Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 19
MAX1 selur finnsku gæðadekk- in frá Nokian sem eru sérhönnuð fyrir notkun á norðlægum slóðum. MAX1 leggur áherslu á að veita viðskiptavinum ráðgjöf við val á dekkjum því dekk eru flókin vara og mismunandi hvað hentar hverj- um og einum. Ökutæki á lélegum dekkjum líklegri til umferðaróhappa „Vanmat ökumanna á ástandi dekkja getur verið stórvarasamt. Fólk kemur gjarnan með dekkin á haustin til þess að skipta fyrir vet- urinn og þá kemur í ljós að munst- ur dekkjanna er komið undir slit- mörk til þess að flokkast sem gagnleg vetrardekk. Dekkin líta ágætlega út en svo þegar mynstur- dýptin er mæld kemur annað í ljós. Öll dekk frá Nokian eru með merk- ingu á miðju dekksins sem segir til um slit þess. Þegar 4mm eru eftir af mynstri dekksins hverfur snjó- táknið sem þýðir að dekkið er ekki lengur öruggt í snjó. Eftir því sem mynstur verður minna minnkar grip í bleytu og snjó. Til viðbótar er mikilvægt að fólk fylgist með dekkjaþrýstingnum og kanni hann reglulega til þess að hámarka nýt- ingu dekkja. Það er auk þess gott að skipta dekkjunum á milli fram og aftur til þess að jafna slit dekkj- anna“, segir Sigurjón Árni Ólafs- son, framkvæmdarstjóri MAX1. MAX1 hraðþjónusta MAX1 Bílavaktin er hraðþjón- usta fyrir alla bíla. „Við seljum og skiptum um dekk, við skiptum um smurolíu, olíusíur, rafgeyma, bremsur, dempara, rúðuþurrkur og perur og leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum okkar fyrsta flokks þjónustu. Við erum á fjór- um stöðum á höfuðborgarsvæð- inu; Bíldshöfða 5a, Dalshrauni 5 í Hafnarfirði, Jafnaseli 6 í Breið- holti og með smurstöð í Knarr- arvogi 2 svo við erum með góða dreifingu á stöðvum fyrir Stór- Reykjavíkursvæðið,“ segir Sigur- jón. Mika Häkkinen og Nokian tyres Fyrr á þessu ári var haldin sölu- keppni NOKIAN APPROVED DEALER á Íslandi þar sem sú stöð sem skilaði mestri söluaukningu á tilteknu tímabili vann. Það var til mikils að vinna því tveir starfs- menn sigurstöðvarinnar fengu í verðlaun ökuferð með Mika Häkk- inen. Það voru þeir Bjarni Jóhann- es Mark Henrysson og Jón Þór Einarsson sem fóru út til Brat- islava fyrir hönd MAX1 nú nýlega. Samstarf Mika Häkkinen og Nokian Tyres Nokian Tyres hafa samið við Mika Häkkinen, tvöfaldan heimsmeist- ara í Formúlu 1, um að vera tals- maður Nokian dekkja næstu árin. Häkkinen mun taka þátt í ýmsum verkefnum svo sem verkefnum tengdum öruggum akstri. Þú getur treyst Nokian gæða- dekkjunum „Það er mikilvægt að halda áfram að læra og þróa nýja hluti til þess að halda áfram að vera á toppn- um. Þetta á sérlega vel við Nok- ian dekkjaframleiðandann þar sem hugvit og þróunarvinna hefur tryggt að þeir halda sífellt áfram að vera fremstir á sínu sviði þegar kemur að öryggi dekkja. Það er mikilvægt fyrir mig að geta treyst dekkjunum og eiginleikum þeirra í krefjandi aðstæðum. Nokian dekk- in eru sérframleidd fyrir norðlæg- ar slóðir og ég veit að ég get treyst þeim í hvaða aðstæðum sem er. Nokian er hágæða framleiðandi og ég hlakka mikið til samstarfs- ins“, segir Mika Häkkinen. Akstur í ýmsum aðstæðum Jón og Bjarni fóru hvor tvo hringi með Formúlu 1 heims- meistaranum fyrrverandi og gerði hann sér lítið fyrir og steig bílinn í yfir 250 km hraða á hröðustu köflunum. Á meðan spjallaði hann hinn rólegasti við farþegana og minnti þá á að brosa í myndavélarnar sem stað- settar voru umhverfis brautina. Strákarnir voru sammála um að Mika Häkkinen væri afskaplega almennilegur og algjörlega niðri á jörðinni þrátt fyrir allt sem hann hefur afrekað. Til viðbótar við ökuferðina með heimsmeistaranum fóru Jón og Bjarni í akstur í bleytu þar sem farið var yfir mikilvægi þess að vera á góðum dekkjum og hvernig skuli bregðast við í slíkum aðstæðum. Keyrt var á Nokian sumardekkjum og var hemlunarlengd og viðbrögð dekkjanna könnuð á blautu mal- bikinu. Nokian dekkin eru sérframleidd fyrir norð- lægar slóðir og ég veit að ég get treyst þeim í hvaða aðstæðum sem er. Mika Häkkinen Vetrardekk 11. október 2016 KyNNiNgarblað MAX1 | N1 | Arctic Trucks| Vaka MaX1 hefur nýlega endurnýjað vélabúnað til þess að tryggja áfram gæðaþjón- ustu. Nýjar umfelgunar- og jafnvægisstillingarvélar af bestu gerð eru nú á öllum stöðvum MaX1. Hér sést Jón Þór Einarsson að störfum. MaX1 leggur áherslu á að veita viðskiptavinum ráðgjöf við val á dekkjum því dekk eru flókin vara og mismunandi hvað hentar hverjum og einum. Hluti ágóða af sölu Nokian dekkja rennur til Krabbameinsfélagsins í október og nóvember. Starfsmenn Max1 með Mika Häkkinen. Nokian eru meðal bestu vetrar- og nagladekkja ár eftir ár Finnsku Nokian gæðadekkin fást í miklu úrvali hjá MAX1 Bílavaktinni. MAX1 rekur fjórar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Nokian Tyres hafa samið við Mika Häkkinen, tvöfaldan heimsmeistara í Formúlu 1, um að vera talsmaður Nokian dekkja næstu árin. 1 1 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D F -9 2 7 4 1 A D F -9 1 3 8 1 A D F -8 F F C 1 A D F -8 E C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.