Núkynslóð - 01.01.1968, Page 11

Núkynslóð - 01.01.1968, Page 11
enginn virtist veita mér athygli eöa heyra sönginn ö Hoppf- binda ö Hoppf- binda E>ú ert svo góö svo ég fór aö niöurgröfnu klósetttröppunum og reyndi að sjá inn um hálfopna huröina en ég sá ekkert athugavert og söng- urinn hélt áfram ö Hoppf- binda ó Hoppf- binda ö Hoppf- binda Þú ert svo góð Tra la la la la Tra la la la la Tra la la la la Sú lf lei ég áræddi að fara niður tröppurnar en þá hækkaði söngurinn og strákurinn sem setiö haföi uppi á ofninum kom þjótandi út og leit ekki á mig ö Hoppf- binda gat veriö aö hann heyrði ekkert? og ég dokaði við en fór svo alveg niður tröppmmar og ætlaöi inn en þá hækkaöi söngur- inn ó Hoppf* binda Þú ert svo góö ' og dyrum var skellt og svo var hlegið - ö Hoppf - ha - ha - ha - ha - ha - ha - ha - ha — hahahahahahahahahahahahaha hahahaha - hó hæhæhæhæhæ - murra - og sungið áfram ó Hoppf- binda ég hentist aftur upp tröppumar og einhver hlaut aö hafa geng- ið af vitinu og ég vissi aö Dabbi f bílskúmum var hrekkjusvíh og fantur og ræfill og asni og fífl en aldrei haföi mér komið til hugar aö hann gæti sungið auk þess sem ég var eh... — Áf hverju hangirðu svona, sagði rödd vinar mfns fyrir aftan mig. — Ég hangi ekkert, ég er bara að hlusta á sönginn. — Ha, hvaða söng. Heyrirðu söng? — Já, það er cinhver að syngja inni á klósetti. — Syngja inni á klósetti? — Já, syngja Ö Hoppf- binda. Heyrirðu ekki ? — Hvað, Hoppf-binda. Ertuvitlaus? Lengri er minningin ekki. Hvort ég vaknaði hér eða vakan breytti svo algerlega um stefnu að framhald atburðanna er tengt einhverri annarri sjálfstæðri minningu veit ég ekki. Atvikið lifir aðeins f huga míhum sem óræður fyrirburður úr svefni eða vöku. Aðrar voru þær stundir er ég lá f rúm mfnu og beið svefns- ins en gat ekki sofnað af einhverjum ástæðum: augnlok mfn voru ekki orðin nægilega þung, spenningur vegna fyrirheits komandi dags, angist mistaka liðins dags; eitthvað sem gár- aði yfirborð vökunnar og tafði fyrir lognstreymi svefnsins, að ég komst fnæmari snertingu við líðandi stund, en þegar ég dreifði hugugnum f leikjum dagsins; tfmi minn leið hægara: heyrn mfn og lyktskyn varð næmara. Skyndilega heyrði ég tif vekjaraklukkunnar falla gegnum jafnhlið eyrans sem áður óþekkt hljóð: brak f viði og skrjáf veðra utan gluggans gátu vakið ótta minn sem eitthvað nútilkomið og óeðlilegt; ósjálf- ráttþandi égheym mfnaog beiðeftir hverjunýju hljóði: reyndi að greina uppruna þess og ástæðu og eðli og gerð, jafnveL skrjáf f sængurfótum mfnum þegar ég hagræddi fætinum gat orðið upphaf óteljandi vangaveltna; heyrn mfn hafði slitnað úr sambandi við aðra líkamshluta og starfaði sjálfstætt. Augu mfn leituðu hvfldar en gátu ekki lokast; ég sá ljósskuggarúð- unnar falla frá glugganum og yfir á mótlægan veg þegar bíl var ekið niður götuna ; ég fylgdi ferðalagi skuggans sem mjakaðist hægt upp vegginn en þaut svo yfir loftið eins og fældur hestur, spretthlaupari f viðbragði, villidýr við skot- hvell, bolti við spark, flugeldur úr skothólk: þannig vatt hugsun mfn sig upp f samhengislausar tengslmyndir sem urðu draumum mfnum tileinkaðar og lognstreymi svefns- ins hófst:

x

Núkynslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Núkynslóð
https://timarit.is/publication/1204

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.