Fréttablaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 15
Leiguheimili eru byggð á
lögum um almennar íbúðir.
leiguheimili.ils.is
Dreymir þig
um lægri leigu?
Stígðu fyrsta skrefið og hjálpaðu okkur
að meta þörfina fyrir fleiri Leiguheimili
Leiguheimili er nýtt kerfi að danskri fyrirmynd sem
gerir meðaltekjufólki kleift að komast í 20–30% lægri
langtímaleigu. Kíktu inn á leiguheimili.ils.is og
skráðu þig á póstlistann. Við munum senda þér fréttir
af framvindu verkefnisins. Segðu okkur í leiðinni hvar
þú vilt búa og hversu marga fermetra þú þarft.
Þarf eitthvað að ræða það? Var það ekki ákveðið á Þingvöllum 1944? Jú, en nú í aðdrag
anda kosninga á 72 ára afmælisári
litla lýðveldisins okkar er ágætt að
skoða hvernig gengur. En hvern
ættum við að spyrja? Eigum við að
spyrja börnin 6.000 sem búa við
skort hvort Ísland sé okkar allra
eða eigum við kannski að spyrja
sex ríkustu sægreifana? Eigum við
að spyrja þann helming þjóðar
innar sem á minna en ekki neitt
eða eigum við kannski að spyrja
topp eina prósentið sem á meira
en fjórðung auðs á Íslandi?
Marga mætti spyrja en það liggur
beint við að spyrja Tvíflokkinn, því
þeir hafa setið í ríkisstjórnum 90%
tímans frá lýðveldisstofnun. Ríkis
stjórnarflokkarnir hafa reyndar
svarað hátt og snjallt. Það gerðu
þeir með verkum sínum á síðasta
kjörtímabili þar sem hvert ein
asta af stóru málum þeirra kom
vel stæðum betur en þeim sem
verr standa. Þetta var einkennis
merki allra þeirra aðgerða, allt frá
skuldaleiðréttingunni yfir í náms
lánafrumvarpið. Þó þeir segi annað
þessa dagana er augljóst af verkum
þeirra að þeir telja ekki að Ísland
eigi að vera okkar allra.
Við Íslendingar erum stolt þjóð
og dugleg. Við veiðum rúmlega
1% af fiskafla heimsins en erum
aðeins 0,004% af mannfjöldanum,
við framleiðum stóran hluta af um
hverfisvænni orku Evrópu og fáum
miklu fleiri ferðamenn á mann en
mestu ferðamannalönd heims,
Frakkland og Spánn. Það hefur
verið frábært að sjá hvernig þjóðin
hefur brett upp ermarnar og stokk
ið í að gera ferðamannaævintýrið
að auðsæld en dapurt að sjá ráð
herrana reyna að stela heiðrinum
af fólkinu. Það er dálítið spaugi
legt nú þegar ríkisstjórnin belgir
sig yfir árangri sínum að stærsta og
farsælasta efnahagsaðgerð síðasta
kjörtímabils var alls ekki gerð af
ríkisstjórninni, heldur launþega
hreyfingunni.
Við erum rík þjóð og gengur vel á
mörgum sviðum en fátt líkar okkur
Íslendingum verr en vera eftirbátar
annarra og allra verst er að vera
síðri en Danir. Því miður erum við
á eftir þeim í því sem mestu máli
skiptir fyrir heill og hamingju
fólks, lífskjörum almennings;
kaupmætti launa, vinnustunda
fjölda, húsnæðis málum og aðgengi
að heilbrigðisþjónustu. Staðan er
ekki alveg 142 fyrir þá en það er
auðmýkjandi fyrir sjálfstæða þjóð
að horfast í augu við að hér hefði
almenningur það betra ef landið
væri enn þá nýlenda.
Manneskjulegustu samfélögin
Ísland þarf að komast út úr frjáls
hyggjuhagstjórn síðustu áratuga.
Við þurfum að taka samfélög
Norðurlanda okkur til fyrirmynd
ar því þar eru manneskjulegustu
samfélög heimsins. Meira að segja
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og
Alþjóðabankinn hafa yfirgefið
brauðmolahagfræðina og lýst því
yfir að mestur hagvöxtur og hag
sæld skapist þegar auðnum er dælt
niður samfélagið, til þeirra sem
minna hafa. – Eins og vinstra fólk
hefur alltaf sagt.
Nú er fjör í litla lýðveldinu, það
eru að koma kosningar! Við höfum
myndað okkur skoðun á hinum og
þessum málum, skrifum x á kjör
seðil og setjum hann svo hátíðleg á
svip niður í kassa með innbyggðum
pappírstætara! Undarlegt með
þessa kjörkassa, maður setur seðil
í kassann og það er eins og kjör
seðillinn sé strax ristur niður í
fjölmargar litlar ræmur og ef flokk
urinn sem maður kýs kemst í ríkis
stjórn verður hver og ein ræma að
blessun manns á einstökum málum
stjórnarinnar allt næsta kjörtíma
bil! Sem betur fer. Fráfarandi for
maður fjárlaganefndar orðaði þetta
svona í viðtali um umdeilt mál: „Svo
eru alþingiskosningar bindandi
þjóðar atkvæðagreiðsla.“ Öll þing
mál afgreidd í einni kosningu með
einu atkvæði!
Og enn versnar í því ef flokkur
inn sem við kusum fer ekki í ríkis
stjórn, þá er atkvæðið næstum
alveg áhrifalaust, því á þingi er nær
ekkert tillit tekið til skoðana þing
minnihlutans.
En hvað er til ráða fyrir okkur
greyin, valdleysingjana, kjósendur?
Getum við haft raunveruleg áhrif í
kosningum? Já, ef við hættum að
ímynda okkur að litla atkvæðið
okkar taki á einstökum málum. Þess
í stað eigum við að skoða megin
stefnur stjórnmálaflokkanna.
Við sáum á verkum fráfarandi
ríkisstjórnar að hún trúir ennþá
á að best sé að dæla auðnum upp
samfélagið til þeirra sem betur
standa en við sáum líka að rústa
björgunarstjórnin á undan henni
reyndi við erfiðar aðstæður að
halda uppi hlut þeirra sem minna
eiga á Íslandi. Vinstri og hægri eru
ekki úrelt hugtök í stjórnmálum,
þó frasinn sé í tísku á miðjunni og
henti sérhagsmunaklíkum vel til
að slá ryki í augu fólks.
Pólitík er hagsmunabarátta og
átakapunkturinn er hvernig á að
fara með samfélagsauðinn. Stóra
spurningin í kosningunum er hvort
Ísland er okkar allra.
Ísland er okkar allra
Sverrir
Björnsson
hönnuður
En hvað er til ráða fyrir
okkur greyin, valdleysingj-
ana, kjósendur? Getum
við haft raunveruleg áhrif
í kosningum? Já, ef við
hættum að ímynda okkur
að litla atkvæðið okkar taki
á einstökum málum. Þess
í stað eigum við að skoða
meginstefnur stjórnmála-
flokkanna.
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15Þ R i ð J u D A G u R 2 5 . o k T ó B e R 2 0 1 6
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
C
-F
6
D
C
1
B
0
C
-F
5
A
0
1
B
0
C
-F
4
6
4
1
B
0
C
-F
3
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K