Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 10
Auglýst eftir umsóknum í Vinnustaðanámssjóð.
Rannís auglýsir eftir styrkjum í Vinnustaðanámssjóð fyrir
vinnustaðanám sem á sér stað á almanaksárinu 2016.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 15. nóvember 2016.
Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og
stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem
er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá
framhaldsskóla. Hægt er að sækja um allt að 24 vikur í
vinnustaðanámi fyrir hvern nema á hvorum árshelmingi
fyrir sig, eða alls 48 vikur á árinu.
Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.
Nánari upplýsingar gefur
Jón Svanur Jóhannsson, verkefnastjóri
innlendra menntasjóða, sími 515 5820,
jon.svanur.johannsson@rannis.is
Vinnustaðanámssjóður
Umsóknarfrestur til 15. nóvember
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Leigjendur eru
ánægðir hjá okkur
almennaleigufelagid.is
Langtíma
leigusamningur
Sveigjanleiki
24/7 þjónusta
Niðurstöður úr nýrri þjónustukönnun Almenna
leigufélagsins* sýna að 87% viðskiptavina eru
ánægð með að leigja hjá félaginu.
Við erum stolt af niðurstöðunni
og munum halda áfram að tryggja
einstaklingum og fjölskyldum á
leigumarkaði húsnæðisöryggi,
sveigjanleika og enn betri þjónustu.
Ánægð/ur – 87,1 %
Hvorki né – 8,4 %
Óánægð/ur – 4,5 %
*Könnunin var framkvæmd af Gallup fyrir Almenna leigufélagið dagana 16. - 29. júní 2016.
8,4 %
4,5 %
87,1 %
Tyrkland Árið 2030 er talið að eftir-
spurn eftir orku nái hámarki hér á
jörð, þegar deilt er niður á mann-
fjölda. Þetta er spádómur Alþjóða-
orkumálaráðsins, sem þessa dagana
heldur ársfund sinn í Istanbúl.
„Það er alveg ljóst að við erum
að upplifa miklar breytingar sem
munu hafa í för með sér að heimur-
inn verði allt annar en hann hefur
verið fyrir orkuiðnaðinn,“ sagði
Ged Davis, framkvæmdastjóri hjá
Alþjóðaorkumálaráðinu, þegar
skýrslan var kynnt. „Til þessa hafa
menn talað um olíumagnshámark
en nú er þetta að breytast og helstu
orkusérfræðingar eru farnir að velta
fyrir sér afleiðingunum af hámarks-
eftirspurn.“
Á ráðstefnunni, sem hófst í gær
og stendur fram eftir vikunni, komu
saman leiðtogar Rússlands, Tyrk-
lands og fleiri ríkja ásamt framá-
mönnum í orkuiðnaðinum.
Þeir Vladimír Pútín Rússlands-
forseti og Recep Tayyip Erdogan,
forseti Tyrklands, stefna á víðtækt
samstarf ríkjanna tveggja í orku-
málum. Meðal annars verði nú lagt
allt kapp á að leggja gasleiðslu frá
Rússlandi undir Svartahafið og til
Tyrklands, en þaðan verði hægt að
flytja rússneskt gas til Evrópu.
Þá skýrði Sádi-Arabía frá því að í
næsta mánuði sé stefnt að því að fá
olíuframleiðsluríki til þess að draga
úr framleiðslunni.
Í skýrslu ráðsins segir að enginn
hægðarleikur verði að ná fram því
markmiði að hitastig jarðar hækki
aðeins um tvær gráður. Til þess þurfi
ríki heims að leggja mun meira af
mörkum en þau hafa skuldbundið
sig til nú þegar.
Orkuþörf mannkyns hefur ára-
tugum saman vaxið jafnt og þétt.
Síðan 1970 hefur hún tvöfaldast.
Þetta er samt að breytast verulega,
samkvæmt sérfræðingum ráðsins.
Þannig má búast við því að eftir-
spurn eftir raforku muni tvöfaldast
til ársins 2060, en þá muni sólar- og
vindorkuframleiðsla sjá mann-
kyninu fyrir 20 til 39 prósentum af
orkuþörfinni, í staðinn fyrir aðeins
fjórum prósentum eins og nú er.
Í skýrslunni eru dregnar upp
þrenns konar myndir af framtíð
orkumála, og er þá horft til ársins
2060.
Fyrsta sviðsmyndin er nefnd
Nútímadjass, þar sem markaðsöflin
ráða ferðinni, nýsköpun er áberandi
en allt er frekar óútreiknanlegt.
Önnur sviðsmynd nefnist í skýrsl-
unni Ófullgerð sinfónía og þar er átt
við að skynsamleg og sjálfbær hag-
vaxtarlíkön nái yfirhöndinni þann-
ig að smám saman dragi úr kolefnis-
notkun.
