Fréttablaðið - 17.06.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.06.2016, Blaðsíða 12
Harpa 13:00 - 16:00 Fjöldinn allur af tónleikum og öðrum uppá­ komum. Hljómskálagarðurinn 13:00 - 17:00 Barna­ og fjölskyldudag­ skrá á sviði, leiktæki og fleira frá skátunum í Reykjavík. Einnig verða fjölbreytt dans­ og tónlistaratriði á tveimur sviðum. 13:30 - 17:00 Sirkus Íslands með götuleik­ hús og sirkusskóla á vestur­ bakka garðsins. austurvöllur 11:10 Hátíðardagskrá á vegum Alþingis og forsætisráðuneytis­ ins, kórsöngur, ávarp fjallkon­ unnar og fleira. 11:50 Skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu. 14:00 Kraftakeppni. Hlemmur 13:00 Skrúð­ ganga frá Helmmi niður Laugaveg og í Hljóm­ skálagarðinn. tjörnin 13:00 - 17:00 Ýmsar uppá­ komur, pílukast, sólskoðun, kraftakeppni og fleira. iðnó og fríkirkjan 13:30 - 16:30 Listhóp­ ar Hins hússins sýna listir sínar. ✿ Dagskrá 17. júní Fr ík irk ju ve gu r Læ kja rga ta Hverfisgata Laugavegur Sæbraut ráðHúsið 13:30 Tónleikar. 16:00 Harmóníkuball. Atvinnumál Guðmundur Jón Frið- riksson sagði í viðtali við Frétta- blaðið á þriðjudag að hann væri útilokaður frá störfum við flugum- ferðarstjórn því Isavia svaraði ekki umsóknum hans. Honum var sagt upp fyrir fimm árum eftir að hann kvartaði undan einelti yfirmanns síns. Héraðsdómur dæmdi upp- sögnina ólöglega og Guðmundur hefur ítrekað sótt um starf hjá fyrir- tækinu síðan án árangurs. Í bréfi Björns Óla Haukssonar, forstjóra Isavia, sem hann sendi til starfsmanna fyrirtækisins í gær segir að einungis upplifun Guð- mundar sé lýst í fjölmiðlum en jafn- framt að fyrirtækið kjósi að tjá sig ekki um málið. Að auki segir: „[Í] þessu máli var búið að leita allra leiða, meðal annars með aðkomu utanaðkomandi sérfræðinga til að ná farsælli niðurstöðu í málið. Við teljum að óhjákvæmilegt hafi verið að slíta ráðningarsambandinu. Fyrir uppsögninni var ærin ástæða að mati stjórnenda sem að því komu og ég var sammála því mati.“ Yfirmaðurinn var vandinn Guðmundur segir að Björn Óli hafi aldrei veitt honum viðtal jafnvel þótt hann hafi ítrekað sóst eftir því. Jafnframt segir hann að sér- fræðingurinn sem hafi verið kall- aður til hafi átt að vinna með sam- skiptavanda í deildinni sem kom til vegna nýs yfirmanns. „Það átti að vinna með vinnu- móralinn almennt,“ segir Guð- mundur. „Allir starfsmenn fóru á sérfund og maður átti að láta allt flakka í trúnaði. Sem ég gerði enda hafði yfirmaðurinn reynt að fá mig rekinn í tvö ár og samskiptin eftir því. Það var skýrt að 90 prósent starfsmanna töldu þennan yfir- mann vera undirrót vandans.“ Guðmundur segir Björn Óla fara með rangt mál enda þekki hann alls ekki báðar hliðar málsins. „Það talaði aldrei neinn við mig um stöðu mála fyrir uppsögn né ræddi leiðir til að leysa vandamál – mér var reyndar aldrei tjáð að það væru vandamál.“ Þarf að skapa sátt Sigurjón Jónasson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, segir ljóst að að það þurfi að ríkja sátt um starfsumhverfi flugumferðarstjóra. Hann vill ekki tjá sig um starfs- mannastefnu Isavia. „Nú er ég ekki að fullyrða að það sé pottur brotinn í starfsmannamálum Isavia, en ef svo er hver væri þá rétti aðilinn til að rannsaka það? Væri það forstjór- inn sem er aðili að málinu og hefur þar af leiðandi hagsmuna að gæta í því?