Fréttablaðið - 17.06.2016, Síða 10

Fréttablaðið - 17.06.2016, Síða 10
Frakkland Yfirvöld í Frakklandi ákváðu í gær að vísa tuttugu rússnesk- um fótboltabullum úr landi sem voru þangað komnar til að fylgjast með Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu og veitast að stuðningsmönnum ann- arra liða. Bullurnar tilheyra hópi sem er einkar hliðhollur Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Leiðtogi hópsins, Alexander Shprygin, er á meðal þeirra sem vísað verður úr landi. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, fundaði í gær með sendiherra Frakka í Rússlandi og sagðist einkar óhress með ákvörðun Frakka. Lavrov varaði við því að andúðin sem hann sæi á mótinu gæti skaðað tengsl Rússa og Frakka og lýsti áhyggjum sínum yfir ögrandi hegðun aðdáenda ann- arra landsliða sem hann sagði hafa traðkað á rússneska fánanum. Eins og áður hefur verið greint frá eru Rússar á síðasta séns hjá UEFA, knattspyrnusambandi Evrópu, eftir hegðun stuðningsmanna lands- liðsins um síðustu helgi. Samkvæmt frönsku lögreglunni veittust þá 150 rússneskar, vel þjálfaðar, fótbolta- bullur að Englendingum og beitti lögregla táragasi til að ná stjórn á átökunum. Ef rússnesku bullurnar gerast aftur sekar um slíka hegðun verður Rússum vísað úr leik á mót- inu. Óeirðir brutust út á ný í fyrrinótt þegar lögregla beitti táragasi og hand- tók 36 fótboltabullur, mestmegnis Englendinga, eftir að til stympinga kom á milli enskra, velskra, rúss- neskra og slóvakískra fótboltaaðdá- enda í borginni Lille. Sextán voru fluttir á sjúkrahús eftir átökin. Enskar bullur náðust meðal annars á myndband er þær voru að kasta smápeningum í átt að börnum sem voru úti á götu að betla. Þá hrópuðu þær einnig að börnunum og blaða- maður Financial Times sagðist á Twitt er hafa séð bullur láta ungan strák drekka hálfan lítra af bjór í skiptum fyrir smápeninga. Englendingar eru einnig á hálum ís í augum UEFA vegna ofbeldis og var þeim hótað brottrekstri úr keppninni í vikunni. – þea Rússnesk boltabulla kastar stól í átt að Englendingum í Lille. NoRdicphotos/AFp Tuttugu Rússum var í gær vísað úr landi frá Frakklandi dómsmál Vátryggingafélag Íslands ber ábyrgð á tjóni sem varð á fatn- aði og öðrum munum í versluninni GK Reykjavík árið 2013 samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. GK Clothing ehf., sem rekur verslunina, krafðist þess að viður- kennt yrði að VÍS bæri bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu verktakans Viðskiptavit ehf., og féllst dómurinn á það. Tjónið varð þegar eigendur hús- næðisins að Laugavegi 66, þar sem verslunin var starfrækt, stóðu í miklum framkvæmdum sem urðu til þess að gat varð til inn á lager verslunarinnar. Í kjölfar þess fann mikið magn af iðnaðarryki sér leið inn í verslunina og var hún óstarf- hæf, auk þess sem lagerinn lá undir skemmdum. Eigendur verslunar- innar segja tjónið hafa hlaupið á tugum milljóna króna. Hæstiréttur taldi Viðskiptavit ehf. ekki hafa viðhaft fullnægjandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjónið og að það hafi orðið vegna saknæmra aðgerða verktakans. Dómurinn taldi ekki hafa verið sýnt fram á eigin sök GK í málinu. – þv VÍS bótaskylt fyrir tjón GK Reykjavík Verslunin var áður á Laugavegi 66, en í kjölfar tjónsins var hún óstarfhæf. FRéttAbLAðið/ViLhELm HjálparstarF Rauði krossinn á Íslandi sendi í vikunni 15 milljónir króna til neyðarstarfs í Malaví. Þar af leggur utanríkisráðuneytið til níu milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. Fjármagnið