Fréttablaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 20
Jón Valgeir hefur tvívegis keppt
fyrir Íslands hönd í Sterkasti
maður heims og margoft tekið þátt
í Vestfjarðavíkingi og sams konar
keppnum. Hann flutti til Bretlands
fyrir tveimur árum og fékk fljót
lega vinnu sem einkaþjálfari hjá
líkamsræktarkeðjunni Virgin Act
ive. Stöðin heitir Chiswick River
side og er flaggskip keðjunnar í
London. Eftir að hafa unnið þar í
um sex mánuði var Jóni Valgeiri
boðin „Master Trainer“ eða yfir
þjálfarastaða við stöðina.
Jón Valgeir leggur að sögn
höfuð áherslu á aflraunir og kraft
lyftingar. „Ég kenni viðskiptavin
um mínum að lyfta rétt. Ég legg
upp úr því að laga líkamsstöðu
þeirra með því að styrkja veiku
hlekkina í líkamanum og kenni
þeim að nota allan líkamann í ein
földustu æfingar,“ segir Jón. Hann
hefur auk þess boðið viðskiptavin
um sínum upp á æfingaferðir til
Íslands. „Ég fór í fyrstu ferðina í
sumar. Ég fór með tvo viðskipta
vini sem tóku miklum framförum
á aðeins örfáum dögum. Fleiri hafa
í kjölfarið lýst áhuga á sams konar
ferðum og eru þær í bígerð,“ segir
Jón Valgeir.
Hann fór meðal annars með við
skiptavini sína í Jakaból til Magn
úsar Vers Magnússonar þar sem
þeir tóku eðli málsins samkvæmt
vel á því. Hann fór líka með þá í
Dritvík á Snæfellsnesi þar sem
þeir reyndu við aflraunasteinana
fjóra; Amlóða, Hálfdrætting, Hálf
sterkan og Fullsterkan. „Strákarnir
lyftu fyrstu þremur og ég endaði á
að rífa upp Fullsterkan sem er 155
kíló. Þá fórum við á keppnina Sterk
asti maður Íslands í Grindavík þar
sem við hittum keppendur eins og
Hafþór Júlíus Björnsson, Stefán
Sölva Pétursson og Sigfús Foss
dal sem þeim þótti mikið til koma.
Eins smökkuðum við alíslenskar
kræsingar á borð við hákarl, hval,
harðfisk og skyr sem gerir auðvit
að ekkert annað en að herða menn.“
Jón Valgeir segir viðskiptavini
sína hafa tekið miklum framför
um í ferðinni og að aðrir vilji feta í
þeirra fótspor. Hann er sannfærð
ur um að íslenski víkingaandinn
hafi átt þátt í því. „Þegar þeir byrj
uðu hjá mér í þjálfun var hvorug
ur þeirra í nokkru styrktarformi.
Í Íslandsferðinni bættu þeir sig
báðir í bekkpressu og tóku 100 kíló.
Þeir lyftu 100 kílóa bjargi í Drit
vík og áttatíu kílóum í hvorri hendi
í bændagöngu og komu tvíefldir
heim til London. Þeir voru yfir sig
hrifnir af landi og þjóð, ánægjan
hefur spurst út og ég hlakka til að
koma heim með fleiri hópa.“
víkingaferðir
mælast vel fyrir
Einkaþjálfarinn og aflraunamaðurinn Jón Valgeir Williams starfar hjá
líkamsræktarkeðjunni Virgin Active í London og býður viðskiptavinum
sínum upp á víkingaferðir til Íslands. Hann leggur áherslu á kraftlyft-
ingar og aflraunir og að blása viðskiptavinum sínum víkingaanda í
brjóst. Fyrsta ferðin var farin í sumar og eru fleiri í bígerð.
Viðskiptavinir Jóns Valgeirs voru yfir
sig ánægðir með Íslandsferðina og
munu fleiri fylgja í fótspor þeirra.
Það var upplifun að fara á Sterkasta mann Íslands og hitta menn eins og Stefán
Sölva Pétursson.
Menn reyndu sig við aflraunasteinana fjóra í Dritvík.
HEILL HEIMUR AF
SKEMMTUN VIÐ HÖNDINA
Stöð 2 Maraþon NOW er ný streymisveita fyrir
snjallsíma, spjaldtölvur, Apple TV og vefspilara.*
2now.is
2.990 KR. Á MÁNUÐI
*Þjónustan er einnig aðgengileg á myndlyklum Símans.
MÍN AÐ SKRÁ SIG
DAGAR FRÍTT3
HEILL HEIMUR AF
SKEMMTUN VIÐ HÖNDINA
Stöð 2 Maraþon NOW er ný streymisveita fyrir
snjallsíma, spjaldtölvur, Apple TV og vefspilara.*
2now.is
2.990 KR. Á MÁNUÐI
*Þjónustan er einnig aðgengileg á myndlyklum Símans.
MÍN AÐ SKRÁ SIG
DAGAR FRÍTT3
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
C
-E
3
1
C
1
B
0
C
-E
1
E
0
1
B
0
C
-E
0
A
4
1
B
0
C
-D
F
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K