“ spyr hann. Sigurjón bendir á manneklu í flugumferðarstjórn á Íslandi og þörf fyrir þjálfun. „Því væri eðlilegt að skoða þetta mál nánar. Þarna er um að ræða mann sem hefur mikla reynslu af stjórn flugumferðar sem og þjálfun flugumferðarstjóra og starfskraftar hans myndu nýtast vel í þau verkefni sem fram undan eru.“ isavia ekki staðið undir ábyrgð Á Íslandi er ekki lagaleg skylda fyrirtækja að ráða starfsmenn aftur jafnvel þótt uppsögn sé dæmd ólögmæt. Slíkt er háð samkomu- lagi. Elín Björg Jónsdóttir, formað- ur BSRB, segir að máli Guðmundar hefði mátt ljúka farsællega með því að viðhafa rétt vinnubrögð innan Isavia um leið og málið kom upp. „Við höfum talið að fyrirtækið eigi að endurskoða ákvörðun sína, sérstaklega í ljósi þess að upp- sögnin var dæmd ólögleg. Það hvílir eðlilega mikil ábyrgð á fyrir- tæki eins og Isavia, sem er að fullu í ríkiseigu,“ segir Elín og bendir á að Isavia sé eini vinnuveitandi flugumferðarstjóra á Íslandi. „Það er augljóst að stjórnendur Isavia hafa ekki staðið undir sinni miklu ábyrgð í þessu máli.“ erlabjorg@frettabladid.is Saga ólögmætra uppsagna hjá Isavia Forstjóri Isavia hefur sent bréf á starfsmenn þar sem hann segist hafa leitað sátta í máli flugumferðarstjóra sem segist útilokaður frá störfum. Talaði aldrei við mig, segir flugumferðarstjórinn. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir mikla ábyrgð hvíla á Isavia. mAnnlíf Fjölbreytt þjóðhátíðar- dagskrá hefst klukkan tíu með sam- hljómi kirkjuklukkna í Reykjavík. Að honum loknum hefst guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Viðburðir verða víðs- vegar um miðborgina og ættu bæði ungir sem aldnir að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Hefðbundnir dagskrárliðir eru til staðar, til að mynda ávarp forsætis- ráðherra og ávarp fjallkonunnar. Skrúðgöngur verða farnar frá Austur- velli, Hlemmi og Hagatorgi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, leggur blómsveig frá Íslendingum að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og Sóley Tómasdóttir, forseti borgar- stjórnar, leggur blómsveig frá borgar- búum að leiði hans og konu hans. Aðalhátíðarsvæðið í ár er nágrenni Tjarnarinnar, einnig verða fjöl- skylduskemmtanir, tónleikar, götu- leikhús, sirkus, fornbílasýning og fleira í görðum og götum í grennd við Reykjavíkurtjörn. Á stóra sviðinu í Hljómskálagarði verða meðal ann- ars atriði frá Latabæ, SalsaIceland og Snorra Helgasyni. Götulokanir í miðbænum á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga verða minni en undanfarin ár og ein- skorðast við nágrenni Austurvallar fyrir hádegi en nágrenni Tjarnar- innar síðdegis. Það stefnir í ágætisveður á landinu á morgun og verður hægur vindur um allt land. Þá verða einhverjir skúrir, þá sérstaklega norðanlands en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þó að nokkrir dropar gætu fallið. „Ekki er að búast við úrhelli sem flæmir fólk inn í hús eða eitthvað slíkt og ætti veðrið ekki að vera til trafala,“ segir Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hitinn á landinu verður níu til fimmtán stig yfir daginn. Þjóðhátíðardagurinn er haldinn hátíðlegur í flestum bæjarfélögum