Fréttablaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 6
Auglýsing
frá landskjörstjórn um framboð
við alþingiskosningar 29. október 2016.
Með vísan til 44. gr. laga um kosningar til Alþingis er framboðslisti
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi
birtur á ný þar sem nafn frambjóðanda hafði misritast.
V – listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs:
1. Lilja Rafney Magnúsdóttir,
kt. 240657-7919, alþingismaður, Hjallavegi 31, Suðureyri.
2. Bjarni Jónsson,
kt. 060666-3939, forstöðumaður, Raftahlíð 70, Sauðárkróki.
3. Dagný Rósa Úlfarsdóttir,
kt. 210176-3149, grunnskólakennari, Ytra-Hóli, Skagabyggð.
4. Rúnar Gíslason,
kt. 170496-3029, leiðbeinandi, Brákarbraut 4, Borgarnesi.
5. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir,
kt. 260986-3259, líffræðingur og kennari,
Kleppjárnsreykjum, Reykholti.
6. Reynir Þór Eyvindsson,
kt. 190363-4149, verkfræðingur, Skógarflöt 25, Akranesi.
7. Hjördís Pálsdóttir,
kt. 080686-2699, safnstjóri, Bókhlöðustíg 1, Stykkishólmi.
8. Þröstur Þór Ólafsson,
kt. 221265-5139, iðnkennari, Steinsstaðaflöt 21, Akranesi.
9. Berghildur Pálmadóttir,
kt. 110186-2829, ráðgjafi, Fagurhólstúni 1, Grundarfirði.
10. Halla Sigríður Steinólfsdóttir,
kt. 110564-2609, bóndi, Ytri-Fagradal 2, Dalabyggð.
11. Bjarki Hjörleifsson,
kt. 220389-2439, vert, Ásklifi 11, Stykkishólmi.
12. Dagrún Ósk Jónsdóttir,
kt. 131293-2329, yfirnáttúrubarn, Kirkjubóli 1, Hólmavík.
13. Ingi Hans Jónsson,
kt. 240255-7749, sagnaþulur, Sæbóli 13, Grundarfirði.
14. Lárus Ástmar Hannesson,
kt. 150766-4199, kennari, Nestúni 4, Stykkishólmi.
15. Guðný Hildur Magnúsdóttir,
kt. 130669-3019, félagsráðgjafi, Hreggnasa, Bolungarvík.
16. Guðbrandur Brynjúlfsson,
kt. 300448-8019, bóndi, Brúarlandi 2, Borgarbyggð.
Reykjavík, 24. október 2016.
Landskjörstjórn.
XP
PÍRATAR KYNNA
Í DAG KL 16:00-18:00
Í NORRÆNA HÚSINU
Kerfisbreytingar í sjávarútvegi
Tökum samtalið
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa kveðið sér hljóðs
um málefni sjávarútvegsins og hefur yfirskrift þeirrar
herferðar verið “Samtal um sjávarútveg”. Píratar vilja því
taka útvegs menn á orðinu og efna til mál efnalegrar, opin-
berrar umræðu og samtals þar sem sérfræðingar frá hvorri
hlið skoða alla fleti þessa mikilvæga málaflokks. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir!
Ólafur Arnarson
SFÚ – Samtök Fiskfram-
leiðenda og útflytjenda
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Framkvæmdastjóri SFS –
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóri Fréttatímans
Heiðar Hrafn Eiríksson
Þorbjörn hf.
Álfheiður Eymarsdóttir
Frambjóðandi Pírata
í Suðurkjördæmi
Fundastjóri: Baldvin Jónsson
Guðmundur Kristjánsson
Brim hf.
Landbúnaður Riðuveiki virðist
vera að skjóta upp kollinum á
nýjan leik í Skagafirði en á síðustu
átján mánuðum hafa fjögur tilvik
komið upp. Bæirnir eru á svip-
uðum slóðum í Skagafirði og liggur
fé þeirra saman á afrétti. Sigríður
Bjarnadóttir, dýralæknir hjá Mat-
vælastofnun, segir mikilvægt að
rannsaka riðutilfellin ítarlega.
