Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 16
Þegar fólk svarar spurningunni um hvort það sé hamingju- samt er það yfirleitt að svara því hvort það sé ánægt með líf sitt í heild- ina. Það er erfitt að mæla hamingjuna, því hún er huglæg, einstaklings- og aðstæðubundin. Elín Ebba Ásmundsdóttir Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 lilja björk Hauksdóttir liljabjork@365.is elín ebba fjallar um hamingjuna á erindaröð bókasafns Kópavogs um sjálfsrækt í kvöld. Hún segir hamingjutilfinninguna vera eins og fullnægingu. mynd/antOn brinK Elín Ebba Ásmundsdóttir, iðju- þjálfi hjá Hlutverkasetri, mun fjalla um hamingjuna í erindaröð Bókasafns Kópavogs um sjálfs- rækt klukkan átta í kvöld. Erind- ið er annað af þremur í röðinni en fyrsta erindið í þessari sjálfs- ræktar-röð var frá Ingrid Kuhl- man sem ræddi um listina að lifa í núinu og þann 1. nóvember mun Herdís Anna Friðfinnsdóttir flytja erindið Markþjálfun, gæfuspor til sjálfsræktar? „Fólk kemur á bókasöfnin í leit að ákveðinni lífsfyllingu og er þessi erindaröð tilraun til að útvíkka það út frá bókunum og mæta þeirri þörf á fjölbreyttari hátt. Sjálfsræktin er eitthvað sem við höfum öll gott af að gera meira af, þannig að það er ágætt að byrja veturinn á því að styrkja hana að- eins,“ segir Arndís Þórarinsdóttir, deildarstjóri dægurmála á Bóka- safni Kópavogs. Elín Ebba segist ætla að tala í kvöld um hvernig hamingjan er skilgreind. „Þegar fólk svar- ar spurningunni um hvort það sé hamingjusamt þá er það yfirleitt að svara því hvort það sé ánægt með líf sitt í heildina. Það er erf- itt að mæla hamingjuna, því hún er huglæg, einstaklingsbundin og aðstæðubundin. Það getur verið hamingja fyrir einum að eiga þús- und krónur en fyrir annan skiptir þúsundkall engu máli. Hamingjan er að minnsta kosti ekki það að líða vel allan tímann, það er ekki ham- ingja að vera ríkur, að vinna lottó- vinning eða klára stúdentspróf. Þetta fjarar allt saman út. Ham- ingjan er svolítið eins og norður- ljósin, þau koma og hverfa fljótt aftur en á meðan á þeim stendur eru þau æðisleg, hamingjutilfinn- ingin er þannig,“ útskýrir hún. Einstaklingurinn sjálfur, fjöl- skylda og nánasta umhverfi hans og allt samfélagið hefur áhrif á hamingjuna, að sögn Elínar Ebbu. „Við fæðumst með ákveðna eigin- leika, og erum eins og blóm, sum blóm eru harðger en önnur blóm þola ekki minnsta vind. Það er eins með manneskjuna. Við fæð- umst ólík en það hefur úrslita- áhrif í hvaða umhverfi við ölumst upp. Foreldrar hafa mikið að segja, hvort hlúð sé að blómunum á rétt- an hátt, og samfélagið hefur líka áhrif. Ef við búum í samfélagi þar sem við fáum ekki öll jöfn tæki- færi náum við ekki öll að blómstra. Í lýðræðisríki veljum við okkur fólk sem við trúum að geti haft áhrif á þennan stóra jarðveg. Hver og einn þarf að finna sína leið í átt að hamingju, þó við séum öll blóm þá erum við mismunandi tegundir af blómum.“ Segja má að hamingjan sé tímabundið ástand og dæmi um það segir Elín Ebba vera mann- eskju sem þráir að eignast börn. „Hún fyllist hamingju við að eign- ast barn en það er ekki víst að hún verði hamingjusamari við að eiga börn, þeim fylgir ábyrgð og þau geta valdið áhyggjum. Það er eins með maka, fólk þráir að eignast maka en svo getur það snúist upp í andhverfu sína,“ segir hún. Í erindi kvöldsins ætlar Elín Ebba líka að fjalla um muninn á hamingju og lífsfyllingu. Hún segir hamingjuna snúast um að fullnægja þörfum sínum en að lífsfyllingin skipti máli fyrir okkur sem manneskjur. „Ham- ingjutilfinningin er eins og full- næging. Það er ekki eftirsóknar- vert að vera með stanslausa full- nægingu, þá fer hún að snúast upp í andhverfu sína. Það er lífs- fyllingin sem skiptir mestu máli. Þeir sem finna fyrir lífshamingju er fólkið sem gefur af sér, hefur hugsjón eða vinnur fyrir ákveðinn málstað. Það er eftirsóknarvert að finna sína lífsfyllingu og vera sátt- ur við sjálfan sig og umhverfi en ekki endilega að vera hamingju- samur nema einstöku sinnum, eins og þegar maður sér norðurljósin.“ Sonur Elínar Ebbu, fiðluleikar- inn H. Snorri Seljeseth, göfgar er- indið í kvöld með hamingjutónum. Allir eru velkomnir í Bókasafn Kópavogs á meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis. Hamingjan er eins og norðurljósin elín ebba Ásmundsdóttir líkir hamingjunni við norðurljós, þau eru æðisleg á meðan á þeim stendur en þau fjara fljótt út. Hún heldur erindi um hamingjuna á Bókasafni Kópavogs í kvöld. KOMIÐ Í VERSLANIR Guli miðinn styrkir Bleiku slaufuna. 200 kr. af hverju bleiku glasi renna til styrktar Bleiku slaufunni. Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Blómapottar Mikið úrval afblómapottum í öl lum stærðum og gerðum Tilboð Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40 Öll helstu tilþrifin og mörkin! Skotheldur sportpakki sem þú færð bara í kvöldfréttum Stöðvar 2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F 4 -F E C 8 1 A F 4 -F D 8 C 1 A F 4 -F C 5 0 1 A F 4 -F B 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.