Sú þriðja nefnist svo Hart rokk
þar sem skoðaðar eru afleiðingar
þess að skammtímasjónarmið ráði
áfram ferðinni með ósjálfbærum
hagvexti. gudsteinn@frettabladid.is
Spá því að orkuþörf
nái brátt hámarki
Orkuframleiðendur telja að árið 2030 nái eftispurn eftir orku hámarki. Þá telja
þeir að árið 2060 sjái sólar- og vindorka mannkyninu fyrir 20 til 39 prósentum
af orkuþörfinni. Þetta er spá Alþjóðaorkumálaráðsins sem fundar í Istanbúl.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, meðal
annarra leiðtoga á ráðstefnu Alþjóðaorkumálaráðsins í Tyrklandi í gær.
NoRdicPhoTos/AFP
Samfélag Andrúmsloftið á Strönd-
um er öðruvísi þessa dagana enda
hefjast tökur á tveimur atriðum á
Hollywood-stórmyndinni Justice
League í dag. Rúmlega 200 manna
lið er komið til Djúpuvíkur þar
sem tökur fara fram. Svartir Range
Rover-ar og aðrir lúxusbílar keyra
nú um vegina og þyrlur ferja fólk
til og frá. Undirbúningur fyrir þessi
tvö atriði hefur gengið vel sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
og eru Hollywood-starfsmenn
sagðir ánægðir með samstarfið við
íslenska kollega sína.
Fjölskyldur sem sóttu í friðinn og
einveruna vestur á fjörðum fengu
lítinn frið um helgina. Hávaði frá
þyrlum og aukin umferð lúxusbíla
rufu þann frið. Þeir Íslendingar sem
vinna að myndinni eru látnir skrifa
undir þagnareið og mega því ekki
tjá sig um framvindu mála.
Kvikmyndastjörnurnar Jason
Momoa og William Dafoe eru
komnar norður en ekki er vitað
hvenær Ben Affleck, sem leikur Bat-
man, kemur til landsins en hann tók
þátt í að leiklesa handrit Good Will
Hunting um helgina í New York.
Öryggisgæsla er töluverð á
Djúpuvík en þó fékk kvikmynda-
gerðarmaðurinn William Short, sem
staddur er hér á landi til að gera litla
heimildarmynd um lokabardaga
Grettis Ásmundarsonar, að sitja í
mat með þeim sem eru að taka upp
myndina. Hann greindi frá þessu á
Facebook-síðu sinni en maturinn er
eldaður af Múlakaffi.
Jason Momoa, sem leikur Aqua-
man, birti myndir á Instagram-
reikningi sínum af Djúpuvík og
dásamaði þar haustfegurðina.
Momoa er þekktastur fyrir hlut-
verk sitt í Baywatch og Game of
Thrones þar sem hann lék Khal
Drogo. William Dafoe var gómaður í
miðbæ Reykjavíkur fyrir utan Kalda
bar en Dafoe leikur vin Aquaman,
sem kallaður er Nuidis Vulko. Dafoe
er gamalreyndur leikari og var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í Platoon árið 1986.
Stefnt er að því að Justice League
verði jólamyndin árið 2017, leik-
stjóri er Zack Snyder. – bbh
Ofurhetjurnar komnar
Ben Affleck leikur Batman í kvikmynd-
inni Justice League.
Samfélag „Ég vona auðvitað að
þarna sé alveg fullt af peningum
en held að innistæðan sé nú bara
nokkrar krónur,“ segir Berglind Íris
Hansdóttir en nafn hennar kemur
fyrir í gleymdum bankareikningum
Danmerkur. Þarlend skattayfirvöld
auglýstu nýverið eftir fólki sem
hugsanlega ætti inni fé á sparnaðar-
reikningum í dönskum bönkum.
Reikningarnir hafa ekki verið
hreyfðir í yfir tvö ár. Samkvæmt
upplýsingum sem dönsk skattayfir-
völd hafa fengið eru upphæðirnar
inni á sumum reikningum veru-
legar. Þannig er hæsta innistæðan
hátt í hundrað milljónir íslenskra
króna. „Ég hafði ekki hugmynd um
þennan reikning og veit ekkert hvað
þetta er mikið. Í raun veit ég ekkert
meira en það sem stendur á vísi.is,“
segir Berglind. – bbh
Vonandi fullt af peningum
Berglind Íris
hansdóttir
handboltakona
Það er alveg ljóst að
við erum að upplifa
miklar breytingar sem munu
hafa í för með sér að heimur-
inn verður allt annar en
hann hefur verið fyrir
orkuiðnaðinn.
Ged Davis, framkvæmdastjóri hjá
Alþjóðaorkumálaráðinu
1 1 . o k T ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U d a g U r10 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a Ð I Ð
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
F
-6
F
E
4
1
A
D
F
-6
E
A
8
1
A
D
F
-6
D
6
C
1
A
D
F
-6
C
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K