Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 39
Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 4. október 2016 Tónlist Hvað? Kvintett Þorgríms Jónssonar Hvenær? 20.30 Hvar? Kex Hostel, Skúlagötu Þriðjudagsjazzinn á Kex er á sínum stað og í þetta skipti er það Kvintett Þorgríms Jónssonar sem kemur fram á þessum vikulega atburði. Kvintettinn skipa þeir Ari Bragi Kárason á trompet, Ólafur Jónsson á tenórsaxófón, Kjartan Valdemarsson á píanó og Rhodes, Þorvaldur Þór Þorvaldsson á trommur og Þorgrímur Jónsson á raf- og kontra- bassa. Frítt inn. Hvað? DJ Heiða Hellvar Hvenær? 22.00 Hvar? Bravó, Laugavegi Söngkonan í rokkgrúppunni Hell- var hvílir raddböndin í kvöld og spilar alla uppáhaldstónlistina sína á Bravó þess í stað. Hvað? Bach tónleikar Hvenær? 20.30 Hvar? Dómkirkjan, Kirkjustræti Píanóleikarinn Ólafur Elíasson tekur Bach fyrir í Dómkirkjunni á hverju þriðjudagskvöldi og það er algjörlega frítt inn. Hvað? Karókíkvöld Hvenær? 22.00 Hvar? Gaukurinn, Tryggvagötu Allir söngfuglar bæjarins bíða gríðarspenntir eftir þessum karókíkvöldum á Gauknum. Karókístöðum í miðbænum hefur fækkað nokkuð og því er líklegt að það sé mikil uppsöfnuð karókí- orka á sveimi hér í bæ. Hvað? Kúnstpása: Forever Young Hvenær? 12.15 Hvar? Norðurljósasalur Hörpu Kúnstpása er röð hádegistónleika í boði Íslensku óperunnar í haust. Yfirskrift tónleikanna í dag er Forever young og fram koma þær Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran- söngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Á efnisskránni verða nokkuð fjölbreytt sönglög í boði og eiga þau það allt sameiginlegt að vera eftir bandarísk tónskáld frá 20. og 21. öld. Enginn aðgangs- eyrir. Hvað? Bassaveisla Hvenær? 12.00 Hvar? Hafnarborg, Strandgötu, Hafnar- firði Bjarni Thor Kristinsson syngur fjölbreyttar aríur úr óperubók- menntunum. Meðal þeirra verka sem Bjarni mun flytja eru úr Brúð- kaupi Figaros, Rakaranum frá Sevilla, Fidelio og Simone Bocca- negra. Enginn aðgangs- eyrir. Fyrirlestrar og fundir Hvað? Vinsæl en umdeild Hvenær? 19.30 Hvar? Bókasafn Seltjarnarness, Eiðistorgi Marín Guðrún Hrafnsdóttir bók- menntafræðingur heldur erindi um Guðrúnu frá Lundi í tilefni 70 ára afmælis skáldsögunnar Dala- lífs. Farið verður yfir æviferil Guð- rúnar, skoðuð verða umfjöllunar- efni skáldsögu Guðrúnar og skoð- að hvers vegna bækur hennar slá enn sölu- og vinsældamet. Þess má geta að Marín er langömmubarn Guðrúnar frá Lundi sem er ansi skemmtileg tenging. Aðgangur er ókeypis. Hvað? The significance of art in our education Hvenær? 17.00 Hvar? Ketilhúsið, Akureyri Dr. Thomas Brewer, mynd- listarmaður og prófessor í listum, heldur þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu í dag. Hann mun fjalla um hvernig list og menntun hafa áhrif á lífið, auk þess sem hann mun rekja persónulega sögu sína og hvernig stendur á að hann er kominn til Akureyrar í fimmta sinn. Aðgangur ókeypis. Hvað? Viljum við samfélag án kennara? Hvenær? 12.10 Hvar? Hátíðarsalur Háskóla Íslands Menntavísindasvið Háskóla Íslands boðar til opins fundar vegna alvarlegrar stöðu í mennta- kerfinu. Kennurum fer fækkandi, bæði sækja færri um í kennara- námi og virðist sem útskrifaðir kennarar skili sér ekki í störf í skólum landsins. Á dagskrá eru ávörp frá rektor, Jóhönnu Einars- dóttur, forseta menntasviðs, Stefáni Hrafni Jónssyni, prófessor í félagsfræði, og eftir það verða pallborðsumræður með full- trúum nokkurra stjórnmálaflokka. Fundar stjóri verður Helgi Seljan. Hvað? Adorno on art and philosophy Hvenær? 12.00 Hvar? Gimli, Háskóla Íslands Sven-Olov Wallenstein, prófessor í heimspeki við Södertörn-háskóla í Svíþjóð, heldur fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar. Hvað? Andlit norðursins Hvenær? 20.00 Hvar? Kaldalón, Hörpu Ragnar Axelsson ljósmyndari segir sögurnar á bakvið þekktustu ljós- myndir sínar frá þrjátíu ára ferli sínum. Áhorfandinn er leiddur inn í undraheim norðursins þar sem er ferðast með hundasleðum á Grænlandi, árabátum við Fær- eyjar og glímt við veðurofsann á Íslandi. Með hverjum miða fylgir ný hátíðar útgáfa af Andlitum norðursins, um 400 blaðsíðna og afar eigulegri bók. Miðaverð er frá 19.500 krónum. Hvað? Gestagangur: Carolyn F. Strauss Hvenær? 