Fréttablaðið - 11.10.2016, Síða 38
Það tekur reyndar
ansi langan tíma
að vinna Þetta Þar sem
maður hefur ekkert að
styðja sig við. Þá Þurfum
við svona að finna okkar
leið að Því að gera Þetta og
Það hefur nú bara gengið
vel.
BÓKHALDS- OG SKRIFSTOFUSTARF
Í tengslum við aukið umfang og opnun á skrifstofu Arctic Fish á Ísafirði
auglýsir félagið eftir starfskrafti í 100% hlutfall á skrifstofu félagsins sem
getur hafið störf sem fyrst.
STARFSLÝSING
Vinna við bókhald félagsins
Ýmis skjalagerð við inn- og
útflutning fyrirtækisins
Ýmis skjalagerð og utanumhald
upplýsinga varðandi starfsemi
félagsins
Önnur almenn skrifstofustörf
Þátttaka í öðrum verkefnum eftir
þörfum.
HÆFNISKRÖFUR
Menntun eða reynsla sem nýtist
í starfi
Þekking á bókhaldskerfinum er
nauðsynleg
Góð tölvukunnátta æskileg og
þá sérstaklega Excel og Word
UM ARCTIC FISH
Arctic Fish og dótturfélög þess eru
með silungs- og laxeldisstarfsemi í
Tálknafirði, Dýrafirði, Önundarfirði og
á Ísafirði. Fyrirtækið hóf starfsemi árið
2011 og hefur vaxið jafnt og þétt en
í dag starfa um 20 manns við seiðaeldi,
sjóeldi og stjórnun, allt að 20 við vinnslu
eldisafurða og þá starfa um 10 manns
við byggingarframkvæmdir á nýrri
fullkomnri endurnýtingar seiðaeldis-
stöð á Tálknafirði. Seiðaeldisstöðin er
mikilvægur grunnur að frekari upp-
byggingaráformum félagsins á Vest-
fjörðum en Arctic Fish starfar eftir
hinum virta alþjóðlega umhverfisstaðli
ASC. Frekari upplýsingar er að finna á
heimasíðu félagsins www.arcticfish.is
UMSÓKNIR
Umsóknir skal senda rafrænt með tölvupósti á Shiran Þórisson á nst@afish.is
sem veitir einnig nánari upplýsingar um starfið. Umsóknum á að fylgja starfs-
ferilskrá (hámark 2 síður) og einnar síðu kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2016.
Hjörleifur Valsson fiðluleikari hefur komið víða við á farsælum ferli í tónlistinni. Hann lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarháskólanum í Ósló árið
1993 og í framhaldinu fékk Hjör
leifur styrk frá tékkneska ríkinu til
náms við konservatoríið í Prag. Þar
nam hann fiðluleik og kammertón
list í þrjú ár, auk þess að leika með
ýmsum kammerhópum og hljóm
sveitum þar í borg. Hjörleifur hefur
komið fram á fjölda tónleika víða um
Evrópu, starfað með heimsþekktum
tónlistarmönnum samið, útsett og
leikið tónlist fyrir leikhús.