verður nýtt næstu mánuði til þess að gefa 12.000 skóla- börnum máltíðir þar í landi. Þá segir að mikill uppskerubrestur hafi verið á svæðinu sem megi rekja til loft- lagsbreytinga af manna völdum. Rauði krossinn á Íslandi hefur áralanga reynslu af starfi í Malaví og hefur frá árinu 2002 tekið þátt í stórum verkefnum malavíska Rauða krossins sem miða að því að bæta heilsufar íbúa til lengri tíma. – ngy Senda aðstoð til Malaví skólastúlkur í malaví fyrir utan skólann. myNd/RAuði KRossiNN Bretland Jo Cox, þingmaður breska Verkamannaflokksins, var myrt í gær, 41 árs að aldri, fyrir utan bókasafn í Bristall, sem er suð- vestur af Leeds. Árásarmaðurinn er 52 ára Englendingur. Ráðist var á Cox síðdegis, hún skotin í tvígang hið minnsta og stungin mörgum sinnum. Cox var úrskurðuð látin á vettvangi. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði þjóðina alla í losti eftir morðið í yfirlýsingu sem hann birti á heimasíðu sinni. Hann sagði Cox hafa verið mikilsvirtan þingmann og að and- stæðingar hennar á þingi hefðu virt hana mikils. „Á næstu dögum verður að svara spurningunum hvernig og af hverju hún lét lífið,“ sagði Corbyn. „En nú er hugur okkar hjá eiginmanni Cox og tveimur börnum þeirra. Þau munu vaxa úr grasi án móður sinnar en geta verið afar stolt af því sem hún gerði, því sem hún áorkaði og því sem hún stóð fyrir.“ „Í dag hefst nýr kafli í lífi okkar. Erfiðari, sársaukafyllri,“ skrifaði Brendan Cox, eiginmaður þingkon- unnar, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér eftir tilræðið. „Hana hefði langað tvennt umfram allt annað, að börnin okkar yrðu umvafin kær- leika og að við myndum öll samein- ast um að berjast gegn því hatri sem varð henni að bana.“ Jo Cox tilheyrði þeim sem telja Bretlandi best borgið áfram innan Evrópusambandsins. Vitni að árás- inni segja að skömmu fyrir árásina hafi árásarmaðurinn öskrað að þingkonunni „Bretland fyrst!“, sem er slagorð og heiti þjóðernishreyf- ingar í Bretlandi sem berst gegn innflytjendum og vill að Bretland segi sig úr ESB. David Cameron, forsætisráð- herra Breta og formaður Íhalds- flokksins, frestaði för sinni til Gíbraltar vegna árásarinnar. Hann sagði atburðinn hörmulegan og sagðist biðja fyrir Cox og fjölskyldu hennar. Síðast gerðist það árið 1990 að breskur þingmaður var ráðinn af dögum þegar írski lýðveldisherinn myrti Ian Gow, þingmann Íhalds- flokksins, við heimili hans í Austur- Sussex í Bretlandi, með sprengju sem komið hafði verið fyrir undir bíl hans. sveinn@frettabladid.is Breska þjóðin er í áfalli eftir morðið á þingkonunni Jo Cox Jo Cox, þingmaður verkamannaflokksins, var myrt úti á götu í Bristall í gær. Árásarmaðurinn er 52 ára þjóð- ernissinni. Eftirlifandi eiginmaður hennar hvetur alla til að sameinast um að berjast gegn því hatri sem varð Cox að bana. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, frestaði för sinni til Gíbraltar vegna árásarinnar. breska lögreglan rannsakaði heimili árásarmannsins eftir morðið í gær. hann var handtekinn á vettvangi. FRéttAbLAðið/EpA Jo cox var fædd 1974 og kjörin á þing í síðustu þingkosningum. FRéttAbLAðið/EpA 36 fótboltabullur voru hand- teknar í Lille í fyrrinótt. 1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö s t U d a G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 7 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 4 -3 8 6 8 1 9 C 4 -3 7 2 C 1 9 C 4 -3 5 F 0 1 9 C 4 -3 4 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.