Fréttablaðið - 17.06.2016, Page 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Helga Rós, konan mín, er búningahönnuður og hefur unnið við megnið af því
sem ég hef gert á mínum ferli, svo
við erum alls ekki að vinna saman í
fyrsta skipti,“ segir Ragnar Bragason
leikstjóri.
Nú standa yfir tökur á sjónvarps-
þáttaröðinni Föngum í kvenna-
fangelsinu í Kópavogi. Synir þeirra
Ragnars og Helgu vinna einnig við
þáttaröðina þannig að öll fjölskyld-
an er saman á tökustað. „Strákarnir
mínir tveir, Alvin Hugi og Bjartur
Elí, vinna sem aðstoðarmenn við
framleiðslu. Þetta er byrjendastaða
í bransanum, þar sem þú ert í nánast
öllu sem til fellur,“ segir Ragnar og
segir samstarf fjölskyldunnar ganga
frábærlega vel.
„Hér hefur allt gengið að óskum
og áfallalaust fyrir sig. Við erum
að verða hálfnuð með tökurnar og
erum staðsett sem stendur í gamla
kvennafangelsinu í Kópavogi.
Seinni hluti tökuplansins fer svo
víðs vegar um Reykjavíkursvæðið,“
segir Ragnar.
Upphaf þáttanna má rekja til
rannsóknarvinnu þeirra Nínu Dagg-
ar Filippusdóttur og Unnar Aspar
Stefánsdóttur sem heimsóttu fanga
og fangaverði í kvennafangelsið í
Kópavogi í heil sjö ár, en þær fara
báðar með hlutverk í þáttunum.
Margrét Örnólfsdóttir og Ragnar
Bragason skrifuðu handritið sem
fjallar um Lindu, unga reykvíska
konu sem færð er í kvennafangelsið
eftir alvarlega líkamsárás á föður
sinn.
„Þetta er mikið fjölskyldudrama,
við kynnumst fjölskyldu sem dílar
við mikinn harmleik. Í sögunni
kynnist við Lindu, annarri af
tveimur dætrum þekkts manns úr
viðskiptalífinu. Líf hennar hrynur
þegar hún er færð í kvennafang-
elsið í Kópavogi eftir að hafa ráðist á
föður sinn og veitt honum lífshættu-
lega áverka. Við erum í rauninni að
fylgja konunum í þessari fjölskyldu
eftir og sjá hvernig þær díla við
þessar aðstæður,“ segir Ragnar og
bætir við að í fangelsinu kynnist
Linda konum af öðru sauðahúsi,
sem allar hafa sögu að segja.
Margir spyrja sig eflaust hvort
þáttaröðin sé eitthvað í líkingu við
fangaþáttinn vinsæla Orange Is the
New Black en Ragnar segir svo ekki
vera. „Nei, alls ekki. Fangar er miklu
meiri dramaþáttur, þar sem kyn-
bundið ofbeldi, þöggun og þyngri
hlutir koma fyrir,“ segir hann.
Leikhópurinn spannar hátt í
hundrað manns þar sem uppi-
staðan eru konur á öllum aldri og
er því óhætt að segja hópurinn sé
afar fjölbreyttur
„Þetta er dásamleg blanda. Uppi-
staðan er konur á öllum aldri, í
hópnum eru þrjár ungar leikkonur
sem eru nýútskrifaðar úr Listahá-
skólanum og koma þarna inn með
látum. Það er góður samhljómur í
hópnum og gaman að sjá eldri og
reyndari leikara í bland við yngri
leikara, og stemmingin hefur orðið
náin og falleg,“ segir Ragnar.
gudrunjona@frettabladid.is
Samstarf fjölskyldunnar
gengur vel
Tökur standa nú yfir á sjónvarpsþáttaröðinni Föngum. Svo
skemmtilega vill til að heil fjölskylda starfar saman að þáttunum.
Ragnar Bragason leikstjóri, eiginkona hans Helga Rós Hannam
búningahönnuður og synir þeirra tveir starfa saman á tökustað.
Hjónin Helga Rós og Ragnar Bragason ásamt drengjunum sínum Alvin Huga og Bjarti Elí. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Tökur hafa gengið vel í gamla kvennafangelsinu í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R38 L í F i ð ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
4
-1
0
E
8
1
9
C
4
-0
F
A
C
1
9
C
4
-0
E
7
0
1
9
C
4
-0
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K