Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 68
Bjórsoðinn svínahnakki
500 g svínahnakki
4 flöskur af dökkum bjór eða
rauðöl (má líka nota ljósan
bjór)
Ferskar jurtir eftir smekk
Afskurður af grænmeti ef
svoleiðis er til
2 laukar
4 hvítlauksgeirar
Svínahnakkinn er settur í djúpt ílát
með kryddi og grænmeti og bjórn-
um hellt yfir. Sett í ofn yfir nótt á
80 gráðu hita. Um morguninn má
lækka hitann í 65-70 gráður. Kjöt-
ið má vera í ofninum fram að kvöld-
mat.
Þegar komið er að kvöldmat er
hnakkinn rifinn niður og settur í
pott og velt upp úr góðri bbq-sósu
og salti og pipar.
Pico De Gallo salsasósa
½ rauð paprika, smátt skorin
3 tómatar, án kjarnans og
smátt skornir
1 stk. lítill rauðlaukur, smátt
skorinn
Jalapeño, magn eftir smekk,
smátt skorið
Kóríander, hálft búnt eða
eftir smekk, saxað smátt
Safi úr 1 lime
Öllu blandað saman Hitið mjúka
taco-skel. Smá salat sett ofan í,
rifna kjötið næst og toppað með
Pico De Gallo salsasósunni.
BjórDeiGsPitsa
Dugar í tvær minni pitsur
3 bollar hveiti
1 msk. lyftiduft
½ tsk. salt
400 ml bjór
Þurrefnum blandað saman og
bjór hellt saman við. Deigið hnoð-
að þar til vel blandað. Hveiti
dreift á borðplötu, deigið tekið úr
skálinni, hveiti dreift á borðið og
hnoðað. Látið deigið hefast í skál-
inni í 1-2 klst. Deigið er svo flatt
út, myndið brún og berið ólífuolíu
á hana.
sæt laukschilitómatsósa
1 stk. rauðlaukur, smátt
skorinn
3 stk. rautt chili, smátt skorið
2 hvítlauksgeirar, marðir
50 g tómatpuré
4 tómatar, smátt skornir
2 msk. óreganó
3 msk. púðursykur
Salt og pipar
Látið lauk, chili og hvítlauk svitna á
pönnu. Sykrinum bætt út í og loks
tómatpuré og tómötum. Þessu er
leyft að malla í nokkrar mínútur þar
til allt hefur blandast vel saman.
Pitsubotn er þakinn með sós-
unni, mozzarella-osti og því hráefni
sem hugurinn girnist. Ég mæli með
að baka hana bara með sósu og
osti og toppa hana svo þegar hún
kemur úr ofninum með klettasalati,
hráskinku og parmesanosti.
Bakið pitsuna á 210 gráðu hita
með blæstri í um 10-14 mínútur.
mom (milk of
maDaGascar)
súkkulaði frá Omnom
150 ml rjómi
Vanilluís (ég mæli með ís frá
Valdísi)
Saltaðar möndlur eða
salthnetur
Karamellupopp (t.d. frá
Ástríki)
Soðið er upp á 150 ml af rjóma.
Þegar suðan er komin upp er pott-
urinn tekinn af og súkkulaðinu bætt
við í molum. Þessu er svo hrært
saman út frá miðju með sleikju eða
skeið.
Salthnetur eða möndlur eru sett-
ar í botn á skál, vanilluískúla ofan
á og svo er toppað með sósunni.
Karamellupopp sett ofan á.
Fyrir mér þýðir haust-
ið sveppir, rótargrænmeti,
sýrt grænmeti og ýmiss
konar villibráð. Einnig má
nefna hægeldað kjöt og
þyngri rétti.
Margrét Ríkharðsdóttir
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Matreiðslumeistarinn Margrét Ríkharðsdóttir stendur vaktina um helgina. Fiskur
er uppáhaldshráefni hennar, sérstaklega þorskur, karfi og steinbítur. MYND/EYÞÓR
Bjórsoðinn svínahnakki í mjúkri taco-skel.
Bjórdeigspitsa með sætri laukchili-
tómatsósu.
MOM (Milk of Madagascar) er frum-
legur og góður eftirréttur.
enGin afslöPPun um helGina
Eins og flestir matreiðslumenn er Margrét Ríkharðsdóttir afar upptekin um helgina. Hún tók þó forskot á sæluna síðasta
miðvikudag og eldaði ljúffenga bjórdeigspitsu. Hún deilir uppskriftinni hér með lesendum ásamt öðru góðgæti.
Matreiðslumeistarinn Margrét Rík-
harðsdóttir slakar lítið á um helg-
ina frekar en flestar aðrar helgar
ársins. Hún mun í staðinn standa
vaktina á Bryggjunni Brugghúsi
þar sem hún eldar góðan mat ofan
í gesti staðarins ásamt samstarfs-
fólki sínu.
Helgin verður þó ekki ein-
tóm vinna. Eftir vakt gærkvölds-
ins smakkaði hún á nýjum bjór úr
smiðju Bergs bruggara sem nefnist
Hop Dylan i.p.a. „Á morgun, sunnu-
dag, ætla ég að eyða kvöldinu á
Bryggjunni en Valdimar mun leiða
sunnu-djassinn og ég vil alls ekki
missa af því. Annars tók ég smá
forskot á helgina síðasta miðviku-
dag en þá eldaði ég bjórdeigspitsu
með sætlaukschili-tómatsósu,
mozzarella, klettasalati, jamon de
cebo ibérico og parmesanosti.“
Fyrsti vetrardagur er í dag og
áherslur varðandi hráefni breyt-
ast í eldhús Margrétar. „Fyrir mér
þýðir haustið sveppir, rótargræn-
meti, sýrt grænmeti og ýmiss
konar villibráð. Einnig má nefna
hægeldað kjöt og þyngri rétti.“
Annars er fiskurinn upp-
áhaldshráefni Margrétar, þá sér-
staklega þorskur, karfi og steinbít-
ur. „Rækjurnr eru líka góðar en við
reykjum þær mikið hér á Bryggj-
unni. Á jólaseðli okkar ætlum við
að vera aftur með bjórgrafinn lax
sem við prófuðum að gera í fyrra.
Í ár ætlum við að nota nýja bjór-
tegund og ég er mjög spennt að sjá
hvernig það kemur út.“ Margrét
gefur lesendum Fréttablaðsins hér
þrjár ljúffengar og einfaldar upp-
skriftir.
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 14-28
Fatnaður í Stærðum 14-28
Fákafeni 9, 108 RVK
Sími 581-1552 | www.curvy.is
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS
Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9
Alla virka daga frá kl.11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r8 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
7
-6
B
5
4
1
B
0
7
-6
A
1
8
1
B
0
7
-6
8
D
C
1
B
0
7
-6
7
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K