Fréttablaðið - 31.10.2016, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 5 7 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
sport Arnar Freyr vonast til að
standast væntingarnar. 14
Menning Ballettinn Giselle er
fjögurra stjörnu verk. 26
lÍfið Hildur Rut Ingimarsdóttir
veit allt um avókadó. 22
plús 2 sérblöð l fólk l lÍfið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
w w w.forlagid. i s
á morgun
hluti af
ÞÚ ÞARFT
á ferðinni
stjórnMál Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur haft samband við Óttarr
Proppé, formann Bjartrar framtíð-
ar um mögulega myndum nýrrar
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Við-
reisnar og Bjartrar framtíðar. Þetta
herma heimildir Fréttablaðsins.
Ríkisstjórn þessara þriggja flokka
hefði mjög nauman meirihluta, 32
þingmenn.
Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn
unnu mikinn sigur í kosningum
helgarinnar. Sjálfstæðisflokkur
bætti við sig þremur þingmönnum
og Viðreisn kemur ný inn á þing
með rúmlega 10 prósenta fylgi og
sjö kjörna þingmenn. Vinstri græn
eru næststærsti flokkur lands-
ins með 10 þingmenn. Þeir fjórir
flokkar sem lýst höfðu yfir vilja til
myndunar ríkisstjórnar að loknum
kosningum náðu ekki meirihluta og
fengu samtals 27 þingmenn. Sam-
fylkingin galt afhroð, fékk þrjá þing-
menn kjörna en jafnaðarmenn hafa
aldrei mælst lægri á Íslandi. Fram-
sóknarflokkurinn náði líka sögulegu
lágmarki með átta þingmenn kjörna
og 11,5 prósent.
Björt Ólafsdóttir, þingkona
Bjartrar framtíðar, segir ekki um
marga kosti að ræða í stöðunni. „Við
höfum áður sagt að við útilokum
ekkert þó mikið þurfi að ganga á
til að við göngum til samstarfs með
Framsóknarflokki,“ segir Björt. „Það
er lítið sem ber í milli okkar og Við-
reisnar og það hefur verið að koma
betur og betur í ljós í kosninga-
baráttunni. Afdráttarlausar yfirlýs-
ingar annarra formanna hafa einnig
fækkað mögulegum ríkisstjórnar-
myndunum þannig að það er ekki
um marga aðra kosti að ræða.“
Benedikt Jóhannesson, formaður
Viðreisnar, vildi hvorki játa því né
neita hvort hann hafi átt samtal við
Bjarna Benediktsson í gær. „Ég er
á þeirri skoðun að stjórnarmynd-
unarviðræður eigi ekki að eiga sér
stað á síðum blaðanna. Við verðum
að vanda til verka,“ segir Benedikt.
Þrjátíu konur munu taka sæti
á Alþingi þegar það kemur aftur
saman. Hlutfall kvenna hefur aldr-
ei verið hærra eftir þingkosningar.
Formenn allra þeirra flokka sem
náðu kjöri til Alþingis um helgina
munu mæta til fundar við forseta
Íslands í dag. Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
mætir fyrstur klukkan tíu og svo
ganga þeir koll af kolli á fund for-
seta, í stærðarröð flokkanna. Bjarni
Benediktsson og Benedikt Jóhann-
esson hafa báðir lýst yfir vilja til
að fara með stjórnarmyndunarum-
boðið. – sa/snæ
Ræddu saman í síma í gær
Formenn Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks hafa rætt saman óformlega um mögulegt ríkisstjórnarsam-
starf með Viðreisn. Forseti Íslands hefur boðað alla formenn flokkanna sem náðu á þing á sinn fund í dag.
32
er samanlagður þingmanna-
fjöldi Sjálfstæðisflokks, Við-
reisnar og Bjartrar framtíðar.
Fréttablaðið/anton brink
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
D
-5
A
8
0
1
B
1
D
-5
9
4
4
1
B
1
D
-5
8
0
8
1
B
1
D
-5
6
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K