Fréttablaðið - 11.10.2016, Qupperneq 28
Druslubílaferðir eru skemmtilegir
viðburðir hjá hópi fólks sem inni-
heldur að stærstum hluta starfs-
menn Arctic Trucks, vini þeirra og
kunningja. Um er að ræða árlegar
jeppaferðir sem yfirleitt eru skipu-
lagðar í byrjun mars en jepparn-
ir sem fá að fljóta með eru mikið
breyttir, gamlir og í sumum tilfell-
um frekar lélegir að sögn þeirra
Kristins Magnússonar og Baldurs
Gunnarssonar, tveggja meðlima
hópsins. „Það þykir betra að það sé
líklegt að bílarnir verði með vesen
en þeir verða að drífa vel. Mottóið
er: „Þeir sem bila verða dregnir,
þeir sem drífa ekki verða skildir
eftir“. Þeir sem koma í þessa ferð
eru oftast þeir sömu og smíðuðu
bílana svo þeir eru vanir að gera
við og að sjálfsögðu fá menn aðstoð
ef þess þarf,“ segir Kristinn.
Baldur nefnir dæmi um jeppa
sem farið hafa með undanfarin ár.
„Þar má nefna 1947 árgerð af blæju
Willys með 400 hestafla V-áttu,
gamla súkku á 38 tommu dekkj-
um með V6 suzuki vél, Hilux sem
búið var að setja ofan á grind og
vélbúnað úr LC120 V6. Einnig hafa
komið með stór Bronco á 44 tommu
dekkjum með 460 big block, gam-
all Chevy hertrukkur á 49 tommum
og svo mikið smíðaðir nýrri Hilux-
ar, Tacomur og Cruiserar.“ Ferðirn-
ar eru miklar ævintýraferðir sem
enginn veit hvernig þróast, utan
þess að á laugardagskvöldinu er
alltaf slegið upp veislu með grill-
uðum lambalærum og heimagerðri
bearnaise-sósu.
Ýmis ævintýri
Þeir félagar rifja upp síðustu ferð
sem farin var í Veiðivötn í mars
síðastliðnum. „Flestir lögðu af
stað á föstudeginum, færið var
gott og engin teljandi vandamál á
leiðinni utan nokkurra smábilana
sem var reddað fljótlega. Á laug-
ardeginum var stefnan sett á Jök-
ulheima en þar sem það er örstutt
frá Veiðivötnum átti að fara bak-
dyraleiðina. Við fórum að Tröll-
inu og þar yfir Tungnaá. Það var
smá bras á leiðinni þar sem einn
bíllinn fór á hlið ofan í sprungu
í Veiðivatnahrauninu. Bíllinn
skemmdist lítillega og var dreg-
inn upp. Annar lenti á grjóti og
beygði felgu en hún var barin í
horfið og haldið áfram. Okkur
gekk nokkuð vel yfir Tungnaá og
komumst yfir án teljandi vand-
ræða.“
Þegar ein súkkan hætti að
ganga gafst færi á að grilla há-
degisborgara. En þegar komið
var að Faxasundi byrjuðu vand-
ræðin. „Þar var of mikið vatn og
snjór svo það var ekki fært í gegn.
Einhverjir festust og aðrir voru
tæpir á að velta en það fór allt vel
að lokum. Við reyndum nokkur
önnur gil, en hugmyndin var að
komast upp á Breiðbak og þaðan
í Jökulheima. Þegar leið á daginn
varð ljóst að það myndi ekki haf-
ast. Þá var snúið við og hefðbund-
in leið farin í Jökulheima. Þar
gátum við keyrt greitt og þetta
endaði í góðum kappakstri.“ Í
Jökulheimum voru grilluð nokkur
læri og hrært í tíu lítra af bearna-
ise-sósu þar sem notuð var sérút-
búin borvél með góðum árangri.
Færið þyngist
Daginn eftir fór stór hluti hópsins
norður í Heljargjá í frekari æv-
intýri. „Það gekk ekkert sérstak-
lega vel, enda færið þungt og lítið
skyggni. Þar gaf sig öxull í gam-
alli Wagoneer hásingu í Wrangler
en honum líkaði sennilega ekki
aflið frá sex lítra 8 gata mótorn-
um. En eigandinn er séður og var
búinn að kaupa nýja öxla og hafði
þá með. Þá gafst líka þetta fína
tækifæri til að grilla á meðan á
viðgerðum stóð. Á leiðinni gaf
framdrif í súkku einnig upp önd-
ina en henni var að sjálfsögðu
hjálpað niður. Gírkassi í Willys
fékk líka nóg og hætti að vilja fara
aftur á bak en þá var bara farið
hraðar áfram.
Við komumst niður um kvöld-
matarleytið og héldum þaðan heim
eftir góða helgi með tiltölulega
lítið af bilunum og ónotaða suðu-
pinna sem er ekki mjög algengt í
þessum ferðum.“
Þetta er skemmtilegur hópur
að þeirra sögn, fjölbreytt bíla-
flóra og mórallinn er góður. „Það
er gaman að sjá alla jeppana koma
saman og fara sömu leið. Við erum
strax búin að ákveða næstu dag-
setningu og matseðilinn en að öðru
leyti er ekki búið að plana mikið.
Aðal atriðið er að bóka skála og
ákveða nokkurn veginn hvaða leið
við ætlum að fara.“
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Ís brotnaði undan 54 tommu Ram.
Farið yfir stöðu mála í einni pásunni.
Tíu lítrar af bearnaise-sósu matreiddir í Jökulheimum með sérútbúinni borvél.
Betra að bílarnir séu með vesen
Hópur starfsmanna hjá Arctic Trucks fer árlega í druslubílaferð. Jepparnir í ferðinni eru mikið breyttir, gamlir og í sumum tilfellum frekar
lélegir. Sjaldan er vitað hvernig ferðin þróast hverju sinni en alltaf er slegið upp grillveislu á laugardeginum með heimalagaðri bearnaise-sósu.
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
DICK CEPEK dekkin eru amerísk gæðavara og þekkt fyrir frábæra
endingu, auk þess að vera afar hljóðlát. DICK CEPEK dekkin fást í
þremur mismunandi útfærslum og í stærðum frá 29 til 44 tommu, og
passa því undir flestar gerðir jeppa og jepplinga.
NOKIAN er einn virtasti framleiðandi í heimi á vetrardekkjum. Arctic
Trucks hefur átt gott samstarf við Nokian sem skilað hefur frábærum
árangri enda koma hér saman tveir sérfræðingar í vetrarakstri.
AT315 35 tommu dekkið er afrakstur þessa samstarfs og í byrjun árs
er væntanlegt á markað nýtt 44 tommu dekk sem sérstaklega er
hannað til aksturs við afar erfiðar aðstæður að vetri til .
veTRARdekk kynningarblað
11. október 201610
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
F
-7
E
B
4
1
A
D
F
-7
D
7
8
1
A
D
F
-7
C
3
C
1
A
D
F
-7
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K