Fréttablaðið - 17.06.2016, Qupperneq 6
[ LAX ]
Villtur lax kominn í Nóatún
Austurveri
OPIÐ Í DAG
8 20
Á heræfingu
Kastar sprengju úr leyni Pólskur hermaður tekur þátt í yfirstandandi Baltops-heræfingu Nato í Ustka, í norðan-
verðu Póllandi, í gær. Alls taka yfir sex þúsund hermenn af öllu tagi þátt í æfingunni, sem nær til Eistlands,
Finnlands, Þýskalands, Svíþjóðar og Póllands. Æfingunni lýkur á sunnudag. Fréttablaðið/EPa
LögregLumáL Annar mannanna
sem handtekinn var vegna Guð
mundarmálsins á þriðjudag hefur
ítrekað sagst í samtölum við fólk
hafa borið ábyrgð á hvarfi Guð
mundar Einarssonar í janúar árið
1974. Maðurinn er óreglumaður
sem kom að málinu á upphafs
stigum þess. Lögmaður mannsins
sagði í samtali við Fréttablaðið að
hann hefði neitað öllum ásökunum
lögreglu í skýrslutöku á þriðjudag.
Í samtali við Vísi í gær sagði Sigur
steinn Másson, sem gerði myndina
Aðför að lögum árið 1996, að maður
inn hefði þá greint sér frá því að hann
bæri ábyrgð á hvarfi Guðmundar.
„Á sínum tíma komum við þessu
á framfæri til þar til bærra aðila en
þetta var bara eitt af svo mörgu sem
var að koma fram á þeim tíma en
eftir því sem tíminn líður sér maður
að það hefði verið full ástæða til að
rannsaka þetta miklu betur. Þessum
manni var líka sleppt úr gæsluvarð
haldi um leið og hann gaf þennan
framburð á þessum tíma. Það er í
sjálfu sér vitnisburður sem lögreglan
hefði fyrir löngu síðan átt að kanna,“
sagði Sigursteinn í samtali við Vísi.
Fréttablaðið hefur fengið staðfest
að maðurinn eigi sér langa sögu um
óreglu. Hann var síðast sakfelldur í
mars á þessu ári fyrir þjófnað á lista
verki í Hallgrímskirkju. Hann dvaldi
langdvölum í fangelsi erlendis við
slæmar aðstæður á níunda áratugn
um og hlaut þá samúð þjóðarinnar.
Við útför Sævars Marínós Ciesi
elski, sem dæmdur var ábyrgur fyrir
dauða Guðmundar, í Dómkirkjunni
2011 var maðurinn með háreisti og
truflaði athöfnina. Kunningjar segja
hann hafa verið sakbitinn vegna
málsins alla tíð, hvort sem það sé
vegna meintrar aðildar eða þess að
hann benti á Sævar sem aðila málsins
í yfirheyrslu hjá lögreglu árið 1975.
Morgunblaðið greindi fyrst frá
málinu á miðvikudag og greindi frá
því að tveir menn hefðu verið hand
teknir og yfirheyrðir vegna málsins.
Þeim var sleppt að lokinni skýrslu
töku. Hinn maðurinn hefur hlotið
tvo refsidóma fyrir manndráp.
Í frétt RÚV í gær kom fram að hús
leit hefði ekki verið gerð á heimili
mannsins eins og Morgunblaðið
greindi frá á fimmtudag heldur hafi
húsleitarheimild þurft til að hand
taka manninn. Fréttablaðið greindi
frá því í gær að ábendingin sem
unnið væri eftir væri ekki alveg ný af
nálinni heldur hefði hún borist lög
reglu á allra síðustu árum.
snaeros@frettabladid.is
Handtekinn var með
háreisti í útför Sævars
Maðurinn sem handtekinn var vegna nýrra vendinga í Guðmundarmálinu
hefur í samtölum við fólk áður sagst hafa borið ábyrgð á hvarfi Guðmundar.
StjórnSýSLa Aldís Hilmarsdóttir,
fyrrverandi yfirmaður fíkniefna
deildar lögreglunnar á höfuðborgar
svæðinu, heyrði fyrst af því í fréttum
RÚV að hún myndi ekki snúa aftur
í stöðu sína sem yfirmaður deildar
innar.
Aðspurð hvort hún hafi óskað
eftir því að fá stöðuna aftur sagði
Aldís að sín staða hefði ekki verið
neitt til umræðu hingað til. Hún
gæti ekki svarað til um mál sem hún
vissi ekkert um.
Aldís Hilmarsdóttir tók við for
ystu í fíkniefnadeildinni í apríl árið
2014. Hún var tímabundið færð til í
starfi í janúar á þessu ári þegar tveir
starfsmenn deildarinnar voru til
rannsóknar, grunaðir um spillingu
í starfi. Rannsókn annars málsins
hefur verið vísað frá en ekkert sak
næmt kom í ljós við rannsóknina.
Hitt málið er enn í rannsókn.
Í frétt RÚV kemur fram að kynn
ingarfulltrúi lögreglunnar, Gunnar
Rúnar Sveinbjörnsson, svari fyrir
spurn fréttastofu á þá leið að ráðið
hafi verið í stöðu Aldísar og ekki
fleiri breytingar séu í farvatninu.
Aldís sé enn fjarverandi frá störfum
og ekki liggi fyrir hvenær hún komi
til baka. – snæ
aldís Hilmars
dóttir, fyrrver
andi yfirmaður
fíkniefnadeildar
lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu
Tekur ekki við
fíkniefnadeildinni á ný
Samgöngur Umferð á Snæfellsvegi
hefur aukist um 26 prósent á árinu
miðað við fyrstu mánuði síðasta árs,
eða frá janúar og út maí. Sé litið lengra
aftur í tímann nemur aukningin um
40 prósentum.
Vegagerðin leiðir að því líkur að
aukin vetrarferðamennska erlendra
ferðamanna skýri mikla aukningu,
að Snæfellsnes sé í heppilegri fjar
lægð frá höfuðborginni þar sem
langflestir erlendir ferðamenn hefja
dvöl sína. Sama á við um hringveginn
sunnan Vatnajökuls þar sem mikil
aukning mældist í vetur, þar jókst
umferð um 83 prósent í mars.
Þegar meðalumferðin 20032016
er skoðuð á Snæfellsvegi fyrir fimm
fyrstu mánuði hvers árs sést að
umferðin vex árlega um fjögur pró
sent á ári milli 2011 og 2015, en hefur
nú vaxið um 26 prósent milli áranna
2015 og 2016 fyrir sama tímabil. – shá
Vetrarumferð tekur stökk
Fólk virðist sækja mjög á Snæfellsnesið í
vetrarferðum. Fréttablaðið/GVa
26. janúar 1974 hvarf
Guðmundur Einarsson eftir
skemmtun í Alþýðuhúsinu í
Hafnarfirði. Hann var 18 ára.
1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F ö S t u D a g u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
C
4
-2
9
9
8
1
9
C
4
-2
8
5
C
1
9
C
4
-2
7
2
0
1
9
C
4
-2
5
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K