Fréttablaðið - 17.06.2016, Blaðsíða 44
MörguM líkaði
einfaldlega vel og
buðust ótal tækifæri. ÞeiM
leist kannski ekki alltof
vel á tónlistarlífið í
byrjun, reykjavík var ólík
stórborguM erlendis en
Þeir sáu hæfileikana í fólki
hér.
Ný olíuverk skoska myndlistar-
mannsins Callum Innes prýða nú
veggi i8 í Tryggvagötu 16. Þau eru
máluð bæði á striga og pappír.
Það geta verið hin hversdags-
legustu atriði sem verða kveikjan
að verkum Innes, eftir því sem
hann segir sjálfur. „Innblásturinn
kemur úr öllum áttum, jafnvel úr
fyrirsögnum blaðanna einhvern
morguninn eða lesefninu fyrir
svefninn.“
Innes er fæddur í Edinborg árið
1962. Hann lærði teikningu og
málun í Gray’s School of Art, en
lauk meistaragráðu í myndlistinni
í Edinburgh College of Art. Hann
hefur verið talinn meðal mikilvæg-
ustu abstraktmálara sinnar kyn-
slóðar og verk hans hafa verið sýnd
á einka- og samsýningum víða um
heim. Í október á þessu ári verður
stór sýning verka hans opnuð í De
Pont Museum í Tilburg í Hollandi.
Sýning Callum Innes verður í i8
fram til 9. september.
Innblásturinn kemur úr öllum áttum, jafnvel fyrirsögnum dagblaða eða öðru lesefni
Callum Innes hefur verið talinn til mikilvægustu abstraktmálara sinnar kynslóðar og honum hafa hlotnast
hin virtu verðlaun NatWest. FréttablaðIð/aNtoN brINkSumt er flókið þótt það sýnist einfalt.
Verkin á sýningunni eru ýmist máluð á striga eða pappír.
Meginþorri þess erlenda tón-listarfólks sem kom hingað til Íslands á síðustu öld var ráðinn
til að gegna hér störfum. Það var
skipuleg aðgerð Íslendinga til að
byggja upp tónlistarlíf að erlendri
fyrirmynd og komast á svipað stig
og umheimurinn, bæði í klassík og
skemmtitónlist,“ segir Óðinn Mel-
sted, sagnfræðingur, trompetleikari
og leiðsögumaður, um efni bókar
sinnar Með nótur í farteskinu. Hún
er um þá útlendu tónlistarmenn sem
settust hér að á árunum 1930 til 1960,
alls um 100 manns, líka um stöku
gestakomur.
En hverjir höfðu forgöngu um að
fá listafólkið til Íslands? „Tónlistar-
skólinn í Reykjavík var stofnaður
1930 og fyrstu þrír kennararnir voru
erlendir. Á bak við skólann stóð Tón-
listarfélagið í Reykjavík og þekktasta
nafnið í tengslum við það er Ragnar
í Smára. En sá sem trúlega réð mestu
var Björn Jónsson verslunarmaður,
hann var framkvæmdastjóri félagsins
og Sinfóníuhljómsveitarinnar og fór
utan að semja við kennara og hljóm-
sveitarstjóra. Svo voru það skemmti-
staðirnir í Reykjavík, til dæmis Hótel
Ísland, Hótel Borg og fleiri sem réðu
til sín bæði erlendar hljómsveitir og
staka tónlistarmenn. Fæstir komu
fyrir tilviljun.“
lærði íslensku sem krakki
Óðinn er fæddur og uppalinn í
Austurríki, á íslenskan föður og
austurríska móður. Hann talar og
skrifar hreina íslensku og kveðst
hafa lært hana sem krakki. „Ég talaði
íslensku við pabba og austurrísku við
mömmu. Ákvað svo að fara í háskóla
hér og lærði sagnfræði við Háskóla
Íslands. Það skerpti á íslenskunni,
sérstaklega ritmálinu.“
Hann tileinkar föður sínum, Eyjólfi
Melsted, bókina og þakkar honum
aðstoð við gerð hennar. Segir bókina
eiga sér aðdraganda. „Ég hlaut austur-
rískt tónlistaruppeldi og spilaði í
hljómsveitum hér á landi á háskóla-
árunum. Svo hef ég alltaf þekkt einn
þeirra tónlistarmanna sem komu
erlendis frá til Íslands, Pál Pampi-
chler. Hann giftist ömmusystur minni
hér en flutti til Austurríkis um það
leyti sem ég fæddist og ég hef aldrei
þekkt hann öðruvísi en onkel Pauli í
Graz. Hann titlar sig enn þá íslenskt
tónskáld og er álíka skrítin blanda af
Íslendingi og Austurríkismanni og ég.