En í kvöld kemur Hjörleifur fram
á tónleikum í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar ásamt Ourania Men
elaou píanóleikara. Þegar tal náðist
af Hjörleifi voru þau í bíl á leiðinni
frá Ísafirði en á sunnudagskvöldið
voru þau Ourania að spila á hinum
árlegu minningartónleikum um
hjónin Ragnar H. Ragnar og Sigríði
Jónsdóttur. Hjörleifur segir að það
sé alltaf sérstaklega ánægjulegt að
koma vestur og spila á þessum tón
leikum. „Þetta gekk ofsalega vel,
alveg frábærir áhorfendur og alveg
sérstaklega gaman að spila fyrir
Ísfirðinga. Það er löng hefð fyrir þess
um tónleikum og það er dásamlegt
að sjá hvað það er alltaf vel mætt.“
Efnisskráin á tónleikum kvöldsins
er sérdeilis forvitnileg en flest verk
anna hafa aldrei verið flutt áður á
Íslandi. Þau Hjörleifur og Ourania
flytja Dialoghi filosofici – Heim
spekilegar samræður eftir Oldřich
František Korte, Sonatina semplice
eftir Petr Eben, Graceful ghost rag
eftir William Bolcom og Sónötu
nr. 1 eftir George Antheil. „Já þessi
verk hafa reyndar lítið heyrst. Það
er þarna til að mynda verk samið
1926 sem við Ourania frumfluttum
í Tékklandi og nú erum við að frum
flytja þetta á Íslandi.“
Aðspurður hvað valdi því að svo
gamalt verk sé að fá frumflutning í
dag segir Hjörleifur að svona þróist
þetta nú stundum í tónlistinni. „Það
er fjöldinn allur til af tónlist og sum
tónskáld verða vinsæl og önnur ekki.
Sumir ná háum aldri og eru í sviðs
ljósinu og aðrir ekki og þetta er tón
skáld sem hefur svona aðeins fallið
utan vinsældanna. Vivaldi var til að
mynda gleymdur í 200 ár. Þannig
að það er yndislegt að geta dustað
rykið af svona snilldarverki og það
vakti svo sannarlega athygli í gær.
Það tekur reyndar ansi langan tíma
að vinna þetta þar sem maður hefur
ekkert að styðja sig við. Þá þurfum
við svona að finna okkar leið að því
að gera þetta og það hefur nú bara
gengið vel.“
Hjörleifur segir að þau Ourania,
sem er frá Kýpur en starfar í Prag og
London bæði sem píanisti og tón
listarfræðingur, hafi spilað mikið
saman í gegnum árin. „Við höfum
spilað saman í um tuttugu og þrjú
ár. Við vorum að læra saman í Prag
og það var svona fyrir tilviljun að
það vantaði fiðlu og píanó saman í
verkefni. Við vorum kölluð saman og
byrjuðum að spila og það gekk strax
vel hjá okkur samstarfið frá fyrsta
degi. Þetta var 1993 og við fórum
út í það að vinna saman sem dúó
og störfuðum mjög þétt í nokkuð
mörg ár. Svo varð soldið hlé þegar
ég flutti hingað til Íslands og var að
sinna öðrum störfum en svo höfum
við tekið upp þráðinn aftur eftir að
ég flutti til Noregs fyrir einum sex
árum.“
Hjörleifur ber ekki á móti því að
hrunið hér heima hafi átt stærstan
þátt í því að hann flutti til Noregs
fyrir sex árum. „Það var algjört ofur
álag hérna heima. Ég hafði reyndar
alltaf nóg að gera, eiginlega of mikið
ef eitthvað var, en að sama skapi átti
ég erfitt með að halda utan um öll
praktísku málin og hreinlega vann
yfir mig. Það er allt annað umhverfi
og viðhorf til þess sem maður gerir
í mínu starfi í Noregi en ég hlakka
samt mikið til þess að spila í Lista
safni Sigurjóns í kvöld. Svo fljúgum
við til Ósló daginn eftir það og
spilum tvenna tónleika þar þannig
að það er nóg að gera.“
Yndislegt að dusta rykið af svona snilldarverki
hjörleifur valsson fiðluleikari og ourania menelaou píanóleikari flytja í kvöld verk í listasafni sigurjóns
Ólafssonar sem heyrðist í fyrsta sinn á íslandi vestur á ísafirði síðastliðið sunnudagskvöld.
Hjörleifur Valsson segir að það sé alltaf sérstaklega gaman að spila fyrir fólkið
vestur á Ísafirði. Fréttablaðið/Einar
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r22 M e n n I n G ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
menning
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
F
-6
1
1
4
1
A
D
F
-5
F
D
8
1
A
D
F
-5
E
9
C
1
A
D
F
-5
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K