12.15 Hvar? Listaháskóli Íslands, Þverholti Carolyn F. Strauss er sýningar- stjóri og hönnunarrannsakandi og ætlar hún að flytja fyrirlesturinn Hægur lestur á flóknum, gagn- virkum heimi. Þarna er fjallað um vítt svið rannsókna og tilrauna sem eru verk Slow Research Lab, þverfaglegrar rannsóknastofu með aðsetur í Hollandi. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir vel- komnir. Viðburðir Hvað? Dauðakaffi Hvenær? 20.00 Hvar? Café Meski, Fákafeni Dauðinn er erfitt konsept fyrir langflest okkar og af því tilefni ætlar hópur fólks að hittast á Café Meski, borða köku, drekka te og ræða dauðann. Allir velkomnir. Hvað? Founders og Fiskimarkaðurinn á Skúla Hvenær? 19.00 Hvar? Skúli – craft bar, Aðalstræti Jonathan Henderson frá Founders brugghúsinu mætir á Skúla og í til- efni þess heldur barinn matar- og bjórpörun í samstarfi við Fisk- markaðinn. Nauðsynlegt er að panta borð. Hvað? Movie villain pubquiz Hvenær? 20.00 Hvar? Stúdentakjallarinn, Sæmundar- götu Illmenni kvikmyndasögunnar verður þemað í þessu pubquizi í Stúdentakjallaranum. Quizið verður á ensku, þrír í hverju liði og átján ára aldurstakmark. Sýning Hvað? KLEINA Hvenær? 16.00 Hvar? Pósthússtræti 13 KLEINA er útgáfu- og letursýning Björns Loka og Elsu Jónsdóttur en þar sýna þau letrið sem þau hafa verið að bralla upp á síðkastið. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari mun flytja nokkrar af perlum óperu- bókmenntanna í Hafnafirði í hádeginu. ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG ÁLFABAKKA DEEPWATER HORIZON KL. 5:40 - 8 - 10:20 DEEPWATER HORIZON VIP KL. 5:40 - 8 - 10:20 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 STORKS ENSKT TAL KL. 8 - 10:20 SULLY KL. 5:50 - 8 - 10:10 MECHANIC: RESURRECTION KL. 8 - 10:20 WAR DOGS KL. 8 - 10:30 SUICIDE SQUAD 2D KL. 5:20 LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 2D KL. 6 KEFLAVÍK DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:40 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 THE MAGNIFICENT SEVEN KL. 10:20 BRIDGET JONES’S BABY KL. 8 LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 2D KL. 6 AKUREYRI DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:20 STORKAR ÍSLTAL KL. 6 STORKS ENSKT TAL KL. 6 SKIPTRACE KL. 10:20 SULLY KL. 8 DEEPWATER HORIZON KL. 8 - 10:40 STORKAR ÍSLTAL KL. 5:50 BRIDGET JONES’S BABY KL. 5:20 - 8 - 10:20 SULLY KL. 6:50 - 9 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI EGILSHÖLL DEEPWATER HORIZON KL. 5:30 - 8 - 10:20 STORKAR ÍSLTAL KL. 5:30 SKIPTRACE KL. 5:40 - 8 - 10:20 SULLY KL. 5:50 - 8 - 10:10 WAR DOGS KL. 8 - 10:30 Nýjasta stórmynd Clint Eastwood VARIETY  SEATTLE TIMES  CHICAGO SUN-TIMES  HOLLYWOOD REPORTER  Geggjuð grín-spennumynd ROGEREBERT.COM  EMPIRE  ENTERTAINMENT WEEKLY  EMPIRE  THE GUARDIAN  HOLLYWOOD REPORTER  HOLLYWOOD REPORTER  THE WRAP  Ein magnaðasta stórmynd ársins Sýnd með íslensku og ensku tali ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is COSI FAN TUTTI 17. október í Háskólabíói - HS, MORGUNBLAÐIÐ - GUARDIAN „FYNDIN OG HEILLANDI“ - GUARDIAN - ROTTENTOMATOES 87% KVIKMYND EFTIR TIM BURTON VÆNTANLEG 21. OKT ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ MAGNIFICENT 7 7:20, 10 FRÖKEN PEREGRINE 5:20 BRIDGET JONES’S BABY 8 EIÐURINN 6, 9, 10:30 STORKAR 2D ÍSL.TAL 5:20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ 6 DAGAR EFTIR riff.is H E I L S U R Ú M A R G H !!! 1 31 01 5 DAGAR REKKJUNNAR LÍKLEGA ÞÆGILEGUSTU RÚM Í HEIMI King Koil World Luxury er lúxus sem allir eiga skilið. ATH! Einnig til í öðrum stærðum og gerðum. Lexington Firm (Queen size 153x203 cm) Fullt verð 350.014 kr. TILBOÐSVERÐ 252.445 kr. M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19Þ R i ð J U D A g U R 4 . o k T ó B e R 2 0 1 6 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F 4 -E F F 8 1 A F 4 -E E B C 1 A F 4 -E D 8 0 1 A F 4 -E C 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.