Ský - 01.11.1992, Side 35

Ský - 01.11.1992, Side 35
sigurlaugur elíasson BRÉF ÚR STEINBYGGÐ Hérna er hann þá þessi blessaöi garður, steinarnir svona stórir vegna steinsmiðjunnar eina vinnustaöarins í þorpinu, nóg er af grjótinu og nógur tíminn lengi vel, nægt landrýmið. Þetta 30 — 40 fermetrar flestir og hægt að skrá sæmilega ítarlega ævisögu en oftast eru þama bara örfá miskunnugleg orð auk nafns og ártala, það vantar ævisagnaritara í plássið, tilfinnanlega finnst sumum og gnægö er af grjótinu, næg víðáttan og nógir skoðendurnir á sumrin. Steinarnir allir flatir mest með kannski 10 gráðu halla og sumsstaðar eru stafirnir höggnir svo feimnislega smáir að maður verður að skríða inn undir miðjuna eða nota kíki til að geta lesið, eins og hérna: . Gubmundur Steinsson bóndi f. 1909 d. 1986 Logib þib sinueldar Ásókn aðkomenda mun brátt breyta þessu, ekki einungis að garðurinn breiði sig yfir eyöijarðimar í kring (hann er þegar farinn að slaga upp í flatarmál þorpsins) heldur fara áletranimar nú stækkandi og líklega gera þeir samning við Rithöfundasambandiö bráðlega. En hér er ég allavega kom- inn með fyrstu handritin, hef tekið mér hvíld frá prófarka- lestrinum rölti milli steina í náttleysunni fyrstur ferðalanga. — Það er unnið á vöktum í steinsmiðjunni núoröið.

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1193

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.