Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2016, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 11.10.2016, Qupperneq 38
Það tekur reyndar ansi langan tíma að vinna Þetta Þar sem maður hefur ekkert að styðja sig við. Þá Þurfum við svona að finna okkar leið að Því að gera Þetta og Það hefur nú bara gengið vel. BÓKHALDS- OG SKRIFSTOFUSTARF Í tengslum við aukið umfang og opnun á skrifstofu Arctic Fish á Ísafirði auglýsir félagið eftir starfskrafti í 100% hlutfall á skrifstofu félagsins sem getur hafið störf sem fyrst. STARFSLÝSING Vinna við bókhald félagsins Ýmis skjalagerð við inn- og útflutning fyrirtækisins Ýmis skjalagerð og utanumhald upplýsinga varðandi starfsemi félagsins Önnur almenn skrifstofustörf Þátttaka í öðrum verkefnum eftir þörfum. HÆFNISKRÖFUR Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi Þekking á bókhaldskerfinum er nauðsynleg Góð tölvukunnátta æskileg og þá sérstaklega Excel og Word UM ARCTIC FISH Arctic Fish og dótturfélög þess eru með silungs- og laxeldisstarfsemi í Tálknafirði, Dýrafirði, Önundarfirði og á Ísafirði. Fyrirtækið hóf starfsemi árið 2011 og hefur vaxið jafnt og þétt en í dag starfa um 20 manns við seiðaeldi, sjóeldi og stjórnun, allt að 20 við vinnslu eldisafurða og þá starfa um 10 manns við byggingarframkvæmdir á nýrri fullkomnri endurnýtingar seiðaeldis- stöð á Tálknafirði. Seiðaeldisstöðin er mikilvægur grunnur að frekari upp- byggingaráformum félagsins á Vest- fjörðum en Arctic Fish starfar eftir hinum virta alþjóðlega umhverfisstaðli ASC. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.arcticfish.is UMSÓKNIR Umsóknir skal senda rafrænt með tölvupósti á Shiran Þórisson á nst@afish.is sem veitir einnig nánari upplýsingar um starfið. Umsóknum á að fylgja starfs- ferilskrá (hámark 2 síður) og einnar síðu kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2016. Hjörleifur Valsson fiðluleikari hefur komið víða við á farsælum ferli í tónlistinni. Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Ósló árið 1993 og í framhaldinu fékk Hjör­ leifur styrk frá tékkneska ríkinu til náms við konservatoríið í Prag. Þar nam hann fiðluleik og kammertón­ list í þrjú ár, auk þess að leika með ýmsum kammerhópum og hljóm­ sveitum þar í borg. Hjörleifur hefur komið fram á fjölda tónleika víða um Evrópu, starfað með heimsþekktum tónlistarmönnum samið, útsett og leikið tónlist fyrir leikhús. En í kvöld kemur Hjörleifur fram á tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar ásamt Ourania Men­ elaou píanóleikara. Þegar tal náðist af Hjörleifi voru þau í bíl á leiðinni frá Ísafirði en á sunnudagskvöldið voru þau Ourania að spila á hinum árlegu minningartónleikum um hjónin Ragnar H. Ragnar og Sigríði Jónsdóttur. Hjörleifur segir að það sé alltaf sérstaklega ánægjulegt að koma vestur og spila á þessum tón­ leikum. „Þetta gekk ofsalega vel, alveg frábærir áhorfendur og alveg sérstaklega gaman að spila fyrir Ísfirðinga. Það er löng hefð fyrir þess­ um tónleikum og það er dásamlegt að sjá hvað það er alltaf vel mætt.“ Efnisskráin á tónleikum kvöldsins er sérdeilis forvitnileg en flest verk­ anna hafa aldrei verið flutt áður á Íslandi. Þau Hjörleifur og Ourania flytja Dialoghi filosofici – Heim­ spekilegar samræður eftir Oldřich František Korte, Sonatina semplice eftir Petr Eben, Graceful ghost rag eftir William Bolcom og Sónötu nr. 1 eftir George Antheil. „Já þessi verk hafa reyndar lítið heyrst. Það er þarna til að mynda verk samið 1926 sem við Ourania frumfluttum í Tékklandi og nú erum við að frum­ flytja þetta á Íslandi.“ Aðspurður hvað valdi því að svo gamalt verk sé að fá frumflutning í dag segir Hjörleifur að svona þróist þetta nú stundum í tónlistinni. „Það er fjöldinn allur til af tónlist og sum tónskáld verða vinsæl og önnur ekki. Sumir ná háum aldri og eru í sviðs­ ljósinu og aðrir ekki og þetta er tón­ skáld sem hefur svona aðeins fallið utan vinsældanna. Vivaldi var til að mynda gleymdur í 200 ár. Þannig að það er yndislegt að geta dustað rykið af svona snilldarverki og það vakti svo sannarlega athygli í gær. Það tekur reyndar ansi langan tíma að vinna þetta þar sem maður hefur ekkert að styðja sig við. Þá þurfum við svona að finna okkar leið að því að gera þetta og það hefur nú bara gengið vel.“ Hjörleifur segir að þau Ourania, sem er frá Kýpur en starfar í Prag og London bæði sem píanisti og tón­ listarfræðingur, hafi spilað mikið saman í gegnum árin. „Við höfum spilað saman í um tuttugu og þrjú ár. Við vorum að læra saman í Prag og það var svona fyrir tilviljun að það vantaði fiðlu og píanó saman í verkefni. Við vorum kölluð saman og byrjuðum að spila og það gekk strax vel hjá okkur samstarfið frá fyrsta degi. Þetta var 1993 og við fórum út í það að vinna saman sem dúó og störfuðum mjög þétt í nokkuð mörg ár. Svo varð soldið hlé þegar ég flutti hingað til Íslands og var að sinna öðrum störfum en svo höfum við tekið upp þráðinn aftur eftir að ég flutti til Noregs fyrir einum sex árum.“ Hjörleifur ber ekki á móti því að hrunið hér heima hafi átt stærstan þátt í því að hann flutti til Noregs fyrir sex árum. „Það var algjört ofur­ álag hérna heima. Ég hafði reyndar alltaf nóg að gera, eiginlega of mikið ef eitthvað var, en að sama skapi átti ég erfitt með að halda utan um öll praktísku málin og hreinlega vann yfir mig. Það er allt annað umhverfi og viðhorf til þess sem maður gerir í mínu starfi í Noregi en ég hlakka samt mikið til þess að spila í Lista­ safni Sigurjóns í kvöld. Svo fljúgum við til Ósló daginn eftir það og spilum tvenna tónleika þar þannig að það er nóg að gera.“ Yndislegt að dusta rykið af svona snilldarverki hjörleifur valsson fiðluleikari og ourania menelaou píanóleikari flytja í kvöld verk í listasafni sigurjóns Ólafssonar sem heyrðist í fyrsta sinn á íslandi vestur á ísafirði  síðastliðið sunnudagskvöld. Hjörleifur Valsson segir að það sé alltaf sérstaklega gaman að spila fyrir fólkið vestur á Ísafirði. Fréttablaðið/Einar Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 1 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r22 M e n n I n G ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð menning 1 1 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D F -6 1 1 4 1 A D F -5 F D 8 1 A D F -5 E 9 C 1 A D F -5 D 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.