa sam-
band við Laufeyju Bjarnadóttur,
laufey@verslo.is.
Í vikunni var einnig haldið
málþing á Hótel Loftleiðum þar
sem margt mætra manna tók til máls um stöðu íslenskunnar í
alþjóðlegu samhengi, ferðaþjónustu, tölvur og breytta
kennsluhætti, nám í vinnunni, mannauð sem auðlind o.fl. Una
Eyþórsdóttir starfsmannastjóri Flugleiða sagði í fyrirlestri sín-
um, Mannauður, að Íslendingar þyrftu að auka framlög til
menntamála um þriðjung ef vel ætti að vera. Einnig kom fram
að hlutfall launakostnaðar sem varið er til fræðslumála er al-
mennt afar lágt hjá íslenskum fyrirtækjum, eða undir 2% hjá
tveimur af hverjum þremur.
Fræðsluhátíð og málþing
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur vill vekja athygli á evrópska
tungumáladeginum 26. september 2001.
Á þessum degi gefst skólum tækifæri til að vekja athygli á
fjöltyngi í skólum Reykjavíkur. Fjöltyngi er auður, sem vert
er að gefa gaum að, handhafar hans eru m.a. börn sem
hafa búið erlendis og aðflutt börn úr öðrum menningar-
heimum.
Kennsludeild Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur vill auð-
velda skólum framkvæmdina með því að benda á
• hugmyndabanka Evrópsks tungumálaárs 2001: www.
eurolang2001.org
• hugmyndabanka menntamálaráðuneytis: www.mennta-
malaraduneyti.is/mrn/mrn.nsf/pages/althjodlegt
• hugmyndabanka kennsludeildar Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur:
http://www.grunnskolar.is/fraedslumidstodin.nsf/-
pages/kennsluradgjof_evropsktunga.html
Kennsludeild Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur beinir þeirri
ósk til skóla og kennara að þeir sendi henni upplýsingar
um þá vinnu, sem fór fram í skólanum þennan dag, og veiti
leyfi til að birta efnið á heimasíðu kennsludeildar undir
nafni skólans.
Til skólastjórnenda og kennara
Tungumáladagur