Skólavarðan - 01.09.2001, Qupperneq 20
Hugarf lugsfundur
22
1. Leggja niður núverandi bekkjarkerfi
og taka upp aldursblandaða hópa.
2. Kennarar eiga í auknum mæli að fá
að kenna á þeim sviðum þar sem
þeir eru sterkastir.
3. Veita fjármagni í þróunarskóla sem
gera tilraunir með ólíkar gerðir
skólaskipulags.
4. Efla námsvitund nemenda - þeir
þurfa að læra að læra - þetta verði
markvisst fléttað inn í allt nám.
5. Styrkja kennaramenntun, sér-
staklega fjarnám.
6. Pakka niður stöðluðum vinnubókum
og fá nemendur til þess að vinna
meira að eigin frumkvæði og
skilningi.
7. Hugtakið læsi er aðeins bundið við
prentmiðla um þessar mundir - það
þarf að víkka út og ná til allra miðla
sem fólk notar.
8. Vinna markvisst að því að koma
endurmenntun inn í sjálfa skólana,
til að það sé hægt þurfa skólarnir að
fá fjármagn.
9. Hjálpa nemendum að mynda sér
skoðanir og rökræða - kenna
rökræðu.
10. Stofna skóla sem byggist á hug-
myndum kennara um hvað er góður
skóli en ekki ákveða það fyrirfram.
11. Setja af stað herferð í því skyni að
fræða foreldra um markmið og eðli
menntunar.
12. Kennaramenntastofnanir, mennta-
málaráðuneyti og fjármálaráðuneyti
myndi samstarfshóp um þrjá til fjóra
tilraunaskóla á Íslandi.
13. Hugsa þarf kennaramenntun upp á
nýtt og byggja hana á starfsreynslu.
14. Stórefla samstarf kennaramennta-
stofnana og grunnskóla.
15. Virkja þriðja aflið (grenndarsamfé-
lagið, atvinnulífið, kirkjuna, gamla
fólkið) í þágu skólanna.
16. Grunnskólar verði vel búin mennta-
setur, opin allt árið og þar starfi ekki
aðeins kennarar.
17. Stofnaður verði samráðsvettvangur
um að bæta líðan nemenda í
skólum.
18. Meiri fjárveitingar til skólakerfisins.
19. Draga fram rannsóknir á kennurum
og þróun fagvitundar til að varpa
ljósi á við hvaða skilyrði skólastarf
breytist.
20. Kennaramenntastofnanir og
kennarasamtök í samstarfi við
foreldra gefi út bók þar sem skil-
greind eru þau hugtök og orð sem
notuð eru í skólastarfi. Markmiðið
með slíkri útgáfu er að auka gagn-
kvæman skilning og greiða fyrir
samskiptum.
21. Fá tilraunaskóla sem byggjast á
þeim grunni sem er að verða til með
upplýsingabyltingunni (fjölvíðir
textar) - skóla sem byggjast á því að
við erum farin úr tvívídd í fjölvídd.
22. Leikskólakennarar verði ráðnir inn í
grunnskóla til að vinna í byrjenda-
kennslu.
23. Færa ábyrgð af námsmati algerlega
yfir á hendur hvers skóla samhliða
því að komið verði upp matsstofnun
(inspektorati).
24. Styðja betur við kennara í að
ígrunda kennslu sína.
25. Styðja kennara við að efla félags
þroska og samskiptahæfni
nemenda.
26. Sérskólinn verði lengdur og starfi tíu
til ellefu mánuði á ári.
27. Gerð verði tilraun í nokkrum skólum
með að opna stofur fyrir foreldra,
eins konar foreldramiðstöð, þar sem
námsefni liggur frammi, foreldraráð
kemur saman og námsráðgjafar
geta hitt foreldra.
28. Vinna þarf gegn þeirri andúð sem
uppeldisstéttir virðast hafa á sér-
fræðingum.
29. Endurskoða þarf kennaramenntun
og endurmenntun til þess að byggja
upp meiri kunnáttu í að vinna viss
störf inni í uppeldiskerfinu.
30. Uppeldisstéttir viðurkenni að fleiri
geta gert hlutina vel en þær. Kennar-
ar þurfa að viðurkenna sérfræði og
berjast fyrir aukinni fagkunnáttu.
31. Við verðum að læra af reynslunni, til
dæmis þeim þróunarverkefnum sem
reynsla er fengin af.
32. Efla listkennslu í skólum - gera þarf
miklu meira af því að fá listamenn út
í skólana.
33. Koma þarf mun betur til móts við
nemendur þar sem þeir standa
(„hætta að kenna nemendum þ sem
kunna þ“).
