Fréttablaðið - 10.10.2016, Side 11
Isavia boðar til morgunfundar um áhrif uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli til framtíðar.
Á fundinum verður kynnt ný skýrsla þar sem skoðaðar eru þær áskoranir og þau tækifæri
sem felast í þeirri miklu uppbyggingu sem framundan er.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 12. október á Hilton Nordica Reykjavík
kl. 8:30–10:00. Húsið opnar kl. 8:00 og boðið verður uppá kaffi og létta morgunhressingu.
Dagskrá:
8:30 — Björn Óli Haukson forstjóri Isavia opnar fundinn
8:35 — Elín Árnadóttir aðstoðarforstjóri Isavia
Áhrif uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli – Horft til framtíðar
9:20 — Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson ráðgjafi hjá Aton
Ísland sem flugþjóð? – tækifæri og áskoranir
Opið verður fyrir umræður að fundi loknum.
Skráning fer fram www.isavia.is/morgunfundur
S T Ó R I Ð J A Í S T Ö Ð U G U M V E X T I
H V A Ð A Þ Ý Ð I N G U H E F U R U P P B Y G G I N G
K E F L A V Í K U R F L U G V A L L A R T I L F R A M T Í Ð A R ?
STA Ð S E T N I N G :
HÓTEL HILTON REYKJAVÍK
stjórnmál Alþingiskosningarnar
29. október verða þær fjórðu á
rúmum níu árum. Frestur til að
skila framboðslistum til kosninga
til Alþingis rennur út klukkan 12 á
hádegi þann 14. október.
Stjórnmálahreyfingar sem hafa
ekki fengið skráðan listabókstaf
þurfa að tilkynna framboð sitt eigi
síðar en klukkan 12 á hádegi þann
11. október.
Þrettán stjórnmálaflokkar hafa
boðað framboð til alþingiskosn-
inganna, tólf í öllum kjördæmum.
Aðeins einu sinni hafa fleiri stjórn-
málaflokkar boðið fram en það var
árið 2013 þegar fimmtán hreyfingar
voru í framboði. Alls eru 1.534 í
framboði í komandi kosningum
sem er mestur fjöldi frambjóðenda
í sögu kosninga hérlendis en árið
2013 buðu 1.512 fram krafta sína til
setu á Alþingi.
Til þess að framboð teljist gilt
þarf tilskilinn fjölda meðmælenda.
Í hverju kjördæmi þarf hver listi
30 til 40 yfirlýsta stuðningsmenn
fyrir hvert þingsæti. Björt framtíð,
Framsóknarflokkurinn, Viðreisn,
Sjálfstæðisflokkurinn, Íslenska
þjóðfylkingin, Flokkur fólksins,
Lýðræðisflokkurinn, Framfara-
flokkurinn, Píratar, Alþýðufylking-
in, Samfylkingin, Dögun og Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð stefna á
að bjóða fram í öllum kjördæmum
meðan Húmanistaflokkurinn býður
fram í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Framfaraflokkurinn sem auglýsti
framboð í síðustu viku og hélt stofn-
fund um síðustu helgi er hættur við.
„Ég er búinn að slá þetta af, tím-
inn hljóp frá okkur. Það var ekki
raunhæft að þetta næðist í tæka
tíð,“ segir Þormar Jónsson, forsvars-
maður Framfaraflokksins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðskrá eru 246.515 kjósendur á
kjörskrá. Takist öllum framboðum
að afla tilskilins fjölda stuðnings-
manna verða þeir á bilinu 23.010
til 30.680, sem er á bilinu níu til tólf
prósent kjósenda. – þh
Yfir fimmtán hundruð bjóða sig fram til Alþingis og setja nýtt met
Viðskipti Forsvarsmenn lággjalda-
flugfélagsins Easyet segja hagnað
félagsins munu dragast saman um
meira en 25 prósent fyrir árið. Sam-
drátturinn er rakinn til ákvörðunar
Breta um að yfirgefa ESB.
Forsvarsmenn Easyjet segja mikla
lækkun á gengi pundsins munu hafa
neikvæð áhrif á reksturinn næstu
tólf mánuði. Áætlað er að kostnað-
urinn verði jafnvirði 26 milljarða
króna, næstu tvö árin.
Gengi hlutabréfa í Easyjet lækk-
aði um yfir fimm prósent í kjölfar
þessara fregna. – sg
Easyjet tapar
26 milljörðum
á útgöngu Breta
Viðskipti Snap Inc., eigandi sam-
félagsmiðilsins Snapchat, stefnir á
skráningu á hlutabréfamarkað í mars
á næsta ári, að því er segir í Wall Street
Journal.
Talið er að fyrirtækið verði metið á
25 milljarða dollara, 2.860 milljarða
íslenskra króna, við skráningu.
Forsvarsmenn Snapchat segja að
auglýsingatekjur af miðlinum muni
nema 250 til 350 milljónum dollara
í ár. EMarketer telur að tekjur fyrir-
tækisins verði milljarður dollara 2017.
Þá yrði markaðsvirði þess 25-faldar
tekjur á ársgrundvelli. – sg
Snapchat á leið
á markað
kosningar
2016
Frambjóðendur til alþingiskosninga
eru 1.534 talsins. Fréttablaðið/SteFán
bílar Bílaumboðið Askja, þjónustu-
aðili Mercedes-Benz á Íslandi, hefur
selt metfjölda af Mercedes-Benz það
sem af er árinu.
„Á þessu ári þá höfum við selt 330
Mercedes-Benz bifreiðar sem er
mesta sala frá upphafi. Samt eigum
við þrjá mánuði eftir af árinu,“ segir
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Öskju og formaður Bílgreina-
sambandsins. Lúxusbílasala sé að
aukast jafnt og þétt. – ngy
Met í sölu á
Benz-bílum
Þota easyjet á Keflavíkurflugvelli.
Fréttablaðið/Pjetur
Samkvæmt frétt WSj er Snapchat metið
á 25 milljarða dollara. Mynd/blooMberg
330
Mercedes-Benz bílar hafa
verið seldir á Íslandi í ár.
f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 11m á n U D a G U r 1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 6
1
0
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
D
C
-7
1
5
8
1
A
D
C
-7
0
1
C
1
A
D
C
-6
E
E
0
1
A
D
C
-6
D
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K