landsins. Í Kópavogi hefst dagskráin Húllumhæ um allan bæ í dag Þjóðhátíðardagur Íslands er haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjölbreytt dagskrá er í höfuðborginni og verður aðalhátíðarsvæðið í ár nágrenni Tjarnarinnar. Búist er við ágætisveðri og hitinn gæti farið í fimmtán stig. Líklega er þó ráðlegt að hafa regnhlíf í farteskinu. með skrúðgöngu frá Menntaskól- anum í Kópavogi klukkan 13:30 og lýkur á Rútstúni þar sem við tekur hátíðardagskrá. Þá verða stórtón- leikar á túninu frá 19:30 til 22:00. Hátíðardagskrár á Akureyri og Ísa- firði hefjast klukkan 13:00 og á Egils- stöðum klukkan 10:00. Líkt og áður mun forseti Íslands sæma nokkra Íslendinga Hinni íslensku fálkaorðu við athöfn á Bessa- stöðum. thordis@frettabladid.is Saga rigningar á 17. júní Veðrið 17. júní er vinsælt umræðuefni en svo virðist sem flestir minnist þess að oftast rigni á þjóðhátíðardaginn. Vísindavefur Háskóla Íslands hefur svarað þeirri spurningu hversu oft hefur rignt á þjóðhátíðardaginn í Reykjavík frá stofnun lýðveldisins Íslands á Þingvöllum þann 17. júní 1944. Samkvæmt mælingum á úrkomu í Reykjavík á 17. júní frá árinu 1944 til ársins 2015 hefur rignt í um 85 prósentum tilvika. Mismikil rigning hefur þó verið á þessum árum en frægasta rigning Íslandssögunnar var á stofnunardeginum sjálfum árið 1944. Heimild: Vísindavefurinn Það var skýrt að 90 prósent starfs- manna töldu þennan yfir- mann vera undirrót vandans. Guðmundur Jón Friðriksson, flugumferðarstjóri Það er augljóst að stjórnendur Isavia hafa ekki staðið undir sinni miklu ábyrgð í þessu máli. Elín Björg Jóns­ dóttir, formaður BSRB Fleiri umdeildar uppsagnir Dómurinn í máli Guðmundar um ólögmæta uppsögn er ekki einsdæmi í stuttri sögu Isavia. Skömmu áður dæmdi Hæsti­ réttur Isavia til að greiða öðrum starfsmanni miskabætur vegna þess hvernig staðið var að upp­ sögn. Einnig var Isavia dæmt í Hæstarétti í desember árið 2011 til greiðslu bóta vegna ólöglegrar uppsagnar félagsmanns SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu. Ægir Gíslason sem starfaði sem öryggisvörður í flughöfninni hafði samband við Fréttablaðið og sagðist hafa verið sagt upp en voru greiddar bætur til að hann færi ekki í dómsmál. Hann var beðinn um að þegja um bæturnar. „Ástæða uppsagnar var líka látin heita samskiptaörðug­ leikar en ég var orðinn 64 ára og sagt upp þegar atvinnuástandið var slæmt. Enda hef ég ekki unnið síðan,“ segir Ægir. „Það er eitthvað mikið að starfsmannastefnunni í fyrirtækinu.“ Aðalhátíðarsvæðið í ár er nágrenni Tjarnarinnar. Einnig verða fjölskyldu- skemmtanir, tónleikar, götuleikhús, sirkus, fornbíla- sýning og fleira í görðum og götum í grennd við Reykja- víkurtjörn. Það er eitthvað mikið að starfs- mannastefnunni í fyrirtækinu. Ægir Gíslason, fyrrverandi starfs­ maður Isavia Nú er ég ekki að full- yrða að það sé pottur brotinn í starfs- mannamálum Isavia, en ef svo er hver væri þá rétti aðilinn til að rannsaka það? Sigurjón Jónasson, formaður FÍF 1 7 . j ú n í 2 0 1 6 f Ö S t u D A G u R12 f R é t t i R ∙ f R é t t A B l A ð i ð 1 7 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 4 -2 4 A 8 1 9 C 4 -2 3 6 C 1 9 C 4 -2 2 3 0 1 9 C 4 -2 0 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.