Fréttablaðið - 17.06.2016, Side 21

Fréttablaðið - 17.06.2016, Side 21
fólk kynningarblað 1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R Dýrmætt að grípa tækifærin Tónlistarkonan, fjölmiðlafræðingurinn og fyrrverandi landsliðskonan í fótbolta Greta Mjöll Samúelsdóttir flutti með fjölskyldu sinni síðastliðið haust á Djúpavog þar sem hún þjálfar og kennir börnum íþróttir. Þar líður henni vel, hún nýtur enn betur samverunnar við dóttur sína og þar líður tíminn örlítið hægar en á höfuðborgarsvæðinu. Greta hefur nóg að gera á nýjum stað. Hún fluttist til Djúpavogs í haust þar sem hún kennir, þjálfar og nýtur lífsins. Síðastliðið sumar sótti William Óðinn Lefever, kærasti Gretu Mjallar Samúelsdóttur, tónlistar- konu, fjölmiðlafræðings og fyrr- verandi landsliðskonu í fótbolta, um starf íþrótta- og æskulýðsfull- trúa Djúpavogshrepps og fram- kvæmdastjóra Ungmennafélagsins Neista. Starfið fékk hann og var það kveikjan að því að fjölskyld- an litla flutti austur. „Flutningarn- ir voru ekki ákveðnir með löngum fyrirvara, við sáum auglýsinguna um starfið í júlílok, meltum þetta yfir verslunarmannahelgina og svo í lok ágúst vorum við búin að ákveða að flytja,“ segir Greta Mjöll en hún var á þeim tíma að klára fæðingarorlof þannig að þá var farið í að finna eitthvað fyrir hana að gera á Djúpavogi. Þá kom í ljós að það vantaði íþróttakennara og þjálfara á staðinn. „Þar sem ég er með þessa reynslu af íþróttum taldi ég mig alveg geta leyst það af hendi. Ég hef því kennt öllum börnunum íþróttir í vetur og þjálf- að nánast öll þeirra líka í Neista og hefur það verið ótrúlega skemmti- leg reynsla.“ tilbúin að prófa nýja hluti Greta segir það vera heilmikið mál að flytja svona langt, að rífa fjöl- skylduna upp með rótum og taka þetta skref. „Margir í fjölskyld- unni hans Óðins hafa prófað að flytja út á land úr borginni og hafa borið því vel söguna. Við höfð- um rætt þetta og velt þessu fyrir okkur um nokkurt skeið. Sérstak- lega eftir að við eignuðumst litlu Regínu,“ útskýrir Greta og held- ur áfram. „Það tala allir um að tíminn þegar börnin eru lítil fljúgi áfram og ég var ekki tilbúin að leyfa honum að fljúga frá mér. En ég skil vel af hverju hann gerir það. Það eiga allir að vera að gera „allt“ og það helst á nákvæmlega sama tíma. Þegar þú ert að hefja feril þá áttu helst líka að stofna fyrir- tæki, skrifa bók, eignast öll börn- in þín og vera fullkomin á meðan. Þessi hönnun er hálf skrítin finnst mér stundum. Við ættum í raun að byrja að eignast börn um fimm- tugt. Þá eru allir komnir í svo gott jafnvægi,“ segir hún hugsi og bætir við að henni finnist press- an um að gera þetta allt saman á sama tíma of mikil. „Ég var bara ekki til í þetta. Ég horfði á þetta þannig að með því að flytja hingað væri ég kannski að ýta hlutum aðeins til hliðar og myndi ná að njóta dóttur minnar. Svo er maður náttúrlega bara á fullu hér og hef sjaldan verið jafn upptekin. En samt á góðan hátt, mér finnst ég vera að njóta Reg- ínu og tímans með henni. Svo get ég bara skrifað bók seinna,“ segir Greta brosandi. besta hlutverkið Regína Anna Lefever, dóttir Lífsstíll Seguldrifinn blandari 1 7 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 4 -4 2 4 8 1 9 C 4 -4 1 0 C 1 9 C 4 -3 F D 0 1 9 C 4 -3 E 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.