Skólavarðan


Skólavarðan - 01.09.2001, Blaðsíða 7

Skólavarðan - 01.09.2001, Blaðsíða 7
Frétt i r og smáefni Dagana 12. og 13. október verður haldið 5. málþing Rannsóknarstofnunar Kennarahá- skóla Íslands, sem ber yfirskriftina Rann- sóknir - nýbreytni - þróun, í húsnæði Kenn- araháskóla Íslands við Stakkahlíð og sal Sjómannaskólans í Reykjavík. Helsta markmið málþingsins er að skapa vett- vang til kynningar á verkefnum á sviði þróunar- og nýbreytnistarfs og efla rannsóknar- og þróunarvið- leitni kennara og annarra uppeldisstétta. Að þinginu sem er opið öllum standa eftirtaldir aðilar: Félag framhaldsskóla Félag framhaldsskólakennara Félag grunnskólakennara Félag leikskólakennara Félag tónlistarskólakennara Fræðslumiðstöð Reykjavíkur Fulltrúi á vegum evrópska tungumálaársins Grunnur, samtök forstöðumanna skólaskrifstofa Íþróttakennarafélag Íslands Kennaraháskóli Íslands Leikskólar Reykjavíkur Menntamálaráðuneyti Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands Þroskaþjálfafélag Íslands Upplýsingar um málþingið verða færðar jafnóð- um á síðuna: http://www.khi.is/khi/rkhi/malthing2001.htm Upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir, netfang: gukarls@khi.is, sími: 563 3827 Málþing Rannsóknir - nýbreytni - þróun Ellefti september 2001 var alþjóðadagur friðar hjá Sameinuðu þjóðunum og með honum hófst vika friðarmenningar. Henni lauk þriðjudaginn 18. september með kjörorðinu Hlýðið á börnin. Þessi vika er einskonar viðleitni til að hefja áratug friðarmenningar og af- nám ofbeldis gegn börnum heimsins (2001-2010). Alþjóðadagur friðar er helgaður börnum en í stað þess að verða dagur friðar varð 11. september dagur hryðjuverka vegna árásarinnar á Bandaríkin. Árið 1995 samþykkti barnaþing á vegum SÞ að dagurinn Hlýðið á börnin (Hear the Children Day) yrði haldinn árlega í september með von um að kennarar og aðrir fullorðnir hlýddu á skoðanir þeirra og hugmyndir um betri veröld og mannleg samskipti. Hefð hefur skapast fyrir því að um hádegisbil þennan dag (kl. 11- 13) sameini börn í hverju landi hug sinn í hljóðri friðarmínútu og sendi friðarbylgju um heimsbyggðina. Friðarbekkurinn 7. E í Mela- skóla í Reykjavík skoraði á alla skóla í landinu, nemendur og kennara að senda friðarbylgju um heimsbyggðina þriðjudag- inn 18. september 2001 og minnast um leið allra sem þjást vegna stríðsátaka. Margir skól- ar urðu við áskoruninni. 7. E bendir einnig á tenglana : http://www.worldpeace.org/culture.html og http://www.wethepeoples.org/wethepeoples/idp/ sem eru sér- staklega tileinkaðir friðarvikunni, en líklegt má telja að skólamenn víða um land fylgi henni eftir með enn frekari friðarvinnu. Friðarmínúta í skólum Mikil fundahöld hafa verið hjá kennurum um allt land síðustu vikur eins og venjulega á haustin. Sjö svæðafélög Félags grunn- skólakennara halda haustþing að þessu sinni og eru aðalfundir fé- laganna haldnir í tengslum við þau. Fagleg málefni hafa sett mest- an svip á haustþingin í ár en á þeim eru flutt erindi um margvísleg áhugaverð efni sem eru ofarlega á baugi á sviði skóla- og uppeld- ismála og kynntar nýjungar í námsefni og kennslugögnum. Félag grunnskólakennara sem er fjölmennasta aðildarfélag Kennarasambands Íslands skiptist í tíu svæðafélög. Hlutverk þeirra er m.a. að halda trúnaðarmannanámskeið, félagsfundi og haustþing í samráði við stjórn FG. Þegar þetta er skrifað hafa fjögur svæðafélög þegar haldið haustþing, Bandalag kennara á Norðurlandi eystra sem hélt þing sitt í Borgarskóla á Húsavík 22. ágúst, Kennarasamband Vestfjarða sem hélt þing á Núpi í Dýrafirði dagana 23. - 24.ágúst, Kennara- samband Norðurlands vestra sem hélt þing á Laugarbakka 14. september og Kennarasamband Austurlands sem hélt sitt þing á Breiðdalsvík dagana 21. og 22. september. Þrjú svæðafélög halda haustþing í síðustu viku mánaðarins, Kennarafélag Suðurlands á Flúðum 27. og 28. september, Kennarafélag Vesturlands í Borg- arnesi 28. september og Kennarafélag Vestmanna- eyja sem heldur þing sitt í nýrri glæsilegri ráðstefnu- höll í Vestmannaeyjum laugardaginn 29. september. Kennarafélag Reykjavíkur, Kennarafélag Reykja- ness og Kennarafélag Kópavogs, Seltjarnarness og Kjósarsýslu halda ekki hefðbundin haustþing en hvöttu félagsmenn sína til að sækja Skólamálaþing Kennarasambands Íslands í staðinn. Haustþingum að ljúka Menntamálaráðuneytið hefur tilkynnt að umsóknir um námsorlof á framhalds-skólastigi fyrir skólaárið 2002-2003 þurfi að berast ráðuneytinu fyrir 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, stjórnendur framhaldsskóla eða skóla- meistarar fyrir hönd kennara viðkomandi skóla. Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti og skól- um. Vakin er athygli á því að eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, veffang: menntamalaraduneyti.is Rafræn umsóknareyðublöð fyrir námsorlof Kennarasamband Íslands hefur samið við þrjár lík- amsræktarstöðvar um verulegan afslátt fyrir félags- menn. Um er að ræða Planet Pulse sem býður mánaðar- kort á kr. 3.120, World Class Iceland sem býður árskort á kr. 27.690, og Baðhúsið sem býður konum 15% afslátt af öllum kortum. Nánari upplýsingar um tilboðin er að finna á heimasíðu Kennarasambandsins, www.ki.is Samið við líkamsræktar- stöðvar um afslátt fyrir félagsmenn KÍ 8

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.