34. Flytja þarf áherslu frá því að kenna
námsgreinar yfir á menntun og upp-
eldi - horfa þarf á einstaklinginn og
þarfir hans.
35. Vinna þarf gegn daufyflishætti ...
efla umræðu um hvernig skóla við
viljum ... kennarar verða að læra að
kenna á skapandi hátt ... út frá að-
stæðum ... með hliðsjón af ólíkum
þörfum nemenda.
36. Litla gula hænan verði kölluð aftur
til sögunnar ... menn læra af því að
gera hlutina sjálfir ...
37. Draga þarf úr áherslu á greiningu og
vinna þess í stað heildstætt.
38. Taka þarf til hendi á unglingastiginu
... við verðum að koma með tillögur
sem byggjast á því að litið sé á tíma-
bilið frá þrettán til átján ára sem sér-
staka heild ... verðum að fara að gera
eitthvað fyrir þennan aldurshóp svo
að nemendur fái í auknum mæli við-
fangsefni við hæfi og geti fengist við
námið hver með sínum hraða ... auka
þarf verklega menntun á þessu ald-
ursstigi ... við eigum ekki að gera
sömu kröfur til allra.
39. Efla þarf verklega kennslu, sérstak-
lega á unglingastigi ... við þurfum að
virkja umhverfi og atvinnulíf í þágu
skólans.
40. Endurskoða þarf ráðningarferli og
hætta að ráða kennara og stjórnend-
ur á flokkspólitískum forsendum.
41. Nota þarf hrós mun oftar en gert er
... hrósa kennurum og nemendum ...
beina athyglinni að jákvæðum
atriðum.
42. Draga þarf fram rannsóknir sem
sýna jákvæðar hliðar á skólanum.
43. Stórauka þarf ráðgjöf til skóla um
það hvernig unnt er að standa að
sjálfsmati.
44. Afnema lögverndunarlögin.
45. Auka áherslu á siðræn gildi og
siðferðisþroska.
46. Kalla þarf fólk til ábyrgðar vegna
hlutskiptis fósturbarna sem eiga
víða undir högg að sækja.
47. Kennslufræðin þarf uppreisn æru ...
uppeldis- og kennslufræðin þarf að
verða það vopn sem hún hefur verið í
gegnum tíðina.
48. Auka virðingu fyrir nemendum.
49. Leita verður allra leiða til að koma í
veg fyrir ofuráhrif ómerkilegra
myndbanda og tölvuleikja.
50. Foreldrum yngstu barnanna verði
gert að koma reglulega með þau á
skólasöfnin til að fá lánaðar bækur.
51. Við þurfum að halda með skólanum.
52. Afnema þarf aldursmörk við inntöku
í grunnskóla ... fá börnin inn í skól-
ana þegar þau eru tilbúin ... sveigj-
anleg skólabyrjun og sveigjanleg
skólalok.
53. Stórauka þarf áherslu á ritun í
íslenskukennslu.
54. Stofna þarf embætti farkennara á
Íslandi ... úrvalskennara sem fara á
milli skóla.
55. Dustum rykið af prófgráðunum
okkar og þekjum veggina í skólunum
með þeim!
56. Við verðum að búa nemendur undir
nýtt vitundarumhverfi.
57. Stofna þarf málgagn kennara ... efla
þarf faglega umræðu ... endurreisa
þarf Ný menntamál.
58. Fylla þarf það skarð sem mæður
skildu eftir sig þegar þær fóru út af
heimilunum.
59. Kennaramenntastofnanir þurfa að
taka upp merkið.
60. Efla þarf rannsóknir kennara sjálfra í
grunnskólanum.
61. Bekkjarmiðað nám þarf að víkja fyrir
einstaklingsmiðuðu og kennarar
eiga að mynda teymi um kennsluna.
62. Kennarar við kennaramenntastofn-
anir sinni rannsóknaskyldu sinni inni
í grunnskólanum.
63. Eflum Námsgagnastofnun.
64. Námsgagnastofnun þarf að byggja
útgáfu sína á nýjustu rannsóknanið
urstöðum um nám og kennslu.
65. Stórefla þarf samráð þjónustustofn-
ana í skólakerfinu ... samráðsþing ...
uppeldismálaþing ...
66. Nýta þarf þekkingu kennara á eftir-
launum.
67. Hver skóli felli inn í starfsáætlun
sína fjármagn til starfsemi foreldra-
félags, foreldraráðs, samstarfsfunda
kennara, nemenda og foreldra.
68. 26. nóvember verði samráðsdagur
skólakerfisins!!!
Fimmtíu leiðir (og nokkrar til viðbótar) til að bæta grunnskólann: