Ský - 01.07.1990, Page 22
ský
20
julio cortózor
LEIÐBEININGAR UM ÓTTA MEÐ
NOKKRUM SKÝRIN G ARDÆMUM
í þorpi einu í Skotlandi fást bækur meö auöri síöu einhvers staöar í
lesmálinu. Ef lesandinn kemur aö þessari blaösíöu á slaginu þrjú eftir
hádegi deyr hann.
Allt fram á 19. öld vissu fáeinir útvaldir um staö viö Quirinaltorg
í Róm sem hefur þá náttúru á fullu tungli aö þaöan sjást stytturnar af
tvíburunum Kastor og Pollúx hreyfast ofurhægt þar sem þeir reyna aö
hemja prjónandi hesta sína.
Viö endimörk strandarinnar í Amalfi er flóögaröur sem gengur út
í sjóinn og nóttina. Utan viö ysta ljóskeriö heyrist hundur gelta.
Maöur nokkur er aö setja tannkrem á tannburstann sinn þegar
hann sér allt í einu aö á burstanum liggur örsmá kona. Hún gæti veriö
úr kóral eöa máluöu deigi.
Þegar skápur er opnaöur til aö ná í skyrtu dettur út gamalt dagatal,
grotnuð blööin molna sundur svo óteljandi skítug pappírsfiörildi
þyrlast yfir hvít fötin.
Farandsali nokkur fann skyndilega fyrir stingandi sársauka í vinstri
úlnliö, beint undir armbandsúrinu. Þegar hann reif úriö af sér tók
honum aö blæöa: í sárinu gat aö líta för eftir fíngeröar tennur.
Læknirinn lætur skoöuninni lokiö og fullvissar okkur um aö allt sé
í stakasta lagi. Hann sest viö skrifboröiö sitt til aö fylla út iyfseðilinn
og djúp og vingjarnleg rödd hans segir okkur deili á meöulunum. Ööm
hverju lítur hann upp ogbrosir hughreystandi til okkar. Þetta er ekkert
til aö hafa áhyggjur af, aö viku liðinni veröum viö orðin jafngóö. Viö