„Smitefnið er afar lífseigt og getur
lifað í náttúrunni í fjölda ára. Því
er nokkuð erfitt að eiga við sjúk-
dóminn,“ segir Sigríður. „Í sjálfu sér
er erfitt að finna skýringu á því af
hverju riðan er að koma upp aftur
núna. Við þurfum að víkka út far-
aldsfræðilega rannsókn á riðutil-
fellunum. Féð liggur saman á afrétti
og hafi til að mynda riðuveik kind
drepist á afrétti er smitefnið lengi í
náttúrunni.“
Fyrir þremur áratugum voru
aðgerðir hertar gegn riðu hér á landi
til að stemma stigu við útbreiðslu
hennar. Síðan þá hefur yfir 160
þúsund kindum verið fargað af riðu-
sýktum bæjum. Þrátt fyrir að riðan
sé að koma upp aftur nú í Skaga-
firði eftir nokkur riðulaus ár hefur
mikill árangur unnist. Bændur þurfa
að fara í gríðarlega mikla vinnu
við bú sín þegar riðuveiki greinist
og litlar sárabætur nást upp í það
tap sem hlýst af. „Fótunum er bara
kippt undan manni,“ segir Jónína
Stefánsdóttir, bóndi í Stóru-Gröf
ytri í Skagafirði, en kind hjá henni
greindist með riðu í síðustu viku.
„Nú erum við að missa allt okkar fé
út af einni kind, þetta var ævistarfið
og lifibrauðið. Við höfðum ræktað
þennan stofn í öll þessi ár og svo á
bara að lóga öllu fénu.“
Jónína segir mikið verk fyrir
höndum. „Nú þurfum við að rífa allt
innan úr fjárhúsunum og skipta um
jarðveg og sótthreinsa allt frá toppi
til táar. Það verður skrítin tilfinning
í vetur að hafa jörðina tóma. Í sjálfu
sér er þá ekkert lengur til að vakna
fyrir á morgnana,“ segir Jónina.
sveinn@frettabladid.is
Riða rústar ævistarfi
Jónínu í Stóru-Gröf ytri
Riða hefur greinst á fjórum bæjum í Skagafirði á síðustu átján mánuðum. Jónína
Stefánsdóttir, bóndi í Stóru-Gröf ytri, þarf að skera allt sitt fé eða tæplega 400 fjár.
Smitefnið í riðu er afar lífseigt og getur lifað í náttúrunni í fjölda ára.
Riðuveiki er afar erfiður sjúkdómur því smitberi getur lifað í náttúrunni í áratugi.
Ef riða greinist:
l Þarf að skera allt fé á bænum
l Þarf að skera allt fé sem hefur
verið hýst næturlangt á bænum
l Þarf að skipta um jarðveg í
kringum fjárhús
l Þarf að brenna allt timbur í
fjárhúsum
l Þarf að sótthreinsa stál og veggi
með joði og klór
l Þarf að sótthreinsa tæki og vélar
l Verður jörðin að vera laus við
sauðfé í tvö ár
✿ riðutilfelli í Skagafirði
2009-2016
5
1
2
3
4
1. Dæli 2009
2. Valagerði 2015
3. Víðiholt 2015
4. Brautarholt 2016
5. Stóra-Gröf ytri 2016
Varmahlíð
Sauðár-
krókur
SamféLag Páll Valur Björnsson, þing-
maður Bjartrar framtíðar, telur eðli-
legt að bjóða upp strandveiðikvóta
og byggðakvóta. En þó ættu menn
að fara varlega með að stokka upp
núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi.
„Það er alveg ljóst að núverandi
fiskveiðistjórnunarkerfi er það besta
í heiminum og hefur marg sannað
sig. Því ættum við að fara varlega í
breytingar á kerfinu. Að mínu mati
kæmi ekki til greina að bjóða upp
aflaheimildir á einu bretti,“ segir
Páll Valur.
Hann segir byggðakvóta og
strandveiðikvóta ekki hjálpa byggð-
um landsins. „Það kemur til greina
að bjóða upp þennan kvóta. Með
byggðakvóta eru menn að munstra
sig austur á firði frá öðrum stöðum
á landinu og svo er fiskurinn fluttur
á bílum suður. Einnig með strand-
veiðina, þá getur ekki verið arð-
bært að mörg hundruð báta sæki
þann litla afla sem til skiptanna er
í ólympískum veiðum. Menn eru að
fá mjög lítið út úr þessum veiðum.
Við ættum að geta boðið upp kvót-
ann og skilað þeim fjárhæðum til
byggðanna aftur. Þá gætum við
nýtt mun betur auðlindina til hags-
bóta fyrir landsbyggðina.“ segir Páll
Valur. – sa
Vill uppboð byggða- og strandveiðikvóta
Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar.
Það verður skrítin
tilfinning í vetur að
hafa jörðina tóma. Í sjálfu sér
er þá ekkert lengur til að
vakna fyrir á
morgnana.
Jónína Stefáns-
dóttir, bóndi í
Stóru-Gröf ytri
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I ð J u d a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
C
-F
1
E
C
1
B
0
C
-F
0
B
0
1
B
0
C
-E
F
7
4
1
B
0
C
-E
E
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K