Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Sýningin Iceland er tilrauna-kennd nútímaópera eftir O-Lan Jones. Ég myndi helst lýsa tón-
listinni sem blöndu af indí, óperu og
söngleikjatónlist,“ segir Ásdís Þula
Þorláksdóttir, nýútskrifuð leik-
kona frá New York Film Academy
í Los Angeles, spurð út í sýninguna
Iceland sem frumsýnd verður í The
Ford Theaters í Los Angeles á föstu-
dag.
Fjöldi fólks kemur að sýningunni
og hefur undirbúningsferlið tekið
nokkur ár. Sýningin fjallar um Völu,
unga stúlku sem ólst upp með æsku-
ástinni Munda í litlu þorpi fyrir
norðan. Eftir langan aðskilnað rek-
ast þau hvort á annað á flugvelli þar
sem Vala er á leiðinni norður. Flug-
vélin hennar lendir í stormi og Vala
stekkur út í fallhlíf en fellur niður í
„miðnætti sálarinnar“ þar sem hún
þarf að takast á við persónulegar
hindranir, hugsanir og ótta.
„Álfum og huldufólki bregður
fyrir sem vísa henni svo veginn
í gegnum þessar ógöngur,“ segir
Ásdís. Hún hefur tekið þátt í undir-
búningi sýningarinnar frá upphafi
en hún kynntist O-Lan Jones, höf-
undi sýningarinnar, hér á landi fyrir
nokkrum árum.
„Það vildi svo til að fyrir næstum
þremur árum var O-Lan Jones stödd
hér á Íslandi í rannsóknarvinnu
fyrir sýninguna og leigði herbergi
hjá móður minni. Þegar hún fór svo
aftur til Los Angeles hafði ég sam-
band við hana og fékk að koma í
prufu og komst inn. Þetta hefur
verið mjög hægt ferli, við höfum
unnið mikið með spuna og líkam-
lega tjáningu til þess að finna tengsl
huldufólksins sín á milli og skapa
heiminn sem það býr í,“ segir Ásdís
og bætir við að höfundur sýningar-
innar, O-Lan Jones, sé einn helsti
frumkvöðullinn í frumsömdum
og tilraunakenndum söngleikjum
sem hafa vakið miklu lukku í Los
Angeles.
Undanfarin ár hefur Ísland hlotið
töluverða athygli í Bandaríkjunum,
bæði vegna fjölda ferðamanna sem
hafa heimsótt landið og vegna þess
hversu margir Íslendingar eru að gera
það gott í listheiminum vestanhafs.
„Þegar ég fyrst flutti út fyrir sex
árum og sagði fólki frá því að ég
væri frá Íslandi, svaraði fólk yfir-
leitt: „Já, er ekki Björk frá Íslandi?“
eða „Ég heyrði að Ísland væri grænt
og Grænland væri jökull.“ Seinni
línan var yfirleitt sögð með
miklu stolti eins og fólk væri
að finna upp hjólið. Núna
hins vegar virðist hver ein-
asta manneskja hafa sögu
að segja um vin sinn sem
fór til Íslands, eða um að
hafa komið til Íslands eða
ætlar sér að fara þangað,“
segir Ásdís létt í bragði.
En hvernig er að vera
eini Íslendingurinn í sýn-
ingunni? „Það er frekar sér-
stakt að þurfa að útskýra hin og
þessi orð eða rúnir sem við erum
að skoða, fólk virðist heldur ekki
þreytast á sögum af því hvernig
fólk bjó á Fróninu fríða hér í gamla
daga, í svona miklum tengslum við
náttúruna og hvernig þjóðsögurnar
áttu svona stóran þátt í sjálfsmynd
landans,“ segir hún.
Nóg fleira er fram undan hjá
Ásdísi, en ásamt því að vera á fullu
í lokaundirbúningi fyrir Iceland er
hún að skrifa ljóðabók og vinna
í stuttmynd, ásamt því að skrifa
handrit.
„Það er margt í gangi, og margt
skemmtilegt sem mann langar
til þess að gera. Ég er á höttunum
eftir góðum umboðsmanni ásamt
því að fara í endalausar prufur.
Draumurinn er auðvitað að geta
verið að leika bæði í Los Angeles og
á Íslandi,“ segir hún og bætir við að
nú sé verið að skoða að koma með
sýninguna Iceland til landsins og
yrði auðvitað frábært að fá að taka
þátt í því.
gudrunjona@fréttabladid.is
Sýningin Iceland
frumsýnd í Los Angeles
Leikkonan Ásdís Þula Þorláksdóttir útskrifaðist nýlega frá New
York Film Academy í Los Angeles, hún tekur þátt í uppsetningu á
verkinu Iceland sem frumsýnt verður á föstudaginn í Los Angeles.
Ásdís Þula Þorláksdóttir útskrifaðist frá New York Film Academy í Los Angeles í byrjun sumars, en hún er eini Íslendingurinn
sem fer með hlutverk í sýningunni Iceland. MYND/ÁSDÍS
ÞAð er frekAr
SérStAkt Að ÞurfA
Að útSkýrA hIn og ÞeSSI orð
eðA rúnIr Sem vIð erum Að
SkoðA.
4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r26 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
F
4
-E
F
F
8
1
A
F
4
-E
E
B
C
1
A
F
4
-E
D
8
0
1
A
F
4
-E
C
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K