Flestir ætluðu bara að vera í eitt ár
ný bók eftir óðin Melsted fjallar um erlent tónlistarfólk sem flutti til íslands á síð-
ustu öld og lagði fram krafta sína við kennslu, hljómsveitarstjórn og spilamennsku.
„Í fyrri hlutanum beiti ég hefðbundnu íslensku sjónarhorni, hvernig erlendur mannafli og erlendir straumar koma til Íslands og í síðari hlutanum er það austurríkis-
maðurinn í mér sem er að skrifa,“ segir Óðinn um bók sína Með nótur í farteskinu. FréttablaðIð/aNtoN brINk
Nálgast efnið frá tveimur hliðum
Óðinn viðaði að sér fróðleik í bókina
víða. Leitaði í gögnum Útlendinga-
stofnunar, las blöð og endurminn-
ingabækur og tók viðtöl við þá
aðfluttu tónlistarmenn sem enn eru
á lífi og ættingja þeirra. En hvernig
heldur hann að þessu fólki hafi liðið
hér? „Almennt reyni ég að nálgast
það sjónarmið frá tveimur hliðum. Í
fyrri hlutanum beiti ég hefðbundnu
íslensku sjónarhorni, hvernig erlend-
ur mannafli og erlendir straumar
koma til Íslands og í síðari hlutanum
er það Austurríkismaðurinn í mér
sem er að skrifa, þá beiti ég upplifun
tónlistarfólksins.
Flest fólkið var ungt að árum og
Íslandsferð var ævintýri í augum
þess. Yfirleitt var það með samning í
höndum svo það fór ekki út í hreina
óvissu en vissi þó lítið um Ísland.
Flestir ætluðu bara að starfa hér í
eitt ár en ílengdust. Mörgum líkaði
einfaldlega vel og buðust ótal tæki-
færi. Þeim leist kannski ekki alltof vel
á tónlistarlífið í byrjun, Reykjavík var
ólík stórborgum erlendis en þeir sáu
hæfileikana í fólki hér.“
Óðinn telur almennt vel hafa
verið tekið á móti listafólkinu.
Samt hafi orðið vart andstreymis
frá Félagi íslenskra tónlistarmanna
sem stóð vörð um kaup og kjör og
andmælti því að verið væri að ráða
erlent fólk til starfa. Það hafi þó
ekki beinst per sónulega að neinum.
„Margir Íslendingar sóttust eftir að
komast í sveitir hjá erlendum hljóm-
sveitarstjórum bara til að læra af
þeim,“ segir hann.
Sumt af því listafólki sem Óðinn
skrifar um fann ástina á Íslandi. „Af
öllum sem fluttu búferlum hingað
ílengdist um það bil helmingur
lengur en þrjú ár, sumir voru í áratug
og aðrir það sem eftir lifði ævinnar
og eiga töluverðan hóp afkomenda,“
upplýsir hann. „Það er heilmikið
fyrir grúskara í bókinni, æviágrip,
tónlistarsaga og fróðleikur um fólk.“
1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R28 M e n n i n G ∙ F R É T T A B L A ð i ð
menning
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
4
-1
5
D
8
1
9
C
4
-1
4
9
C
1
9
C
4
-1
3
6
0
1
9
C
4
-1
2
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K