Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1887, Side 107

Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1887, Side 107
103 eru þær orðnar meira virði, en þær voru heima, og þegar þar kemur, bætiat ofan á vorð- ið, sem þær höfðu, tlutningskaupið, og ágóði kaupmannanna, sem verzla þar með þær, svo þær vega þá miklu þyngra á vogaskálinni móti aðfluttu vörunum, en þær gjörðu áður. Verzlunin milli landauna vegur sigávallt upp þegar tekin eru fleiri áríröð. Eitt ein- stakt ár getur Island að sjálfsögðu staðið í skuld við útlönd, eða flutt meira inn en það í raun rjettri borgar með útfluttum vörum. þetta getur gengið í 2 ár, og kannske 3. í>að getur samt ekki hjá því farið, að einhverntíma kemur að skuldadögunum, eins og þegar einstakir menn eiga í hlut, og einhvern tíma, og það áður en langt líður, þarf að jafna hallann upp. Að taka allt af til láns, og borga ekki, helzt engu landi uppi, og að sama land flytji allt af meira inn, en það flytur út, er óhugsanlegt. |>ess vegna hljóta aðfluttar vörur og aðfluttir peningar alls, að svara til útfluttra vara og útfluttra peninga í raun og veru, hvað sem skýrsluruar svo segja, þegar maður hefur lengra tímabil fyrir sjer. 1880—1882 var aðflutt vara (sbr. Stjt. C-deild 1885 bls. 139) árlega hjer um bil 350 þúsund kr. hærri en útflutt vara, til þess að finna þetta út, vóru með útfluttum vörum taldar póstávísanir, danska tillagið, og vextir af vitlendum skuldabrjefum og öllu þessu jafnað móti aðfluttu vörunni. jpessar 350 þús. krónur geta legið í fragt undir út- fluttu vörurnar til útlanda, ágóða kaupmanna af þeim o. s. frv. svo það er ekkert athugavert við þær. Arin 1883—1885 voru aðfluttar vörur alls öll árin .... 18.073 þús. kr. og vitfluttar vörur alls öll árin.......................................... 14.273 — — Mismunur 3.800 þús. kr. Uppí þennan mismun koma póstávísanir fyrir árin 1883—85 906.000 kr. vextir af útlendum skuldabrjefum (ágiskaðir)................. 120.000 — skuldajöfnuður (o: danska tillagið í 3 ár)................... 277.500 — 1.303 þús. kr. þá vantar samt 2.497 þús. kr. eða hjer um bil 812 þús. krónur um árið, til að útfluttar vörur vegi á pappírnum á móti aðfluttum þessi ár. Fyrrum og nú- Að síðustu skulum vjer enda línur þessar með því, að rifja upp í mjög stuttu máli, hvaða umfang verzlun vor hefir haft í ýmsu tilliti áður, og hvaða umfang hún hefur nú. Að þessi samanburður er svo takmarkaður kemur af því, að skýrslur vorar hafa verið gefnar út bæði seint og dreift, og að aldrei hefur verið gengið almennilega í gegnum þær. Um verðið á aðfluttum og útfluttum vörum frá 1855—1879 hefur aldrei verið hirt; því atrið- inu, sem mestur gaumur er gefinn annarstaðar hefur verið veitt minnst eptirtektin hjer. Samt sem áður eru þó til upplýsingar um þetta fyrir 3 ár áður, nefnilega árin 1784, þær upplýsingar eru teknar eptir töflum þeim, sem prentaðar eru í viðbæti við tilsk. 13. júní 1787, bls. 139; árið 1816, tekr.ar eptir skýrslu rentukammersins, sem lögð var fyrir konung um verzlunina á Jslandi 1816, og árið 1849 tekið eptir Hkýrslum, sem fengnar voru í hendur nefnd þeirri, er skipuð var til að yfirvega frumvarp til verzlunarlaga fyrir Island. Arin Verð á aðfl. vörum kr. Verð á útfl. vörum kr. Ramtals kr. 1784 378,984 488,844 867,828 1816 2,200,000 3,455,800 5,655,800 1849 1,182,426 2,158,934 3,341,360 1880 5,727.000 6,744,000 12,471,000 1881- -85 6,110,000 5,554,000 11,664,000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild
https://timarit.is/publication/1202

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.