Skólavarðan


Skólavarðan - 01.09.2001, Blaðsíða 5

Skólavarðan - 01.09.2001, Blaðsíða 5
Aðspurðir segja Íslendingar að konur séu þolinmóðari, umhyggju- samari og tilfinningasamari en karlar. Þeir telja hins vegar að kynin séu álíka hugrökk og metnaðargjörn en þau einkenni telja Kínverj- ar og Indverjar að eigi fyrst og fremst við um karla. Það er fróðlegt að bera saman þau einkenni sem ólíkar þjóðir telja að prýði kynin. Eftir því sem staða kvenna fer batnandi fækkar þeim einkennum sem fólk telur að eigi sérstaklega við um karla. Metnaður er ekki sérstaklega bundinn við karla eftir að fólk hefur séð konur á þjóðþingum, í stól forseta og meðal framkvæmdastjóra stærstu fyrirtækja. En á hinn bóginn sjá menn ekki karla þar sem þörf er fyrir þolinmæði og þar sem umhyggjusemi ræður ríkjum. Auðvitað þarf ekki að segja lesendum að allt fram á þennan dag hefur umhyggja eigin barna fyrst og fremst hvílt á mæðrunum meðan feðurnir sköffuðu. Hjúkrunarstörf eru svo til algerlega ein- okuð af konum og það sama á við um störf á leikskólum. Körlum fækkar meðal grunnskólakennara. Í almennum umræðum heyrist að þetta sé ósköp eðlilegt, karlar hafi ekki „í sér“ þolinmæðina, umhyggjusemina og tilfinningarnar. Þannig styður hvað annað, hugmyndir um eðli kynjanna fá stuðning úr atvinnulífinu og þær eru svo aftur hindrun fyrir þá karla sem vilja halda á óhefðbundin svið. Enda „eru kynin ólík“ svo að notaður sé vinsæll fjölmiðlafrasi. Þó virðast flestar athuganir benda til að þegar karlar og konur með svipaðan félagslegan bakgrunn standa frammi fyrir svipuðum vanda þá grípa kynin til svipaðra lausna. Konur í forstjórastólum reka fyrirtæki ósköp svip- að og karlar, markmiðið er ágóði hluthaf- anna og það er engin sérstök kvenleg leið að því marki. Karlar í leik- og grunnskól- um sinna börnunum ósköp svipað og konur, markmiðið er velferð þeirra og það er enginn sérstakur karlastígur að því marki. Þannig séð má einu gilda hvort starfs- menn skóla eru allir af sama kyni en tvær ástæður gera að verkum að það skiptir máli að þar séu bæði karlar og konur. Annars vegar virðist svo sem rekstur fyr- irtækja og stofnana gangi betur ef bæði kynin eru þar innan dyra. Ef til vill verður andrúmsloftið léttara, ef til vill skiptir fjölbreytnin máli. Hin ástæðan er sú að það á að vera hluti af uppeldi barnanna okkar að opna þeim dyr. Við viljum ekki að þau fari út í lífið með það veganesti að til séu störf sem þau geti ekki sinnt vegna þess að þau tilheyri ekki réttu kyni. Þetta er ekkert sem dugar að segja börnunum ef þau sjá ekki að það er rétt. Við höfum áreiðanlega náð mjög langt hvað varðar að veita stúlkum möguleika. Ég efast verulega um að það hvarfli í alvöru að dætrum mínum að það sé eitthvað sem þær geta ekki gert vegna þess að þær eru konur. Hins veg- ar er takmarkaðra í gangi hvað drengina varðar. Ég er alveg viss um að þegar drengir eru að velta lífsstarfi fyrir sér þá eru uppeldis- og umhyggjustörfin í mjög mörgum tilfellum ekki íhuguð. Það er ekki vegna þess að við höfum ekki sagt þeim að þeir geti gert hvað sem er. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir sjá varla karl í þessum störfum og við vitum að börnin gera ekki eins og við segjum heldur eins og við gerum. Þess vegna skuldum við börnunum okkar það að gera átak í að jafna kynjaskiptinguna í uppeldis- og umhyggjustörfum. Það er einfaldlega hluti af því að koma þeim til manns, að strákum ekki síður en stelp- um sé ljóst að þeir geta starfað við hvað sem er. Ingólfur V. Gíslason Höfundur er félagsfræðingur og starfsmaður Jafnréttisstofu, í sambúð og þriggja barna faðir. Þolinmóðu konurnar Ges task r i f6 Þótt meirihluti leikskólakennara í Danmörku sé konur, eins og annars staðar í veröldinni, er hlutfall karla í stéttinni hærra þar en í nokkru öðru landi. Hundrað ára hefð er fyrir karlkennurum í dönskum leikskólum. Árið 1899 hóf Chr. Engelstoft störf sem leikskólakennari, ef til vill sá fyrsti í heiminum. Fyrr á 19. öld menntaði Friedrich Fröbel reyndar jafnt konur sem karla til leikskólakennslu en trúlega starfaði það fólk fyrst og fremst sem nokkurs konar farandfræðarar, þ.e. ferðaðist um og út- breiddi hugmyndir Fröbels. Chr. Engelstoft lést árið 1945. Skömmu fyrir andlátið sagði hann í viðtali: „Ég trúi því að karlar séu ekkert síður hæfir en konur til að annast um börnin í leikskólunum en það er enginn vafi á að þeir skilja börn og bregðast við þeim á annan hátt en konur.“ Blaðamaðurinn spurði hvort hann ætti við að karlar væru afslappaðri í starfinu en Engelstoft þvertók fyrir það: „Uss nei, það er til fullt af móð- ursjúkum körlum. Sjálfur er ég hrifnari af konum, ekki af því að þær séu hætishót betri en karlar heldur einfaldlega vegna þess að þær eru öðruvísi!“ Fyrsti karlkyns leikskólakennarinn var Dani Frétt Teikning: Aksel Jörgensen

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.