Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.06.2016, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 17.06.2016, Qupperneq 40
Sýningin Draumur aldamótabarns verður opnuð í Kirkjubæ í dag, á sjálfan þjóðhá- tíðardaginn. Er Kirkjubær ný viðbót við grunnsýningu Byggðasafns Árnesinga sem staðið hefur undanfarið 21 ár. „Byggðasafnið keypti Kirkjubæ árið 2011 og hefur unnið ötullega að endur- bótum á húsinu. Okkur þótti gráupplagt að kaupa bæinn með það fyrir augum að útvíkka sýningarhaldið. Nú er búið að gera Kirkjubæ upp og sýningin klár,“ útskýrir Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga. Safnið hefur nýtt arf Helga Ívarssonar frá Hólum til þessa verkefnis. Útgangspunktur sýningarinnar Draums aldamótabarnsins er venjulegt líf fólks á árunum 1920 til 1940. „Sýningin er upp- full af safnmunum í réttu samhengi og skemmtilegum fróðleik um tímabilið. Þarna eru textar, munir og svo Kirkjubær sem talar sínu máli,“ segir Lýður. Og sennilega er það rétt, því saga þessa litla bárujárnsklædda timburhúss er heil- mikil. „Húsið á Eyrarbakka var heimili heldra fólks, þar bjó kaupmaðurinn til dæmis. Í kringum það hús voru hús alþýðunnar og þar með Kirkjubær, sem byggt var vestan við Húsið. Það var byggt af almúgafólki árið 1920. Þar er svo búið til 1983 uns það varð að sumarhúsi. Ólafur Haukur Símon- arson rithöfundur átti það til dæmis um tíma,“ segir hann glaðlega og bætir við að eldri hjón úr Reykjavík hafi svo keypt það og nostrað við garðinn, sem nú sé heilmikið aðdráttarafl, enda fallegur með eindæmum. Lýður segir alla hjartanlega velkomna í Kirkjubæ í dag, en hann verður opn- aður klukkan 12 á hádegi og er aðgangur ókeypis í tilefni dagsins. Gefst gestum sömuleiðis færi á að skoða Sjóminjasafnið og Húsið, en sé á heildina litið er Eyrar- bakki nánast eins og eitt stórt safn svo allir ættu að finna eitthvað fyrir sinn smekk. gudrun@frettabladid.is Dyr aftur til fortíðar opnaðar í Kirkjubæ í dag Byggðasafn Árnesinga hefur gert Kirkjubæ upp og bætir honum þar með við ríkulega safnaflóru á Eyrarbakka. Kirkjubær var byggður árið 1920 og er nú kominn í fyrra horf. Lýður Pálsson safnstjóri við Húsið á Eyrarbakka. Hann er afar ánægður með viðbótina sem opnuð verður almenningi í dag. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Alfreð Júlíusson vélfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 15. júní. Guðbjörg Alfreðsdóttir Ásmundur Karlsson María Júlía Alfreðsdóttir Símon Ólafsson Ólöf Alfreðsdóttir Ágúst Victorsson Kristín Gróa Alfreðsdóttir Ragnar Ríkharðsson barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, Gunnþóra Sigurbjörg Kristmundsdóttir sem lést 10. júní síðastliðinn, verður jarðsungin frá Langholtskirkju í Reykjavík, fimmtudaginn 30. júní kl. 15. Þorkell Helgason Þorsteinn Helgason Þorlákur Helgi Helgason Þorvaldur Karl Helgason Þorgeir Sigurbjörn Helgason Þóra Elín Helgadóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þórdís Halldóra Sigurðardóttir Gullengi 6, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 15. júní. Útför hennar verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 23. júní kl. 13.00. Jónína Jóhannsdóttir Sigurður Jóhannsson Áslaug Jóna Sigurbjörnsdóttir Auður Haraldsdóttir Atli Már Sigurðsson Erla Haraldsdóttir Magnús Hreggviðsson Haukur Páll Haraldsson Marilee Haraldsson Hjörtur Haraldsson Sólveig Níelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma. Svala Jónsdóttir Smárahvammi 6, Hafnarfirði, sem lést mánudaginn 13. júní, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 15.00. Örn Bergsson Valur Arnarson Elín Perla Kolka Halla Katrín Svölu- og Arnard. Óskar Björnsson Jón Arnarson Rósa Margrét Grétarsd. Ingibjörg Arnardóttir Páll Jakob Malmberg Bergur Arnarson Þórhildur Sif Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Sr. Örn Friðriksson sóknarprestur og prófastur á Skútustöðum í Mývatnssveit, lést fimmtudaginn 9. júní síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 1. júlí kl. 13.30. Álfhildur Sigurðardóttir Áslaug Arnardóttir Klaus Wendt Friðrik Dagur Arnarson Sigyn Eiríksdóttir Arnfríður Arnardóttir Erlingur Harðarson Þórdís Arnardóttir Ingólfur Sigurðsson Sigurður Ágúst Arnarson Svanhildur Ástþórsdóttir og fjölskyldur. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Gestur Vigfússon lést á Hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ 10. júní. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 27. júní kl. 13.00. Svanur Marteinn Gestsson Valgeir Gestsson Jónína Rós Guðmundsdóttir Vilbergur Vigfús Gestsson Anna Lilja Hafsteinsdóttir Sævar Bragi Arnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu. Rögnu Bergmann Guðmundsdóttur Sérstakar þakkir fær starfsfólk Skógarbæjar fyrir góða umönnum. Eiríkur Þorsteinsson Linda Björnsdóttir Valur Ragnar Jóhannsson Sædís Arndal Katrín Gróa Jóhannsdóttir Trausti Friðfinnsson Jóhanna Huld Jóhannsdóttir Albert Ingason Guðrún Edda Jóhannsdóttir Birgir Ingibergsson Bergþóra Ósk Jóhannsdóttir Ólafur Eyjólfsson Örn Ingvar Jóhannsson Iðunn Ása Hilmarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Magðalena Sigríður Elíasdóttir (Siddý) andaðist föstudaginn 10. júní. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 20. júní klukkan 11.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Guðrún Helga Theodórsdóttir Jón Hilmarsson Elías Theodórsson Ester Ólafsdóttir Steinunn Hulda Theodórsdóttir Örn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Merkisatburðir 1900 Fyrsta póstferð með varning og fólk í fjórhjóla hestvagni farin frá Reykjavík austur í sveitir. 1907 Íslenskur fáni, blár og hvítur, er fyrst dreginn að húni um landið. 1911 Háskóli Íslands er settur í fyrsta sinn á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta. 1918 Loftskeytastöðin á Melunum í Reykjavík er tekin í notkun í samvinnu við Marconi-félagið í London. 1925 Á Ísafirði er tekið í notkun nýtt sjúkrahús sem talið var hið fullkomnasta á Íslandi. 1926 Björg Karítas Þorláksdóttir verður fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi er hún ver doktorsritgerð sína við Sorbonne-há- skóla í París. 1941 Alþingi kýs Svein Björnsson sem fyrsta ríkisstjóra Íslands. 1944 Stofnun íslenska lýðveldisins er formlega lýst yfir á Þing- völlum og stjórnarskrá lýðveldisins staðfest. 1959 Íþróttaleikvangurinn í Laugardal er vígður. 1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R24 T í m A m ó T ∙ F R É T T A B L A ð i ð tímamót 1 7 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 4 -1 A C 8 1 9 C 4 -1 9 8 C 1 9 C 4 -1 8 5 0 1 9 C 4 -1 7 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.