Fréttablaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 8
Styrkir til úttekta á aðgengismálum
fatlaðs fólks
Velferðarráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar styrki til úttekta á
aðgengismálum fatlaðs fólks. Styrkirnir eru veittir í samræmi við
framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks þar sem gert er ráð
fyrir úttektum á aðgengi að opinberum byggingum, umferðarmann-
virkjum og öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að.
Styrkirnir voru áður auglýstir í september síðastliðnum en ákveðið
var að ítreka auglýsinguna og framlengja umsóknarfrestinn til
2. nóvember.
Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks gerir ráð fyrir úttektum
á aðgengi að opinberum byggingum, umferðarmannvirkjum og
öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að.
Sveitarfélög bera ábyrgð á úttektum (sbr. aðgerðalið A.1 í áætlun-
inni) en markmið úttektanna er að leiða í ljós stöðu aðgengismála í
hlutaðeigandi sveitarfélagi. Í framhaldi af úttekt verði gerð áætlun
um úrbætur, ef við á.
Velferðarráðuneytið mun veita styrki til þess að framkvæma um-
ræddar úttektir. Auglýst er eftir styrkumsóknum frá sveitarfélögum
sem ljúka slíkri úttekt á yfirstandandi ári 2016. Þjónustusvæði sem
samanstanda af fleiru en einu sveitarfélagi, sem og ferlinefndir,
geta einnig sótt um styrk.
Starfshópur metur umsóknir en forsenda fyrir greiðslu styrks er að
ráðuneytinu hafi borist afrit af úttekt sem lýsi stöðu aðgengismála
í sveitarfélaginu. Reiknað er með að þessum afritum verði skilað
eigi síðar en 10. desember 2016 og greiðsla styrksins fari fram fyrir
áramót.
Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 2. nóvember
kl. 16.00
Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef
Stjórnarráðsins (http:// minarsidur.stjr.is)
SÍÐUMÚLI 14 108 REYKJAVÍK
SÍMI 510 5510
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8 -18
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Syrgja fallinn hermann
Geðshræringin var mikil í útför indverska hermannsins Gurnam Singh sem fram fór í fyrradag. Singh lést
af sárum sínum tveimur dögum eftir að hafa orðið fyrir skoti pakistanskrar leyniskyttu. Árásin átti sér stað
skammt frá borginni Jammu, vetrarhöfuðborg Kasmírhéraðs. Deilt hefur verið um Kasmírhérað frá árinu
1947 og reglulega gerist það að andstæðar fylkingar Indverja og Pakistana skjóta hvor á aðra. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Frakkland Frönsk stjórnvöld hóf
ust handa í gærmorgun við að rýma
flóttamannabúðirnar við Calais,
skammt frá syðri enda Ermar
sunds ganganna. Meira en þúsund
lögreglumenn voru kallaðir til
verksins.
Á þriðja þúsund flóttamanna voru
flutt þaðan í gær með rútum, en búið
var að úthluta 7.500 manns húsa
skjóli í flóttamannabúðum á sam
tals um 450 stöðum víðs vegar um
Frakkland.
Um 1.300 þeirra eru á barnsaldri,
yngri en 18 ára, en ein síns liðs.
Frönsk stjórnvöld hafa undan
farið staðið í samningaviðræðum
við Breta um að taka við þessum
börnum, þar sem mörg þeirra eiga
ættingja sem búa í Bretlandi og vilja
af þeim sökum komast þangað.
Þau eiga mörg hver lagalegan rétt
á því að komast til ættingja sinna
í Bretlandi og fá þar hæli, en bresk
stjórnvöld hafa verið treg til að taka
við þeim. Samkomulag náðist þó á
endanum um að þau fái flest að fara
til Bretlands.
Brottflutningarnir virtust ganga
vel fyrir sig, framan af í það minnsta.
Flóttafólkið fylgdi fyrirmælum lög
reglu, beið í biðröðum og fór um
borð í rúturnar eins og fyrir var lagt.
Um helgina brutust hins vegar út
átök þar í búðunum milli lögreglu
annars vegar og flóttafólks og mót
mælenda hins vegar, sem voru að
mótmæla fyrirhugaðri lokun búð
anna. Lögreglan beitti þá táragasi
gegn mótmælendum, sem köstuðu
grjóti í lögregluna.
Mannréttindasamtök á borð við
Amnesty International hafa fylgst
grannt með aðgerðum lögreglunnar,
beinlínis í þeim tilgangi að draga úr
líkunum á lögregluofbeldi.
Um sjö þúsund manns hafa búið
í búðunum undanfarið, samkvæmt
opinberum tölum, en hjálparsamtök
segja íbúana hafa verið rúmlega átta
þúsund.
Þangað hefur safnast fólk sem
reynir að komast um Ermarsunds
göngin til Bretlands. Vöruflutninga
bílar á leiðinni inn í göngin eru iðu
lega stöðvaðir með ýmsum ráðum
þannig að fólk geti reynt að smygla
sér með þeim norður á bóginn.
Alain Juppé, sem gerir sér vonir
um að verða næsti forseti Frakk
lands, sagði nýverið að færa ætti
landamæraeftirlitið við Ermarsunds
göngin frá Frakklandsenda þeirra í
Calais yfir til Kent á Englandi. Bresk
stjórnvöld hafa tekið illa í þá hug
mynd.
Fyrr á þessu ári voru búðirnar
minnkaðar um helming, en ekki
fækkaði íbúum þar neitt. Þegar mest
var höfðust þar við um tíu þúsund
manns. gudsteinn@frettabladid.is
Frönsk yfirvöld flytja
flóttamenn frá Calais
Þúsundir flóttamanna hafa verið fluttar til flóttamannabúða víðs vegar um
Frakkland. Bretar hafa verið tregir til að taka við meira en þúsund fylgdar
lausum börnum sem eiga rétt á að sameinast ættingjum sínum í Bretlandi.
8.143
flóttamenn bjuggu í Calais-
búðunum áður en brott-
flutningur þeirra hófst í gær,
samkvæmt mati hjálpar-
stofnana. Opinber tala hefur
verið um sjö þúsund.
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U d a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
C
-E
C
F
C
1
B
0
C
-E
B
C
0
1
B
0
C
-E
A
8
4
1
B
0
C
-E
9
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K