Ský - 01.07.1990, Blaðsíða 26

Ský - 01.07.1990, Blaðsíða 26
julio cortózor ÁVARP BJARNARINS Ég er björninn í lögnum hússins, ég smýg upp lagnirnar á hljóðum stundum, heitavatnsrörin, hitaveituleiöslurnar, loftræstistokkana, ég fer eftir leiðslunum frá íbúð til íbúðar og ég er björninn sem býr í lögnunum. Ég býst við aö ég sé vel Iiðinn því feldur minn heldur pípunum hreinum, linnulaust renn ég um rörin og ekkert þykir mér skemmti- legra en aö flakka milli hæða, smjúga lagnirnar. Ég á það til aö stinga loppunni útum krana svo stelpan á þriöju hæðinni æpir upp að hún hafi brennt sig og stundum ræski ég mig bakviö eldavélina á annarri hæö svo Vilhelmína eldabuska fárast yfir loftræstingunni. Á nóttunni hef ég hljótt um mig og það er einmitt þá sem ég er liprastur, ég gægist upp um strompinn til aö gá hvort ég sjái ekki tunglið dansa fyrir ofan mig og síðan renni ég mér í einu hendingskasti alveg nibur í katlana í kjallaranum. Og þegar sumariö kemur syndi ég á kvöldin í vatnsþrónni innanum stjörnurnar og ég þvæ mér fyrst með annarri loppunni, svo með hinni og seinast meö báðum og þá ræö ég mér ekki fyrir gleöi. Þvínæst bruna ég kumrandi af ánægju gegnum öll rör í húsinu svo íbúarnir bylta sér í rúmunum og blóta ástandinu á lögnunum. Sumir kveikja ljós hjá sér og hripa eitthvað á miba til að minna sig á aö nefna þetta við húsvöröinn næst þegarþeir rekast á hann. Ég finn mér krana, alltaf er einhver sem ekki hefur skrúfaö nógu vel fyrir, og þar rek ég út nefið og virði fýrir mér myrkur herbergjanna þar sem þær búa þessar verur sem ekki geta ferðast eftir lögnunum og ég kenni svolítið í brjósti

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1193

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.