Ský - 01.11.1992, Síða 38
li ö
a
Dagur er eitt af okkar þekktustu ljóðskáldum,
seinast kom út eftir hann heildarsafniö
Glímuskjálfti. Maurice Maeterlinck(1862—
1949) fæddist í Belgíu en flutti til Parísar 1885 og
hafði mikil áhrif á franskar bókmenntir. Einna
helst er hann þekktur fyrir leikhúsverk í anda
symbólismans. Úlfhildur Dagsdóttir hefur gefið
út ljóðabókina GVEK (Hnignun er lífsmáti),
1991. Derek Manon er ljóðskáld frá Norður-
írlandi. Rithöfundurinn Elias Canetti er Nóbels-
verðlaunahafi, fæddur í Búlgaríu, uppalinn í
Vínarborg og Manchester. Atli Harðarson er
heimspekingur. Jón Hallur Stefánsson hefur
gefið út ljóð og lög, auk þess sem hann fæst viö
þýðingar. Stefán Snævarr er heimspekingur og
ljóðskáld, búsettur í Björgvin. Ralf Thenior er
skáld frá Þýskalandi. Sveinn Yngvi Egilsson
hefur áður birt ljóð í tímaritum. Sigurlaugur
Elíasson er myndlistarmaður og hefur sent frá sér
fjórar ljóöabækur, seinast Jaspís, 1991. Ljósmynd
á kápu tók Pétur Eiðsson. Mexíkanski
myndlistarmaðurinn José Guadalupe Posada
(1852—1913) risti myndina á annarri síðu.